2. júní 2018
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari A karla, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Noregi. Kári Árnason er fyrirliði liðsins.
2. júní 2018
Þær upplýsingar hafa borist frá FIFA að ekki náist að póstsenda alla miða og öll FAN-ID til þeirra einstaklinga sem keypt hafa aðgöngumiða að leikjum á HM í Rússlandi. FIFA hefur því staðfest að hægt verði að nálgast aðgöngumiða í öllum borgum þar sem leikir fara fram, á þar til greindum afhendingarstöðum (Ticket Collection Location).
2. júní 2018
Krakkarnir sem leiða liðin inn á völlinn fyrir vináttuleik karlalandsliða Íslands og Noregs koma úr röðum fatlaðra íþróttamanna, nánar tiltekið úr Klettaskóla. Markmiðið að vekja athygli á því að knattspyrna er íþrótt fyrir alla.
2. júní 2018
A landslið karla mætir Noregi á Laugardalsvelli í kvöld, en leikurinn hefst klukkan 20:00. Um er að ræða fyrri undirbúningsleik Íslands áður en liðið heldur til Rússlands á laugardaginn eftir viku.
1. júní 2018
Leikir á Polla- og Hnátumótunum hafa verið staðfestir og má sjá leikjaniðurröðunina á heimasíðu KSÍ undir mót.
1. júní 2018
Búið er að draga í 8 liða úrslit Mjólkurbikars karla, en það var gert í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
31. maí 2018
Þorlákur Árnason, þjálfari U15 landsliða og yfirmaður Hæfileikamótunar N1 og KSÍ, hefur valið hóp stúlkna sem tekur þátt í úrtökumóti á Akranesi dagana 19.-23. júní.
31. maí 2018
Stefán Daníel Jónsson hefur verið ráðinn í tímabundið starf vegna samstarfsverkefnis FIFA og KSÍ um frekari þróun á kvennaknattspyrnu. Stefán mun hefja störf 1. júlí nk. og starfa til 31. desember 2018. Aðalverkefni Stefáns verður að vinna að gerð leyfiskerfis fyrir félög í Pepsi-deild kvenna sem stefnt er að verði tilbúið til kynningar í upphafi ársins 2019.
30. maí 2018
Nýverið stóð Víkingur Ólafsvík fyrir fótboltaveislu. Veislan fór fram í íþróttamiðstöðinni í Ólafsvík en Víkingar taka í notkun nýtt fótboltagras á aðalvelli félagsins á næstu dögum. Boðið var upp á ýmsa skemmtilega hluti, s.s. leiktæki, fótbolta-skot skífu og óhætt er að segja að veislan hafi verið vel sótt af fjölda barna og fullorðinna.
29. maí 2018
Vegna ófærðar hefur leik ÍBV og Vals í Pepsi-deild kvenna verið frestað til morguns.
28. maí 2018
Leikur Fram og Víking Ólafsvíkur hefur verið færður af Laugardalsvelli á Framvöll í Safamýri.
28. maí 2018
Næsta haust mun Knattspyrnusamband Íslands halda KSÍ VI þjálfaranámskeið. Fyrsti hluti námskeiðsins er leikgreiningarnámskeið laugardaginn 23. september. Síðari hluti námskeiðsins verður svo í Danmörku dagana 17.-23. október 2018.
28. maí 2018
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari A kvenna, hefur valið hópinn sem leikur gegn Slóveníu á Laugardalsvelli 11. júní næstkomandi.
28. maí 2018
Hæfileikamótun N1 og KSÍ fer fram á Vesturlandi föstudaginn 1. júní, en æfingarnar fara fram í Ólafsvík. Þorlákur Árnason, yfirmaður Hæfileikamótunar, stýrir æfingunum.
28. maí 2018
Hæfileikamótun N1 og KSÍ verður á Suðurlandi sunnudaginn 3. júní og fara æfingarnar fram á JÁVERK vellinum á Selfossi. Það er Þorlákur Árnason, yfirmaður Hæfileikamótunar, sem stýrir æfingunum.
28. maí 2018
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari A kvenna, kynnir í dag hópinn sem mætir Slóveníu 11. júní á Laugardalsvelli, en um er að ræða leik í undankeppni HM 2019.
23. maí 2018
Dregið var í 16 liða úrslit Mjólkurbikars kvenna í gær í höfuðstöðvum KSÍ og fara leikirnir fram dagana 1.-3. júní, en staðfestir leiktímar verða birtir von bráðar.
23. maí 2018
Handhafar A og DE skírteina frá KSÍ fá afhenta aðgöngumiða á vináttulandsleiki Íslands og Noregs og Íslands og Gana, fimmtudaginn 24. maí frá kl. 12:00 á hádegi til kl. 16:00, eða á meðan birgðir endast.