Search
SÍA

11. ágúst 2014

Úrtökumót drengja 15.-17. ágúst

Úrtökumót drengja (fæddir 1999) fer fram að Laugarvatni um næstu helgi.  Umsjón með mótinu hefur Þorlákur Árnason þjálfari U17 landsliðs karla.  Alls hafa 64 drengir frá félögum víðs vegar af landinu verið boðaðir til æfinga.

Landslið

11. ágúst 2014

Opnað fyrir mótsmiðasölu kl 12:00 í dag, mánudag!

Opnað verður fyrir mótsmiðasölu á leiki Íslands í undankeppni EM 2016 kl. 12:00 á hádegi í dag, mánudag.  Mótsmiðahafi hefur tryggt sér sama sæti á á Laugardalsvelli á öllum fimm heimaleikjum íslenska liðsins í undankeppninni. 

Landslið

11. ágúst 2014

Gæðavottun leyfiskerfis KSÍ framlengd til 2015

Í síðustu viku framkvæmdi fulltrúi SGS gæðaúttekt á leyfiskerfi KSÍ.  SGS er alþjóðlegt vottunarfyrirtæki sem framkvæmir árlegar úttektir á leyfiskerfum aðildarlanda UEFA og gildir hver vottun í eitt ár.  Gæðavottun á leyfiskerfi KSÍ hefur verið framlengt í eitt ár.

Leyfiskerfi

11. ágúst 2014

Sala mótsmiða fer vel af stað

Sala mótsmiða á alla heimaleiki Íslands í undankeppni EM 2016 hefur farið vel af stað og seldist m.a. upp í ódýrasta svæðið á stuttum tíma.  Miðasölunni hefur verið lokað um sinn og verður opnuð að nýju, þegar fleiri miðum hefur verið bætt í sölu.  

Landslið

11. ágúst 2014

Glæsilegur hópur á úrtökumóti stúlkna

Úrtökumót KSÍ fyrir stúlkur var haldið að Laugarvatni dagana 8.-10. ágúst.  Hópurinn sem tók þátt var glæsilegur og greinilegt að þarna var samankominn hópur efnilegra knattspyrnustúlkna sem á vonandi eftir að láta mikið að sér kveðja í framtíðinni.

Landslið

8. ágúst 2014

Mótsmiðar á alla heimaleiki Íslands í undankeppni EM 2016

Í fyrsta sinn verður nú hægt að kaupa mótsmiða sem gildir á alla fimm heimaleiki Íslands í undankeppninni.  Mótsmiðahafi hefur tryggt sér sama sæti á öllum fimm heimaleikjum íslenska liðsins í undankeppninni.  Að auki fá mótsmiðahafar forkaupsrétt á aðgöngumiðum fyrir vináttuleiki A landsliðs karla. 

Landslið

8. ágúst 2014

Nýr landsliðsbúningur kynntur

Nýr landsliðsbúningur Íslands í knattspyrnu var kynntur til sögunnar með formlegum hætti á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í dag, föstudag.  Hönnun búningsins er íslensk og er innblásin af íslenska fánanum.  

Landslið

8. ágúst 2014

Færeyskur dómari á toppslag í 2. deild karla

ÍR og Grótta mætast í toppslag í 2. deild karla í dag, föstudag.  Leikið er á Hertz-vellinum og hefst leikurinn kl. 19:00.  Dómarinn í leiknum heitir Dagfinn Forná og kemur hann frá Færeyjum. 

Dómaramál

7. ágúst 2014

Hæfileikamótun KSÍ og N1 á Ísafirði 11. ágúst

Hæfileikamótun KSÍ og N1 verður mánudaginn 11. ágúst  á Ísafirði.  Strákar æfa frá 09.45 - 11.00 og stelpur frá 11.00 - 12.15.  Þá verður markmannsæfing fyrir 15 ára og eldri kl. 12.15 og fyrir 10-12 ára kl.13.00 í umsjón Þóru B. Helgadóttur landsliðsmarkmanns.

