26. apríl 2021
Mótanefnd KSÍ hefur staðfest niðurröðun leikja sumarsins í yngri aldursflokkum.
26. apríl 2021
Knattspyrnusamband Íslands og auglýsingastofan Brandenburg hafa hlotið tilnefningar til alþjóðlegu hönnunarverðlaunanna The One Show fyrir ásýnd íslensku landsliðanna í knattspyrnu.
26. apríl 2021
Grunnnámskeið fyrir aðstoðardómara verður haldið þriðjudaginn 4. maí í höfuðstöðvum KSÍ 3. hæð og hefst það kl. 17:00.
26. apríl 2021
Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ (3. hæð) mánudaginn 3. maí kl. 17:00.
26. apríl 2021
Íslenska landsliðið í efótbolta leikur á mánudag seinni umferð sína í undankeppni eEURO 2021.
23. apríl 2021
Mótanefnd KSÍ hefur staðfest niðurröðun leikja í Íslandsmótum meistaraflokka. Hafa ber í huga að á síðustu dögum hafa verið gerðar minniháttar breytingar á leikjum í flestum mótum meistaraflokka.
21. apríl 2021
Á fundi stjórnar KSÍ 18. febrúar sl. voru samþykktar tímabundnar breytingar er snúa að leikmannaskiptingum í efstu deildum karla og kvenna.
21. apríl 2021
KSÍ hlaut á dögunum Íslensku auglýsingaverðlaunin 2020 (Lúðurinn) fyrir nýja ásýnd landsliðanna.
21. apríl 2021
Á fundi stjórnar KSÍ 15. apríl sl. var samþykkt ný reglugerð KSÍ um viðmiðanir og sértækar ráðstafanir vegna heimsfaraldurs kórónaveiru.
21. apríl 2021
Á fundi stjórnar KSÍ 15. febrúar sl. voru samþykktar breytingar á reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál og reglugerð KSÍ um áfrýjunardómstól KSÍ.
21. apríl 2021
Keppni í Mjólkurbikarnum 2021 er að hefjast og eru fjölmargir leikir á dagskrá næstu daga.
20. apríl 2021
KSÍ hefur nú smíðað sína fyrstu opinbera stefnu um samfélagsleg verkefni. Framtíðarsýn KSÍ er að knattspyrnustarfið verði talið álitlegur kostur til að koma samfélagslega mikilvægum verkefnum sem best á framfæri.
20. apríl 2021
Guðmundur Hólmar Helgason og Orri Rafn Sigurðarson hafa verið í starfsnámi hjá KSÍ á síðustu vikum og mánuðum og unnið að afmörkuðum verkefnum fyrir KSÍ sem hluta af sínu námi.
20. apríl 2021
Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U16 karla, hefur valið 22 manna leikmannahóp til æfinga í Kórnum í Kópavogi dagana 28.-30. apríl næstkomandi.
20. apríl 2021
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari U15 landsliðs kvenna, hefur valið 32 leikmenn frá 14 félögum til æfinga í Kaplakrika í Hafnarfirði dagana 26.-28. apríl næstkomandi.
20. apríl 2021
Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U15 karla, hefur valið 30 manna hóp til æfinga dagana 26.-28. apríl næstkomandi.
20. apríl 2021
Héraðsdómaranámskeið verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ (3. hæð) þriðjudaginn 27. apríl kl. 17:00. Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara
20. apríl 2021
Í dreifibréfi nr. 2/2021 sem sent var til aðildarfélaga í vikunni eru kynntar breytingar á reglugerðum KSÍ um knattspyrnumót, aðgönguskírteini og ferðaþátttökugjald. Þá er kynnt ný reglugerð um landsliðs- og heiðursviðurkenningar.