Search
SÍA

10. janúar 2014

Þorlákur Árnason nýr starfsmaður fræðsludeildar

Þorlákur Árnason hefur verið ráðinn nýr starfsmaður fræðsludeildar KSÍ og er ráðning hans tímabundin til eins árs.  Þorlákur mun sinna hæfileikamótun ásamt því að vinna að stefnumótun fyrir landsliðin í samráði við fræðslustjóra, hæfileikanefnd, landsliðsnefndir og landsliðsþjálfara.

Fræðsla
Hæfileikamótun

10. janúar 2014

Námskeið í endurlífgun fyrir sjúkraþjálfara 10. og 11. febrúar

Námskeið í endurlífgun verður haldið fyrir sjúkraþjálfara þann 10. og 11. febrúar 2014.  Um eitt námskeið er að ræða en hægt að velja á milli tveggja dagsetninga. Námskeiðið hefst kl. 17:00 báða dagana og lýkur um kl. 22:00. Hámarksfjöldi á hvort námskeið 24 og þarf að skrá sig hjá KSÍ fyrir 1. febrúar 2014.

Fræðsla

10. janúar 2014

Skila þarf umsóknum í Ferðasjóð íþróttafélaga fyrir miðnætti 10. janúar

Aðildarfélög KSÍ eru minnt á að umsóknarfrestur í Ferðasjóð íþróttafélaga er til miðnættis, föstudagsins 10. janúar.  Aðildarfélög eru hvött til þess að nýta sér þennan sjóð en öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrk úr sjóðnum.

Fræðsla

10. janúar 2014

Fundað með endurskoðendum um fjárhagslegar viðmiðunarreglur

Á fimmtudag var fundað með endurskoðendum þeirra félaga sem undirgangast leyfiskerfi KSÍ.  Megininntak fundarins að þessu sinni var yfirferð á reglum um skuldabyrði og eiginfjárstöðu félaga, sem taka gildi í leyfisferlinu fyrir keppnistímabilið 2014.

Leyfiskerfi

8. janúar 2014

A karla - Vináttulandsleikur gegn Austurríki

Knattspyrnusambönd Íslands og Austurríkis hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik þann 30. maí næstkomandi. Leikið verður í Austurríki en þetta er í þriðja skiptið sem karlalandslið þessara þjóða mætast.

Landslið

7. janúar 2014

Unglingadómaranámskeið hjá Breiðabliki þriðjudaginn 14. janúar

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Breiðablik og hefst kl. 19:30. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.  Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Dómaramál

7. janúar 2014

KSÍ IV þjálfaranámskeið 24.-26. janúar 2014

KSÍ IV þjálfaranámskeið verður haldið á höfuðborgarsvæðinu helgina 24.-26. janúar 2014. Dagskrá námskeiðsins má sjá hér að neðan.  Þátttökurétt hafa allir þjálfarar sem setið hafa KSÍ III þjálfaranámskeið og skilað verkefni af því námskeiði.

Fræðsla

7. janúar 2014

Rúna Kristín: „Það er hægt að vinna sig hratt upp í dómgæslunni”

Rúna Kristín Stefánsdóttir er ungur og efnilegur dómari. Hún hefur dæmt í efstu deildum hér heima, er á þriðja ári sem FIFA-dómari og hún hefur unnið sig hratt upp metorðastigann. Rúna sótti nýverið CORE-dómaranámskeið á vegum UEFA og við settum okkur í samband við Rúnu til að ræða dómaramálin og hvernig það er að vera kvendómari á Íslandi.

Dómaramál

6. janúar 2014

Dregið í riðla fyrir undankeppni EM 2016 í febrúar

Dregið verður í riðla í undankeppni EM 2016 þann 23. febrúar næstkomandi.  Drátturinn fer fram í Acropolis Congress Center í Nice í Frakklandi, en úrslitakeppnin fer sem kunnugt er fram þar í landi.  Í úrslitakeppninni 2016 verða í fyrsta sinn 24 lið, fleiri en nokkru sinni áður, en þetta er í 15. sinn sem keppt er um Evrópumeistaratitil landsliða

Landslið

6. janúar 2014

Úrtaksæfingar hjá kvennalandsliðum Íslands um komandi helgi

Öll kvennalandslið Íslands verða við æfingar um komandi helgi og fara þær fram í Kórnum og í Egilshöllinni.  Landsliðsþjálfararnir, Freyr Alexandersson, Ólafur Þór Guðbjörnsson og Úlfar Hinriksson hafa boðað tæplega 90 leikmenn á þessar æfingar.

Landslið

6. janúar 2014

Unglingadómaranámskeið hjá Þrótti mánudaginn 13. janúar

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Þrótt og hefst kl. 18:00.  Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.  Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Dómaramál

6. janúar 2014

Leikir og mörk liðs í mótum á tilteknu tímabili

Á vef KSÍ er hægt að skoða ógrynni upplýsinga af ýmsu tagi.  Meðal annars er hægt að kalla fram yfirlitstöflu yfir alla leiki liðs á tilteknu ári, og sjá upplýsingar um leikmenn, skiptingar, mörk, fyrirliða, gul og rauð spjöld, o.s.frv.

Landslið

6. janúar 2014

A karla - Vináttulandsleikur gegn Wales 5. mars

Knattspyrnusambönd Íslands og Wales hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik í Wales, 5. mars næstkomandi.  Þetta verður sjöunda viðureign þjóðanna hjá A landsliðum karla.

Landslið

6. janúar 2014

A karla - Hópurinn sem mætir Svíum í Abu Dhabi

Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfarar, hafa valið hópinn sem mætir Svíum í vináttulandsleik í Abu Dhabi, þriðjudaginn 21. janúar næstkomandi.  Það eru 20 leikmenn sem skipa hópinn að þessu sinni, þar af eru 5 leikmenn sem ekki hafa leikið A landsleik. 

Landslið

2. janúar 2014

Unglingadómaranámskeið hjá Fjölni þriðjudaginn 7. janúar

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Fjölni og hefst kl. 18:00. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.  Námskeiðið er ókeypis.

Dómaramál

28. desember 2013

Gylfi Þór Sigurðsson útnefndur íþróttamaður ársins 2013

Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður og leikmaður Tottenham, var rétt í þessu útnefndur íþróttamaður ársins 2013 af samtökum íþróttafréttamanna. Hann átti frábært ár með landsliðinu sem og félagsliði sínu á Englandi.

Landslið

20. desember 2013

Íslenskt landsliðsfólk heimsótti Barnaspítala Hringsins

Dóra María Lárusdóttir og Gunnleifur Gunnleifsson, landsliðsfólk, heimsóttu í gær barnaspítala Hringsins en þau komu í jólaskapi með gjafir handa þeim frábæru krökkum sem þar dvelja. Krakkarnir fengu fótboltabækur, veggspjöld og auðvitað fótbolta. Einnig fékk barnaspítalinn landsliðstreyju áritaða af karlalandsliðinu en treyjan var árituð fyrir umspilsleikina gegn Króatíu.

Landslið

20. desember 2013

A kvenna - Vinnudagur föstudaginn 3. janúar

Freyr Alexandarsson, landsliðsþjálfari A kvenna, hefur boðað 35 leikmenn á vinnudag A landsliðs kvenna en hópurinn mun hittast, föstudaginn 3. janúar. Hópurinn mun hittast í höfuðstöðvum KSÍ en ýmislegt er á dagskránni á þessum vinnudegi.

Landslið