Fræðsla

7. ágúst 2014

Viltu taka þátt í skemmtilegu og gefandi verkefni?

Árið 2015 verður úrslitakeppni EM U17 kvenna haldin á Íslandi. Um er að ræða eitt stærsta verkefni sem KSÍ hefur tekið að sér og því leitar KSÍ eftir aðstoð sjálfboðaliða, sem munu koma til með að gegna lykilhlutverki í framkvæmd mótsins.  Viltu taka þátt í skemmtilegu og gefandi verkefni?

Landslið

6. ágúst 2014

U17 karla hafnaði í 7. sæti á Opna NM

U17 landslið karla hafnaði í 7. sæti á nýafstöðnu Opnu Norðurlandamóti, sem fram fór í Danmörku.  Íslenska liðið lék við Færeyjar um 7.-8. sætið og hafði þar 2-0 sigur með mörkum frá Erlingi Agnarssyni á 6. mínútu og Mána A. Hilmarssyni á 70. mínútu.  

Landslið

6. ágúst 2014

Hæfileikamótun KSÍ og N1 í Fjarðabyggðarhöllinni 8. ágúst

Hæfileikamótun KSÍ og N1 verður föstudaginn 8.ágúst í Fjarðabyggðahöllinni á Reyðarfirði. Strákar æfa frá 10.00-11.15 og stelpur frá 11.15-12.30.  Þá verður markmannsæfing fyrir 15 ára og eldri kl.13.00 í umsjón Þóru B. Helgadóttur landsliðsmarkmanns.

Fræðsla

6. ágúst 2014

Stjarnan leitar að yfirþjálfara yngri flokka

Stjarnan leitar að yfirþjálfara yngri flokka knattspyrnudeildar.  Yfirþjálfari hefur yfirumsjón með og ber ábyrgð á öllu faglegu barna- og unglingastarfi knattspyrnudeildar í samráði við barna- og unglingaráð og framkvæmdastjóra.

Fræðsla

1. ágúst 2014

U17 karla - Markalaust jafntefli gegn Finnum

Strákarnir í U17 gerðu markalaust jafntefli gegn Finnum í lokaleik liðsins í riðlakeppni Norðurlandamótsins sem fram fer í Danmörku.  Ísland leikur því um sjöunda sætið gegn Færeyingum og fer sá leikur fram á laugardaginn.

Landslið

31. júlí 2014

U17 karla - Leikið gegn Finnum í dag

Strákarnir í U17 leika í dag lokaleik sinn í riðlakeppni Norðurlandamótsins í Danmörku og hefst leikurinn kl .16:00.  Mótherjarnir eru Finnar en leikið verður í Kolding.  Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið.

Landslið

30. júlí 2014

U15 karla - Æfingar og fundur hjá hópnum

Freyr Sverrisson, landsliðsþjálfari U15 karla, hefur boðað hóp á æfingar og kynningarfund fyrir Ólympíuleika ungmenna.  Hópurinn er boðaður á fjórar æfingar á næstu dögum sem og á kynningarfund fyrir leikmenn og foreldra.

Landslið

30. júlí 2014

A karla - Vináttulandsleikur gegn Belgum 12. nóvember

Knattspyrnusambönd Íslands og Belgíu hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik í Brussel miðvikudaginn 12. nóvember næstkomandi.  Þetta verður í níunda skiptið sem karlalandslið þjóðanna mætast en Belgar hafa haft sigur í öll skiptin hingað til.

Landslið

30. júlí 2014

U17 karla - Naumt tap gegn Svíum

Strákarnir í U17 töpuðu gegn Svíum í öðrum leik þeirra á Norðurlandamótinu sem fram fer í Danmörku.  Eftir að markalaust hafði verið í leikhléi skoruðu Svíar eina mark leiksins í síðari hálfleik og tryggðu sér sigur.

Landslið