24. mars 2014
Úrslitakeppni EM U17 landsliða kvenna fer fram á Íslandi sumarið 2015.  Undirbúningur er þegar hafinn, bæði hjá UEFA og KSÍ og mun sendinefnd frá UEFA heimsækja Ísland í þessari viku.  Fundað verður um ýmis mál og aðstæður skoðaðar.
24. mars 2014
Þó svo að þátttökuleyfi hafi verið gefin út af leyfisráði til handa öllum 24 félögunum sem undirgangast leyfiskerfið er vinnunni ekki lokið. Fjárhagskröfurnar eru stífar og þá sérstaklega gagnvart því að ekki sé um vanskil að ræða gagnvart öðrum félögum, og svo gagnvart leikmönnum og þjálfurum.
21. mars 2014
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur gert breytingu á hópnum sem leikur í milliriðli fyrir EM í Portúgal. Birkir Guðmundsson, úr Aftureldingu, kemur inn í hópinn í stað Alberts Guðmundssonar sem fær ekki leyfi frá félagi sínu, Heerenveen í Hollandi, til að taka þátt í þessu móti.
21. mars 2014
Héraðsdómaranámskeið verður haldið í Sókninni 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ fimmtudaginn 27. mars kl. 19:00. Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara. Gunnar Jarl Jónsson FIFA dómari mun kenna á námskeiðinu.
19. mars 2014
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hópinn sem leikur í milliriðli EM í Portúgal dagana 26. - 31. mars.  Mótherjarnir verða, auk heimamanna, Lettar og Úkraínumenn en fyrsti leikurinn er gegn síðastnefndu þjóðinni.
19. mars 2014
Miðvikudaginn 26. mars klukkan 12.00-13.00 mun KSÍ standa fyrir fundi þar sem viðfangsefnið er ferðakostnaður knattspyrnufélaga. Fundurinn verður í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardalnum, 3. hæð. Fyrirlesarar eru Halla Kjartansdóttir og Bjarni Ólafur Birkisson.
18. mars 2014
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar, sem haldinn var 13. mars var m.a. skipað í embætti innan stjórnar sem og skipað í fastanefndir KSÍ. Gísli Gíslason er nýr ritari stjórnar og Jóhannes Ólafsson kemur nýr inn í stjórn Knattspyrnusambandsins ásamt því að Ingvar Guðjónsson kemur inn í varastjórn.
17. mars 2014
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið 28 leikmenn á úrtaksæfingar sem fram fara helgina 22. og 23. mars. Æfingarnar fara fram í Kórnum og á sunnudeginum verður leikinn æfignaleikur í Egilshöll.
17. mars 2014
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og Ívar Orri Kristjánsson halda til Englands í vikunni þar sem þeir munu m.a. fylgjast með undirbúningi dómara í ensku úrvalsdeildinni. Þeir munu einnig starfa á leikjum í U21 deildinni í Englandi sem og sækja ráðstefnu úrvaldsdeildardómara og aðstoðardómara.
14. mars 2014
Seinni fundur leyfisráðs í leyfisferlinu fyrir keppnistímabilið 2014 fór fram í dag, föstudaginn 14. mars.   Niðurstaðan var sú að allar umsóknir voru samþykktar og hafa öll 24 félögin því fengið útgefin leyfi fyrir sumarið.
13. mars 2014
Stelpurnar í U19 biðu lægri hlut gegn stöllum sínum frá Finnlandi í síðari vináttulandsleik liðanna sem leikinn var í Finnlandi. Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir heimastúlkur sem leiddu með einu marki í leikhléi.
13. mars 2014
Íslenska karlalandsliðið fellur niður um fjögur sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem birtur var í dag. Ísland er í 52. sæti listans en sem fyrr eru Spánverjar á toppnum og Þjóðverjar koma þar næstir.
13. mars 2014
Knattspyrnusambönd Íslands og Eistlands hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 4. júní. Samkomulagið felur einnig í sér að þjóðirnar mætist aftur í Tallinn, 31. mars 2015.
13. mars 2014
Stelpurnar í U19 leika í dag, seinni vináttulandsleik sinn gegn Finnum en leikið er í Eerikkilä Sport School. Fyrri leiknum lauk með 4 - 1 sigri Finna og ljóst að erfiður leikur bíður stelpnanna í dag. Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið og má sjá það hér að neðan.
12. mars 2014
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Víking og hefst kl. 19:00. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri. Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.
12. mars 2014
Ísland tryggði sér þriðja sætið á Algarve mótinu sem lýkur í dag en þær lögðu Svía í frábærum leik, 2 - 1.  Þetta er aðeins í annað skiptið sem Ísland leggur Svíþjóð hjá A landsliði kvenna í 15 leikjum.
12. mars 2014
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Knattspyrnudeild UMFG og hefst kl. 20:00. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem verða 15 ára á almanaksárinu og eldri.
12. mars 2014
Dóra María Lárusdóttir leikur sinn 100 landsleik í dag fyrir íslenska landsliðið en liðið leikur við Svía um bronsið á Algarve-mótinu. Leikurinn hefst klukkan 11:00 og fer fram í Lagos.  Dóra verður fyrirliði íslenska liðsins en Freyr Alexandersson hefur tilkynnt byrjunarliðið og má sjá það að neðan.