29. október 2021
Vegna aðstæðna og tilmæla almannavarna hefur verið ákveðið að fresta fyrirhuguðum Markmannsskóla KSÍ (drengir) sem fara átti fram 5.-7. nóvember.
28. október 2021
A landslið kvenna verður í D-riðli ásamt Frakklandi, Ítalíu og Belgíu í úrslitakeppni EM 2022 á Englandi næsta sumar, en dregið var í riðla í Manchester í dag, fimmtudag.
28. október 2021
U17 landslið karla gerði í dag markalaust jafntefli við Ungverjaland í lokaleik sínum í undankeppni EM. Úrslitin þýða að bæði lið sitja eftir í riðlinum, en Eistland og Georgía fara áfram í milliriðil.
28. október 2021
Á fundi stjórnar KSÍ þann 26. október sl. voru samþykkt þau tvö tímabil innan keppnistímabilsins 2022 þar sem félagaskipti leikmanna á milli félaga eru heimil. Þessi ákvörðun hefur verið kynnt með dreifibréfi nr. 9/2021 sem hefur verið sent til aðildarfélaga.
28. október 2021
U17 landslið karla mætir Ungverjalandi í lokaleik sínum í undankeppni EM í dag. Smellið hér að neðan til að skoða byrjunarliðið.
26. október 2021
Miðasala á EM 2022 hefst í vikunni. Gefinn verður út sérstakur hlekkur og kóði sem gerir kaupandanum kleift að velja miða í svæði íslenskra stuðningsmanna á leikjum Íslands.
26. október 2021
Dregið verður í lokakeppni EM 2022 fimmtudaginn 28. október. Drátturinn verður í beinu streymi á vef UEFA og einnig á vef RÚV og hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma.
26. október 2021
A landslið kvenna vann fimm marka sigur á Kýpur í undankeppni HM 2023 og er íslenska liðið í öðru sæti riðilsins með sex stig eftir þrjá leiki.
26. október 2021
Þorsteinn H. Halldórsson, landsliðsþjálfari A kvenna, gerir sjö breytingar á byrjunarliði liðsins frá leiknum gegn Tékklandi.
26. október 2021
Magnús Örn Helgason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hóp sem æfir dagana 3.-5. nóvember.
25. október 2021
U17 karla tapaði 1-2 gegn Eistlandi í öðrum leik sínum í fyrstu umferð undankeppni EM 2022.
25. október 2021
Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Eistlandi.
25. október 2021
Ísland mætir Kýpur á þriðjudag í þriðja leik sínum í undankeppni HM 2023.
24. október 2021
U17 karla mætir Eistlandi á mánudag í öðrum leik liðsins í fyrstu umferð undankeppni EM 2022.
23. október 2021
Fullt hús var á málþingi fyrir konur í stjórnum og ráðum knattspyrnudeilda sem var haldið í höfuðstöðvum KSÍ föstudaginn 22. október í tengslum við leik Íslands og Tékklands í undankeppni HM kvenna sem fram fór sama dag.
22. október 2021
A landslið kvenna mætti Tékklandi í undankeppni HM 2023 á Laugardalsvelli í kvöld, föstudagskvöld, og vann glæsilegan 4-0 sigur. Næsti leikur er gegn Kýpur á þriðjudag.
22. október 2021
U17 landslið karla gerði í dag, föstudag, 1-1 jafntefli við Georgíu í undankeppni EM. Leikið var á Budaörsi Városi Stadion í Budarös í Ungverjalandi.
22. október 2021
KSÍ mun halda KSÍ C 1 þjálfaranámskeið á Reyðarfirði helgina 13.-14. nóvember nk. Um er að ræða fyrsta KSÍ C 1 námskeiðið sem KSÍ heldur frá því að upp var tekið nýtt kerfi í þjálfaramenntun.