14. janúar 2022
Úrslitakeppni Íslandsmótsins innanhúss í meistaraflokki karla heldur áfram um helgina og verður leikið til úrslita á sunnudag.
13. janúar 2022
Fyrir síðastliðin jól gaf KSÍ út jóladagatal íslenska kvennalandsliðsins, en þar var talið niður til jóla með fremstu landsliðskonunum.
13. janúar 2022
Knattspyrnusamband Íslands er þátttakandi í stórri rannsókn er snýr að algengi og áhrifum litblindu á þátttöku og framvindu í íþróttum.
12. janúar 2022
A karla gerði 1-1 jafntefli við Úganda, en leikið var í Belek í Tyrklandi.
12. janúar 2022
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari A karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Úganda.
12. janúar 2022
Ólafur Ingi Skúlason, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hóp sem æfir dagana 19.-21. janúar.
12. janúar 2022
KSÍ minnir á að tillögur og málefni þau er sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á ársþingi skulu berast stjórn KSÍ minnst mánuði fyrir þing.
11. janúar 2022
Grétar Rafn Steinsson hefur verið ráðinn til KSÍ sem tæknilegur ráðgjafi knattspyrnusviðs. Með ráðningunni er stigið metnaðarfullt skref í greiningarvinnu innan KSÍ, sem mun gagnast félagsliðum og öllum landsliðum.
10. janúar 2022
Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hóp sem tekur þátt í æfingum dagana 19.-21. janúar.
10. janúar 2022
A landslið karla er í Belek í Tyrklandi um þessar mundir og leikur þar tvo vináttuleiki í vikunni. Fyrst mætir liðið Úganda á miðvikudag kl. 14:00 að íslenskum tíma og síðan Suður-Kóreu á laugardag kl. 11:00 að íslenskum tíma.
8. janúar 2022
Breyting hefur verið gerð á leikmannahópi A landsliðs karla fyrir janúarleikina við Úganda og S-Kóreu. Davíð Kristján Ólafsson kemur inn fyrir Guðmund Þórarinsson.
7. janúar 2022
Fyrirhuguðum KSÍ C 2 þjálfaranámskeiðum í janúar og febrúar hefur verið frestað. Ný dagsetning auglýst fljótlega.
7. janúar 2022
Annar leikur undanúrslita Íslandsmótsins innanhúss í meistaraflokki karla fer fram á sunnudag.
7. janúar 2022
Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U16 karla, hefur valið hóp sem tekur þátt í æfingum dagana 17.-19. janúar.
7. janúar 2022
Ein breyting hefur verið gerð á leikmannahópi A karla fyrir vináttuleikina gegn Úganda og Suður-Kóreu. Jökull Andrésson kemur í stað Patriks Gunnarssonar.
7. janúar 2022
Reykjavíkurmót meistaraflokks karla og kvenna hefjast á laugardag með þremur leikjum.
6. janúar 2022
Magnús Örn Helgason, landsliðsþjálfari U16 kvenna, hefur valið hóp til æfinga dagana 12.-14. janúar.
6. janúar 2022
Haukur Hinriksson, yfirlögfræðingur á skrifstofu KSÍ, hefur nú verið ráðinn til sex vikna í málaferladeild FIFA (FIFA Litigation Division).