Search
SÍA

17. febrúar 2014

Fyrirlestur um kynferðislegt ofbeldi innan íþrótta 21. febrúar

KSÍ stendur fyrir súpufundi föstudaginn 21. febrúar í höfuðstöðvum KSÍ frá 12.00-13.00. Aðgangur er frír og súpa og brauð í boði fyrir fundargesti.  Fyrirlesari er Hafdís Inga Hinriksdóttir en hún er með BA próf í félagsráðgjöf en sem lokaverkefni gerði hún litla rannsókn um kynferðislegt ofbeldi innan íþrótta.

Fræðsla

17. febrúar 2014

Hæfileikamótun KSÍ með æfingar í Reykjaneshöllinni

Hæfileikamótun KSÍ verður með æfingar í Reykjaneshöllinni miðvikudaginn 19.febrúar.  Æfingarnar eru fyrir 4.flokk og byrja stelpurnar kl.14.30 og strákarnir kl.16.00.  Hér fyrir neðan má sjá nafnalista þeirra sem boðaðir eru á þessar æfingar.

Fræðsla
Hæfileikamótun

15. febrúar 2014

Fram fékk Grasrótarverðlaun KSÍ

Fram hlaut sérstaka viður-kenningu fyrir besta grasrótarverkefni ársins 2013. Veturinn 2012-2013 hóf Knattspyrnudeild Fram tilraun með að bjóða upp á fótboltaæfingar á leikskólatímum fyrir börn á leikskólaaldri, þannig að börnin myndu æfa á þeim tímum dagsins sem þau voru í leikskólanum, en ekki seinnipart dags.

Ársþing

15. febrúar 2014

Barna- og unglingaráð Dalvíkur fékk Jafnréttisverðlaun KSÍ

Barna- og unglingaráð Dalvíkur fékk Jafnréttisverðlaun KSÍ á 68. ársþingi KSÍ. Verðlaunin fengu þau fyrir verkefni sem miðaði að því að fjölga iðkendum af erlendum uppruna og hefur gengið afar vel.

Ársþing

15. febrúar 2014

Stjarnan fékk Kvennabikarinn

Það var Stjarrnan sem hlaut Kvennabikarinn fyrir árið 2013 en það eru verðlaun fyrir háttvísi í Pepsi-deild kvenna.  Verðlaunin voru veitt á 68. ársþingi KSÍ sem haldið er í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri.

Ársþing

15. febrúar 2014

KR og Grindavík hlutu Dragostytturnar

KR og Grindavík fengu Dragostytturnar á 68. ársþingi KSÍ sem haldið er Menningarhúsinu Hofi.  Þá fengu HK, Fjarðabyggð og Árborg viðurkenningar fyrir prúðmannlegan leik í 2., 3. og 4. deild karla. Það var formaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, sem afhenti fulltrúum félaganna viðurkenninguna.

Ársþing

15. febrúar 2014

Setningarræða formanns á 68. ársþingi KSÍ 

Ársþing KSÍ, það 68. í röðinni, hefur verið sett en það fer fram í Menningahúsinu Hofi á Akureyri.  Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, setti þingið kl. 11:00 í morgun og hér að neðan má sjá setningarræðu formanns

Ársþing

15. febrúar 2014

68. ársþing KSÍ hafið - Fylgst með afgreiðslu tillagna hér

Hér að neðan má sjá tillögur sem KSÍ hefur borist og teknar verða til afgreiðslu á ársþinginu. Fylgst verður með framvindu þingsins hér á síðunni undir "Um KSÍ" og "Ársþing". 

Ársþing

15. febrúar 2014

68. ársþingi KSÍ lokið

Rétt í þessu var 68. ársþingi KSÍ að ljúka en það var haldið í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, sleit þinginu um kl. 16:00 og má sjá fréttir af afgreiðslu tillagna hér og aðrar fréttir af þinginu er hægt að finna hér.

