12. apríl 2018
A landslið karla er í 22. sæti á nýjum heimslista FIFA, en liðið féll um fjögur sæti frá síðustu útgáfu og er tekið tillit til úrslita þess gegn Mexíkó og Perú í mars.
12. apríl 2018
Undanúrslit Lengjubikars kvenna fara fram um helgina. Á föstudag mætast Breiðablik og Þór/KA á Leiknisvelli klukkan 19:15 og á sunnudaginn mætast Valur og Stjarnan á Valsvelli klukkan 16:00.
11. apríl 2018
U16 ára landslið kvenna vann 9-0 sigur á Litháen á UEFA Development Tournament, en leikið er í Gargzdai í Litháen. Það voru þær Clara Sigurðardóttir, Birta Georgsdóttir, Ólöf Sigríður Kristinsdóttir, Andrea Marý Sigurjónsdóttir, María Catharina Ólafsd. Gros og Ragna Guðrún Guðmundsdóttir sem skoruðu mörk Íslands.
11. apríl 2018
KSÍ fékk á dögunum viðurkenningu frá UEFA fyrir háttvísi íslenskra landsliða og félagsliða í keppnum á vegum sambandsins. Þrjú lönd fengu verðlaunin og fékk hvert þeirra 50 þúsund evrur í styrk frá UEFA til að styrkja „fair play“ verkefni. Niðurstaðan var sú að fjögur verkefni fengu úthlutaðan styrk frá UEFA.
11. apríl 2018
11. apríl ár hvert er Alþjóðlegi Parkinson-dagurinn. Það er Knattspyrnusambandi Íslands mikil ánægja að tilkynna á þessum sérstaka degi að KSÍ hafi ákveðið verið að ganga til samstarfs við Parkinson-samtökin á Íslandi um samfélagslegt verkefni.
11. apríl 2018
Mjólkurbikarinn hefst á fimmtudaginn þegar keppni í meistaraflokki karla fer af stað, en þá fara fram sex leikir. Einnig verður leikið á föstudag, laugardag og sunnudag. Það verður því nóg um að vera á völlum landsins næstu daga.
10. apríl 2018
U16 ára landslið kvenna mætir Litháen á miðvikudaginn í öðrum leik sínum á UEFA Development Tournament. Leikurinn hefst klukkan 12:00 að íslenskum tíma, en leikið er í Gargzdai í Litháen.
10. apríl 2018
A landslið kvenna vann góðan 5-0 sigur í Færeyjum í dag, en það voru Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Harpa Þorsteinsdóttir, Rakel Hönnudóttir, Fanndís Friðriksdóttir og Agla María Albertsdóttir sem skoruðu mörk Íslands.
10. apríl 2018
A landslið kvenna mætir Færeyjum í dag og hefur Freyr Alexandersson opinberað byrjunarlið liðsins í leiknum.
10. apríl 2018
Áhersluatriði dómaranefndar fyrir komandi tímabil eru að stórum hluta þau sömu á síðasta keppnistímabili. Sú breyting er þó á að dómurum ber að taka af festu á óviðeigandi hegðun leikmanna og forráðamanna utan vallar sem innan.
10. apríl 2018
Þriðjudaginn 24. apríl kl. 14:00 verður kynningarfundur á breytingum á knattspyrnulögunum og áhersluatriðum dómaranefndar. Æskilegt er að fyrirliði meistaraflokks, þjálfari meistaraflokks og yfirþjálfari félagsins mæti á fundinn. Um töluverðar breytingar er að ræða og því er mikilvægt að fulltrúi félaga mæti á fundinn.
9. apríl 2018
Valur er Lengjubikarmeistari í meistaraflokki karla, en liðið vann 4-2 sigur á Grindavík í úrslitaleik keppninnar. Leikurinn fór fram á Eimskipsvellinum í Laugardal og skoruðu Sigurður Egill Lárusson, Haukur Páll Sigurðsson og Guðjón Pétur Lýðsson mörk Valsmanna.
9. apríl 2018
Alþjóðanefnd knattspyrnusambanda, IFAB, hefur gert nokkrar breytingar á knattspyrnulögunum, sem taka gildi á komandi keppnistímabili í mótum KSÍ. Hér verður stiklað á stóru yfir helstu breytingarnar en þær eru síðan allar tíundaðar í meðfylgjandi skjali.
9. apríl 2018
U16 ára landslið kvenna vann 3-0 sigur á Eistlandi í fyrsta leik liðsins á UEFA Development Tournament. Jana Sól Valdimarsdóttir skoraði tvö mörk og Ólöf Sigríður Kristinsdóttir eitt.
9. apríl 2018
Byrjendanámskeið verður haldið fyrir dómara hjá ÍA í Íþróttamiðstöðinni að Jaðarsbökkum miðvikudaginn 17. apríl, en það hefst klukkan 19:00.
9. apríl 2018
Hæfileikamótun N1 og KSÍ verður í Vestmannaeyjum 10.-11. apríl næstkomandi með æfingar fyrir 4. flokk karla og kvenna. Þorlákur Árnason, yfirmaður Hæfileikamótunar N1 og KSÍ, sér um æfingarnar.
9. apríl 2018
KSÍ hefur tekið saman lista til upplýsinga fyrir félögin um þá leikmenn í meistaraflokki sem eiga eftir að taka út leikbönn í Mjólkurbikarnum vegna leikja fyrir keppnistímabilið 2017.
9. apríl 2018
Valur og Grindavík mætast í dag í úrslitaleik Lengjubikars karla, en leikið er á Eimskipsvellinum í Laugardal og hefst leikurinn klukkan 19:30.