6. apríl 2014
Kvennalandsliðið kom til Valetta í Möltu í dag eftir næturferðalag frá Tel Aviv. Leikið verður gegn heimastúlkum næstkomandi fimmtudag, 10. apríl, og hefst leikurinn kl. 14:00 að staðartíma eða kl. 12:00 að íslenskum tíma.
5. apríl 2014
Kvennalandsliðið vann sanngjarnan sigur á Ísrael í kvöld í undankeppn HM en leikið var á Ramat Gan vellinum. Lokatölur urðu 1- 0 fyrir okkar stúlkum eftir að markalaust hafði verið í leikhléi.  Dagný Brynjarsdóttir skoraði eina mark leiksins á 60. mínútu.  Næsti leikur Íslands er gegn Möltu og fer hann fram fimmtudaginn 10. apríl í Valetta.
5. apríl 2014
Stelpurnar í U19 hófu í dag leik í milliriðlum EM en riðill þeirra er leikinn í Króatíu. Stelpurnar biðu lægri hlut gegn Skotum, 5 - 1, eftir að Skotar höfðu leitt í leikhléi, 3 - 1.  Næsti leikur Íslands gegn Rússum sem fram fer á mánudaginn. Tómas Þóroddsson sendi okkur eftirfarandi skýrslu um leikinn.
5. apríl 2014
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Ísrael í undankeppni HM.  Leikið er á Ramat Gan vellinum í Tel Aviv og hefst leikurinn kl. 17:30 að íslenskum tíma eða kl. 20:30 að staðartíma.
5. apríl 2014
Ísland mætir Ísrael í kvöld í undakeppni HM 2015 og fer leikurinn fram á Ramat Gan vellinum í Tel Aviv. Leikurinn hefst kl. 20.30 að staðartíma eða kl. 17:30 að íslenskum tíma. Við heyrðum aðeins í landsliðsþjálfaranum Frey Alexanderssyni fyrir leikinn.
4. apríl 2014
KSÍ mun standa fyrir sérstökum vinnufundi um málefni stuðningsmanna í höfuðstöðvum sambandsins fimmtudaginn 10. apríl.  Stjórnandi fundarins verður Stuart Dykes, sem hefur unnið mikið starf fyrir samtökin Supporters Direct
4. apríl 2014
Kvennalandsliðið undirbýr sig nú af kappi fyrir leikinn mikilvæga gegn Ísrael sem fram fer á morgun, laugardaginn 5. apríl.  Leikurinn fer fram á þjóðarleikvangnum, Ramat Gan, og hefst kl. 17:30 að íslenskum tíma.
3. apríl 2014
A landslið kvenna mætir Ísrael og Möltu í undankeppni HM 2015 á næstu dögum.  Fyrst er leikið við Ísrael í Ramat Gan laugardaginn 5. apríl, og svo við heimamenn á Möltu þann 10. apríl.  Ísland hefur mætt hvorugu liðinu áður.
3. apríl 2014
Þann 10. apríl fer fram unglingadómaranámskeið í höfuðstöðvum KSÍ.  Námskeiðið er það síðasta sem haldið verður í Reykjavík í bili. Í október verður síðan aftur farið af stað með námskeiðahald hjá þeim félögum sem þess óska.
3. apríl 2014
Kvennalandsliðið er komið til Ísrael, nánar tiltekið Tel Aviv en þangað kom liðið seint í gærkvöldi eftir langt ferðalag.  Framundan er leikur gegn heimastúlkum í undankeppni HM en leikið verður á laugardaginn.  Liðið heldur svo til Möltu þar sem leikið verður, í sömu keppni, fimmtudaginn 10. apríl.
1. apríl 2014
Þorlákur Már Árnason, þjálfari U17 landsliðs karla, hefur valið 18 leikmenn fyrir undirbúningsmót UEFA sem verður leikið Norður-Írlandi í apríl.  Auk Íslendinga leika Norður-Írar, Wales-menn og Færeyingar í mótinu, og eru liðin skipuð leikmönnum fæddum 1998 og síðar.
1. apríl 2014
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið 18 leikmenn í landslið Íslands sem tekur þátt í undirbúningsmóti UEFA í Belfast í apríl. Um er að ræða fjögurra liða mót fyrir leikmenn fædda 1998 og síðar.
1. apríl 2014
A landslið kvenna heldur í 10 daga reisu suður á bóginn þriðjudaginn 2. apríl.  Tilgangur ferðarinnar er tveir leikir í undankeppni HM 2015, gegn Ísrael og Möltu.  Ferðalagið er langt og viðamikið og er stefnan sett á að koma heim með sex stig í farteskinu.
31. mars 2014
U17 landslið karla tapaði með þremur mörkum í dag, mánudag, í síðasta leik sínum í milliriðli fyrir EM. Portúgal hafði unnið báða sína leiki í milliriðli fyrir EM U17 karla, gegn Lettlandi og Úkraínu, með sömu markatölu, 3-0, og sú varð einnig raunin gegn Íslandi.
31. mars 2014
Breyting hefur verið gerð á leikmannahópi U19  kvenna fyrir milliriðla EM, sem fram fara í Króatíu í apríl.  Sandra María Jessen er meidd og getur ekki leikið með íslenska liðinu, og í hennar stað hefur Lillý Rut Hlynsdóttir verið valin.
31. mars 2014
Miðvikudaginn 2. apríl klukkan mun KSÍ standa fyrir fundi þar sem viðfangsefnið er ferðakostnaður knattspyrnufélaga. Fundurinn verður í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardalnum, 3. hæð og verður sýndur beint á Sport TV
31. mars 2014
Þorlákur Már Árnason, þjálfari U17 landsliðs karla, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands fyrir lokaleik liðsins í milliriðili EM, sem fram fer í dag, mánudag, og hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma.  Mótherji dagsins er Portúgal, en milliriðillinn er einmitt leikinn þar í landi.
31. mars 2014
Fyrrverandi kennarar við Varmárskóla í Mosfellsbæ og makar þeirra komu saman í höfuðstöðvum KSÍ í vikunni sem leið.  Um er að ræða mánaðarlega kynnisferð þessa hóps.  Það voru þeir Ásgrímur og Stefán Teitur, 10. bekkjarnemendur af Akranesi, sem tóku myndirnar með þessari frétt.