12. september 2018
Þór/KA tapaði 0-1 gegn Wolfsburg í fyrri leik liðanna í 32 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu, en leikið var á Akureyri.
12. september 2018
Þór/KA mætir Wolfsburg í dag í fyrri leik liðanna í 32 liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Leikurinn fer fram á Þórsvelli og hefst hann klukkan 16:30.
11. september 2018
A landslið karla tapaði 3-0 fyrir Belgíu í öðrum leik liðsins í Þjóðadeild UEFA. Næsti leikur liðsins í Þjóðadeildinni fer fram 15. október þegar Ísland mætir Sviss á Laugardalsvelli.
11. september 2018
U21 árs lið karla tapaði 2-3 gegn Slóvakíu í undankeppni EM 2019, en leikurinn fór fram á Alvogenvellinum. Albert Guðmundsson skoraði bæði mörk Íslands í leiknum.
11. september 2018
U21 ára lið karla mætir Slóvakíu í dag í undankeppni EM 2019. Leikurinn hefst klukkan 15:30 og fer fram á Alvogenvellinum. Byrjunarlið Íslands hefur verið tilkynnt og má sjá það í fréttinni.
10. september 2018
U21 ára lið karla mætir Slóvakíu í undankeppni EM 2019 á þriðjudaginn. Leikurinn fer fram á Alvogenvellinum og hefst hann klukkan 15:30.
10. september 2018
U19 ára lið karla vann góðan 4-1 sigur gegn Albaníu í seinni vináttuleik liðanna, en leikið er ytra. Það voru Birkir Heimisson, Viktor Örlygur Andrason og Arnór Borg Guðjohnsen, með tvö, sem skoruðu mörk Íslands.
10. september 2018
Hæfileikamót N1 og KSÍ fyrir drengi fer fram í Kórnum 22.-23. september. Mótið er fyrir árgangana 2004 og 2005, en aðaláherslan er á 2004 árganginn.
10. september 2018
U19 ára lið karla mætir Albaníu í dag í síðari vináttuleik liðanna, en leikið er ytra. Byrjunarlið Íslands er tilbúið og má sjá það í fréttinni, en leikurinn hefst klukkan 14:00 að íslenskum tíma.
10. september 2018
A landslið karla mætir Belgíu á þriðjudag í öðrum leik liðsins í Þjóðadeild UEFA. Um er að ræða fyrsta heimaleik liðsins í keppninni og þann fyrsta undir stjórn Erik Hamrén.
9. september 2018
U19 ára lið karla mætir Albaníu öðru sinni á mánudag í vináttuleik, en leikið er ytra. Leikurinn hefst klukkan 14:00 að íslenskum tíma.
9. september 2018
Ósóttir miðar á leik Íslands og Belgíu fara í sölu mánudaginn 10. september klukkan 12:00 á tix.is. Rétt er að taka fram að um er að ræða áður óselda miða, sem fráteknir voru fyrir fulltrúa gestaliðs, UEFA og aðra, sem voru ekki nýttir. Ekki er um að ræða miða sem hafa verið seldir í almennri sölu.
8. september 2018
U19 ára lið karla tapaði 0-1 gegn Albaníu í vináttuleik, en leikið var ytra. Liðið mætir Albönum að nýju á mánudaginn klukkan 14:00 að íslenskum tíma. Leikirnir eru liður í undirbúningi liðsins fyrir undankeppni EM 2019.
8. september 2018
Ísland tapaði 6-0 fyrir Sviss í fyrsta leik liðsins í Þjóðadeild UEFA, en leikið var ytra. Ísland mætir Belgíu á þriðjudaginn á Laugardalsvelli, en sá leikur hefst klukkan 18:45.
8. september 2018
U19 ára lið karla mætir Albaníu í vináttuleik í dag, en leikið er ytra. Liðin mætast svo aftur á þriðjudag. Leikirnir eru liður í undirbúningi liðsins fyrir undankeppni EM 2019 sem hefst í nóvember.
7. september 2018
Knattspyrnusamband Íslands heldur fyrsta þjálfaranámskeið vetrarins síðustu helgina í september, n.t.t. 28.-30. september, á höfuðborgarsvæðinu. Annað 1. stigs námskeið verður svo haldið helgina 12.-14. október. Áhugasamir hafa því um tvær helgar að velja.
7. september 2018
A landslið karla mætir á laugardag Sviss í fyrsta leik liðsins í hinni nýju Þjóðadeild UEFA. Leikurinn fer fram á Kybunpark St. Gallen og hefst hann klukkan 16:00 að íslenskum tíma.
7. september 2018
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmir leik Andorra og Kazakhstan í Þjóðadeild UEFA, en leikurinn fer fram í Andorra þann 10. september. Honum til aðstoðar verða Jóhann Gunnar Guðmundsson og Birkir Sigurðarson. Fjórði dómari er Frosti Viðar Gunnarsson og sprotadómarar þeir Þóroddur Hjaltalín og Ívar Orri Kristjánsson.