27. apríl 2018
Öll höfum við beðið knattspyrnusumarsins 2018 með mikilli eftirvæntingu og nú er þetta loks að bresta á. Íslandsmótið er að hefjast og það eru leikir framundan í Pepsi-, Inkasso- og öðrum deildum, auk þess sem Mjólkurbikarinn er kominn á fleygiferð.
27. apríl 2018
Í Handbók leikja 2018 er að finna ábendingar og tilmæli til félaga um framkvæmd leikja. Listaðar eru upp skyldur við samstarfsaðila, tilmæli og skyldur vegna umgjarðar aðstöðu á leikvöngum og þjónustu við fjölmiðla og aðra hópa. Að auki er stiklað á stóru um hlutverk lykilstarfsmanna leikja.
27. apríl 2018
Áhugi erlendra fjölmiðla á íslenskri knattspyrnu hefur aukist gríðarlega á síðustu árum og hingað til lands streymir fjölmiðlafólk frá öllum heimshornum til að kynna sér uppgang síðustu ára. Félög eru heimsótt, tekin viðtöl og myndefni og fréttaefni birt í miðlum í öllum heimshornum.
27. apríl 2018
Knattspyrnufélagið Valur og upplýsingatæknifyrirtækið Origo hafa gert með sér samstarfssamning sem snýr að uppbyggingu á Hlíðarendasvæðinu. Keppnisvöllur Vals mun bera nafnið Origo völlurinn Hlíðarenda næstu árin.
27. apríl 2018
Fallinn er frá knattspyrnukappinn Sigurlás Þorleifsson frá Vestmannaeyjum. Sigurlás, sem var fæddur 1957, lék sinn fyrsta leik fyrir ÍBV í júlí 1974, og vantaði þá nokkra daga í að verða 17 ára.
26. apríl 2018
Guðni Bergsson formaður Knattspyrnusambands Íslands og Ægir Már Þórisson forstjóri Advania undirrituðu í dag rafrænan samning um að Advania verði einn af sex bakhjörlum KSÍ næstu þrjú árin. Advania og KSÍ hafa átt náið samstarf í mörg ár og með bakhjarlasamningnum er stefnt að enn meiri samvinnu.
26. apríl 2018
Hæfileikamótun N1 og KSÍ fyrir pilta verður á höfuðborgarsvæðinu 1. maí. Það er Þorlákur Árnason, yfirmaður Hæfileikamótunar, sem stjórnar æfingunum. Þær fara fram á Eimskipsvellinum í Laugardal, en um er að ræða þrjá hópa.
25. apríl 2018
A landslið karla leikur vináttuleik gegn Frakklandi 11. október næstkomandi, en hann fer fram ytra. Leikurinn er liður í undirbúningi Íslands fyrir leikinn gegn Belgíu í Þjóðadeild UEFA þann 15. október.
25. apríl 2018
Frímerki til að fagna þáttöku íslenska karlalandsliðsins á HM í Rússlandi í sumar er komið út. Það sem helst gerir þetta frímerki öðruvísi en önnur er að allt landsliðið tók þátt í teiknun þess og er þetta í fyrsta sinn sem tenging er við íslenskt landslið í knattspyrnu á frímerki.
25. apríl 2018
Pepsi deild karla hefst á föstudaginn og með henni fer af stað Draumaliðsdeild Eyjabita. Það er til mikils að vinna með því að taka þátt í Draumaliðsdeildinni í sumar en sigurvegari þar fær ferð fyrir tvo á enska boltann.
25. apríl 2018
Hæfileikamótun N1 og KSÍ verður á höfuðborgarsvæðinu 1. maí og er um að ræða æfingar fyrir stúlkur. Það er Þorlákur Árnason, yfirmaður Hæfileikamótunar, sem stjórnar æfingunum. Þær fara fram á Eimskipsvellinum í Laugardal, en um er að ræða tvo hópa.
24. apríl 2018
Þór/KA er Lengjubikarmeistari kvenna en liðið vann Stjörnuna í vítaspyrnukeppni í gær. Leikið var í Boganum á Akureyri.
24. apríl 2018
Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum 13. apríl síðastliðinn úthlutun úr Mannvirkjasjóði KSÍ. Þetta er í ellefta skiptið sem úthlutað er úr sjóðnum, en 32 umsóknir frá 22 félögum bárust.
24. apríl 2018
Á þriðjudaginn fór fram hinn árlegi kynningarfundur Pepsideildar karla og fór hann fram í húsakynnum Ölgerðarinnar. Að venju var kynnt spá forráðamanna félaganna og er Íslandsmeisturum Vals spáð titlinum og FH öðru sæti. Víking R. og ÍBV er spáð falli í 1. deild.
24. apríl 2018
Dregið var í lokakeppni EM 2018 hjá U19 kvenna í gær, þrátt fyrir að keppni í einum milliriðli sé eftir. Það er einmitt riðill Íslands, en ásamt stelpunum eru þar Grikkland, Noregur og Pólland og verður hann leikinn í byrjun júní.
23. apríl 2018
Á þriðjudaginn fer fram inn árlegi kynningarfundur Pepsideildar karla og fer hann fram í húsakynnum Ölgerðarinnar. Að venju verður kynnt spá forráðamanna félaganna og verður áhugavert að sjá hvernig hún verður borið saman við spár fjölmiðla.
23. apríl 2018
Á fundi stjórnar KSÍ á dögunum var skipað í nefndir KSÍ, en einnig hefur verið skipað í embætti stjórnar. Guðrún Inga Sívertsen er varaformaður, Borghildur Sigurðardóttir er gjaldkeri og Magnús Gylfason ritari.
23. apríl 2018
Þór/KA og Stjarnan mætast í dag í úrslitaleik Lengjubikars kvenna, en leikið er í Boganum á Akureyri og hefst leikurinn klukkan 17:15.