Ársþing

15. febrúar 2014

Guðmundur Benediktsson fékk viðurkenningu

Guðmundur Benediktsson hlaut fjölmiðlaviðurkenningu á 68. ársþingi KSÍ sem fram fer á Akureyri. Guðmundur fær verðlaunin fyrir að hafa glætt útvarpslýsingar frá fótboltaleikjum nýju lífi með eftirminnilegum hætti, svo eftir hefur verið tekið. Lýsingar hans eru lifandi, hrífandi, hnyttnar, áhugaverðar, spennandi og dramatískar.

Ársþing

15. febrúar 2014

Sex félög fengu viðurkenningu fyrir dómaramál

Verðlaun voru veitt sex félögum fyrir góða frammistöðu í dómaramálum. Sem fyrr þurfti að uppfylla 10 skilyrði til þess að teljast fyrirmyndarfélag í þeim efnum. FH, Fylkir, ÍA, KA, Sindri og Völsungur stóðust skilyrðin og teljast því vera fyrirmyndarfélög í dómaramálum 2013

Ársþing

13. febrúar 2014

Þingfulltrúar á 68. ársþingi KSÍ

Laugardaginn 15. febrúar næstkomandi fer fram 68. ársþing KSÍ í Hofi á Akureyri. Alls hafa 144 fulltrúar rétt til setu á þinginu, en nú þegar hefur kjörbréfum verið skilað fyrir 122 fulltrúa.Smellið hér að neðan til að skoða yfirlit yfir þá aðila sem tilkynntir hafa verið sem þingfulltrúar.

Ársþing

11. febrúar 2014

Dagskrá 68. ársþings KSÍ

Ársþing Knattspyrnusambands Íslands 2014, það 68. í röðinni, fer fram í Hofi á Akureyri laugardaginn 15. febrúar næstkomandi.  Afhending þinggagna hefst kl. 10:00.  Dagskrá þingsins má skoða með því að smella hér að neðan.

Ársþing

10. febrúar 2014

U17 karla - Tveir hópar á æfingum um helgina

Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið tvo hópa fyrir æfinga um komandi helgi en æfingarnar fara fram, sem fyrr, í Kórnum og Egilshöll. Alls eru 36 leikmenn boðaðir á þessar æfinga og má sjá hópana hér að neðan.

Landslið

10. febrúar 2014

Hæfileikamótun í Vestmannaeyjum - Dagskrá og nafnalisti

Hæfileikamótun KSÍ verður í Vestmannaeyjum dagana 11. - 12..febrúar. Þorlákur Árnason mun stjórna æfingum hjá stúlkum og drengjum á aldrinum 13 - 15 ára. Þá mun hann einnig funda með stjórn og þjálfurum ÍBV.

Fræðsla
Hæfileikamótun

10. febrúar 2014

Frábær árangur landsliða

Árið 2013 var afar gott knattspyrnuár. Árangurinn var í heildina þannig, að réttilega er liðið ár sagt hið besta í íslenskri knattspyrnusögu. Góð uppskera byggir á mörgum þáttum en fyrst og fremst á traustum grunni.

Pistlar

7. febrúar 2014

Góður árangur landsliða leiðir til aukinna útgjalda

KSÍ birtir nú ársreikning sinn fyrir árið 2013.  Rekstrartekjur KSÍ á árinu 2013 námu 972 milljónum króna samanborið við 842 milljónir króna á árinu 2012. Að teknu tilliti til fjármagnsliða er hagnaður af starfsemi KSÍ ríflega 57 milljónir króna.   Þegar tillit er tekið til styrkja og framlaga til aðildarfélaga var tap á rekstrinum að upphæð 28 milljónir króna. 

Ársþing

6. febrúar 2014

Unglingadómaranámskeið á Neskaupstað fimmtudaginn 13. febrúar

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Þrótt Neskaupstað og hefst kl. 18:00.  Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.  Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Dómaramál