31. ágúst 2017
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið eftirfarandi leikmenn til þátttöku á æfingum dagana 8.- og 9.september. Eru æfingarnar liður í undirbúningi fyrir undankeppni Evrópumótsins, en Ísland mun leika í Finnlandi.
31. ágúst 2017
Þessa dagana er Hæfileikamótun N1 og KSÍ að fara af stað og er það Dean Martin sem fer fyrir verkefninu. Verður hún föstudaginn 1. september á Akureyri.
30. ágúst 2017
Sunnudaginn 27. ágúst útskrifuðust 11 þjálfarar með KSÍ Afreksþjálfun Unglinga (UEFA Elita A Youth) þjálfaragráðu. Eins og nafnið gefur til kynna er efni námskeiðsins helgað því hvernig vinna skuli með efnilegum leikmönnum á aldrinum 15-19 ára.
29. ágúst 2017
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn sem mætir Færeyjum í undankeppni HM.  Leikið verður á Laugardalsvelli, mánudaginn 18. september kl. 18:15 en þetta er fyrsti leikur íslenska liðsins í undankeppni fyrir HM í Frakklandi 2019.
28. ágúst 2017
KSÍ vill benda miðakaupendum að enn eru ósóttir miðar fyrir leikinn gegn Finnlandi á skrifstofu KSÍ. Síðasti dagur til að sækja þá er á morgun, þriðjudaginn 29. ágúst.
28. ágúst 2017
U-18 ára landslið karla tók í síðustu viku þátt í átta liða móti í Tékklandi þar sem það var í riðli með Tékklandi, Slóvakíu og Úkraínu. Ísland endaði mótið í 4. sæti, eftir tap fyrir Bandaríkjunum í leik um 3.-4. sæti.
28. ágúst 2017
Leikmenn A landsliðs karla eru nú komnir til Finnlands og dvelja næstu daga í Helsinki þar sem liðið undirbýr sig fyrir leikina mikilvægu gegn Finnlandi og Úkraínu í undankeppni HM 2018.
28. ágúst 2017
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dómari og Oddur Helgi Guðmundsson aðstoðardómari verða næstu dag við störf í vináttumóti U19 landsliða karla. Mótið sem þeir eru að dæma á fer fram í Finnlandi og auk heimamanna taka þátt lið Hollands, Belgíu og Portúgal.
25. ágúst 2017
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn sem mætir Finnlandi og Úkraínu í undankeppni HM 2018. Leikurinn gegn Finnum fer fram í Tampere laugardaginn 2. september og hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma en leikurinn gegn Úkraínu verður á Laugardalsvelli þriðjudaginn 5. september kl. 18:45.
24. ágúst 2017
Þórður Þórðarson, landsliðsþjálfari U-19 kvenna, hefur valið landsliðshópinn sem leikur í undankeppni Evrópumótsins sem leikinn verður í Þýskalandi 10.-19. september næstkomandi.
23. ágúst 2017
Nú líður að háannatímabili í ráðningarmálum knattspyrnuþjálfara. Af því tilefni vill stjórn Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands (KÞÍ) beina nokkrum atriðum/heilræðum til þjálfara og íþróttafélaga við ráðningarferli þjálfara.
23. ágúst 2017
Strákarnir í U18 lögðu Slóvaka í öðrum leik sínum á Tékklandsmótinu og urðu lokatölur 3 - 0 eftir að íslenska liðið hafði leitt með tveimur mörkum í leikhléi. Dagur Dan Þórhallsson skoraði 2 mörk úr vítaspyrnum í fyrri hálfleik og Ágúst Hlynsson bætti við þriðja markinu undir lok leiksins.
23. ágúst 2017
Enn er nokkuð af miðum sem bíða afhendingar á leik Finnlands og Íslands í undankeppni HM en leikurinn fer fram í Tampere, laugardaginn 2. september. Þeir sem keyptu miðana í gegnum miðasölukerfi hja midi.is þurfa að sækja miðana á skrifstofu KSÍ á Laugardalsvelli á milli 08:30 og 16:00.
23. ágúst 2017
Ísland leikur gegn Tyrklandi föstudaginn 6. október í undankeppni HM 2018. Tyrkir hafa nú staðfest hvar leikurinn fer fram, en hann verður á Eskişehir Yeni Stadyumu í Eskisehir.
22. ágúst 2017
Strákarnir í U18 töpuðu fyrsta leik sínum á Tékklandsmótinu í dag en leikið var gegn heimamönnum.  Lokatölur urðu 3 - 0 fyrir Tékka en það er skammt stórra högga á milli því að strákarnir eru aftur á ferðinni í fyrramálið þegar leikið verður gegn Slóvakíu.  Sá leikur hefst kl. 09:00 að íslenskum tíma.
22. ágúst 2017
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 landsliðs karla, hefur valið hópinn sem mætir Albaníu í riðlakeppni EM19 á Vikingsvelli 4. september.
22. ágúst 2017
Þorvaldur Örlygsson, landsliðsþjálfari U18 landsliðs karla, hefur valið landsliðshóp sem tekur þátt í alþjóðlegu móti í Tékklandi síðar í þessum mánuði.
21. ágúst 2017
Handhafar A og DE skírteina frá KSÍ fá afhenta aðgöngumiða á leik Íslands og Úkraínu í undankeppni HM A landsliða karla, fimmtudaginn 24. ágúst frá kl. 12:00 á hádegi til kl. 16:00, eða á meðan birgðir endast. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.