Search
SÍA
Vilhjálmur Alvar dæmir í Grikklandi

23. mars 2018

Vilhjálmur Alvar dæmir í Grikklandi

Vilhjálmar Alvar Þórarinsson mun dæma leik Grikklands og Tékklands í undankeppni EM U21 karla, en leikið verður í Xanthi í Grikklandi.

Dómaramál

23. mars 2018

Vilhjálmur Alvar dæmir í Grikklandi

Vilhjálmar Alvar Þórarinsson mun dæma leik Grikklands og Tékklands í undankeppni EM U21 karla, en leikið verður í Xanthi í Grikklandi.

Dómaramál

23. mars 2018

Fjórða leikmannaskiptingin leyfð í framlengingu

Alþjóðanefnd knattspyrnusambanda (IFAB) hefur nýlega samþykkt breytingar á knattspyrnulögunum og er ætlunin að þær taki gildi fyrir komandi keppnistímabil hér á landi. Ísland er þar með, nú sem oft áður, fyrst þjóða til að taka breytingarnar til framkvæmda. 

Dómaramál

23. mars 2018

VAR-dómgæsla og 4. skiptingin í framlengingu

Á 132. ársfundi Alþjóðanefndar knattspyrnusambanda (IFAB) sem haldinn var í Zürich í byrjun þessa mánaðar voru ákvæðin um "vídeó-aðstoðardómgæslu" (VAR =Video Assistant Referees) formlega skrifuð inn í sjálf knattspyrnulögin.

Pistlar

23. mars 2018

A karla - Byrjunarliðið gegn Mexíkó

Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari A karla, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Mexíkó. Rúnar Alex Rúnarsson og Albert Guðmundsson eru báðir í byrjunarliðinu í dag.

Landslið

23. mars 2018

Styrkleikalisti FIFA kvenna - Ísland upp um eitt sæti

Íslenska kvennalandsliðið er í 19. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í morgun.  Fer liðið upp um eitt sæti frá síðasta lísta en af Evróipuþjóðunum er Ísland í 11. sæti.  Bandaríkin eru í efsta sæti listans en England, sem hefur sætaskipti við Þýskaland, er í öðru sæti.

Landslið

22. mars 2018

U21 karla - Írar höfðu betur í Dublin

Strákarnir í U21 biðu lægri hlut gegn Írum í vináttulandsleik sem fram fór í Dublin í kvöld,  Lokatölur urðu 3 - 1 fyrir heimamenn, sem leiddu 2 - 0 í leikhléi.  Leikurinn var undirbúningur fyrir leik gegn Norður Írum í undankeppni EM sem fram fer á þriðjudaginn.

Landslið

22. mars 2018

Milliriðill EM U17 kvenna:  Ísland vann Írland

U17 landslið kvenna lék í dag fyrsta leik sinn í milliriðli EM 2018, en leikið er í Þýskalandi.  Mótherjinn var Írland og var um hörkuleik að ræða.  Svo fór að Ísland hafði 2-1 sigur og mætir Þýskalandi, sem vann sinn leik 5-0, á sunnudag í næstu umferð.

Landslið

22. mars 2018

A karla - Ísland mætir Mexíkó í dag á Levi's Stadium

A landslið karla mætir Mexíkó á föstudaginn, en leikurinn fer fram á Levi's Stadium í San Fransisco og hefst hann klukkan 02:00 aðfararnótt laugardags að íslenskum tíma.

Landslið

22. mars 2018

A kvenna - Hópurinn sem mætir Slóveníu og Færeyjum

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn sem mætir Slóveníu og Færeyjum í undankeppni HM.  Leikið er ytra og fara leikirnr fram 6. og 10. apríl.  Ísland er í harðri baráttu um sæti á HM í Frakklandi 2019 og hefur tapað fæstum stigum allra þjóða í riðlinum.

Landslið

21. mars 2018

HM styttan kemur til Íslands

Þann 25. mars næstkomandi mun hinn eini sanni HM-bikar koma til Íslands í boði Coca-Cola. Um er að ræða þaulskipulagt ferðalag til yfir 50 landa  Íslenskir aðdáendur fá því tækifæri til að virða fyrir sér eftirsóttasta verðlaunagrip knattspyrnunnar.  Bikarinn verður til sýnis í  Smáralindinn, sunnudaginn 25. mars, á milli kl.14 - 18.

Landslið

21. mars 2018

U17 kvenna - Mæta Írlandi í fyrsta leik liðsins í milliriðlum undankeppni EM 2018

U17 ára lið kvenna mætir Írlandi fimmtudaginn 22. mars í fyrsta leik liðsins í milliriðlum undankeppni EM 2018. Riðillinn fer fram í Þýskalandi og ásamt heimamönnum eru Ísland, Írland og Aserbaídsjan í honum.

Landslið

21. mars 2018

U21 karla - Ísland mætir Írlandi á fimmtudaginn

U21 ára lið karla mætir Írlandi fimmtudaginn 22. mars, en um er að ræða vináttuleik og fer hann fram á Tallaght Stadium í Dublin.

Landslið

20. mars 2018

Námskeið fyrir aðstoðardómara á Akureyri laugardaginn 31. mars

Námskeið fyrir aðstoðardómara verður haldið laugardaginn 31. mars í Hamri (Þórsheimilinu) og hefst það kl. 10:00. Bryngeir Valdimarsson FIFA aðstoðardómari mun fara yfir ýmis lykilatriði í aðstoðardómgæslunni.

Dómaramál

20. mars 2018

Hæfileikamótun KSÍ og N1 í Reykjavík

Þorlákur Árnason, yfirmaður Hæfileikamótunar KSÍ og N1, hefur kynnt hópa fyrir æfingar í Reykjavík dagana 27.-28. mars. Æfingarnar fara fram í Egilshöll, en stúlkur æfa 27. mars og piltar 28. mars.

Fræðsla

20. mars 2018

U16 karla - Hópurinn sem fer á UEFA Development Tournament

Davíð Snorri Jónasson, landsliðsþjálfari U16 karla, hefur valið hóp til þáttöku í UEFA Development Tournament U16 karla.

Landslið

19. mars 2018

Ívar Orri og Birkir dæma í Póllandi

Ívar Orri Kristjánsson dómari og Birkir Sigurðarson aðstoðardómari verða við störf næstu daga í Pólland, en þar fer fram einn af milliðriðlum EM hjá U17 karla. Þjóðirnar sem leika í þessum riðli eru auk heimamanna Írland, Georgía og Makedónía.

Dómaramál

19. mars 2018

U16 kvenna - Hópurinn sem fer á UEFA Development Tournament

Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U16 kvenna, hefur valið hóp til þáttöku í UEFA Development Tournament U16 kvenna. Mótið fer fram í Klaipeda í Litháen dagana 8.-13. apríl.

Landslið