Search
SÍA

19. október 2013

Leikið um Ólympíusæti á mánudag

Ísland og Moldavía unnu fyrr í dag sigra á andstæðingum sínum í undanúrslitaleikjum undanriðils fyrir Ólympíuleika ungmenna. Þessi lið mætast í úrslitaleiknum á mánudag kl. 13:00 að íslenskum tíma.  Sigurvegarinn tekur þátt í Ólympíuleikum ungmenna, sem fram fara í Nanjing í Kína á næsta ári.

Landslið

19. október 2013

U15 karla - Finnar lagðir í Sviss

Strákarnir í U15 karla lögðu Finna að velli með tveimur mörkum gegn engu en leikið var í Sviss.  Þessi leikur var í undankeppni fyrir Ólympíuleika ungmenna en íslensku strákarnir mæta sigurvegaranum úr leik Armeníu og Moldóvu, sem fram fer síðar í dag, á mánudaginn.

Landslið

19. október 2013

Niðurröðun leikja í efstu deild karla

Á hverju ári fer fram umræða um niðurröðun leikja KSÍ. Þessi umræða er oft keimlík og tekur mið af þeim viðfangsefnum sem glímt er við hverju sinni. KSÍ þarf að vanda sína niðurröðun og taka tillit til fjölda sjónarmiða en umfram allt að bjóða upp á skipulag sem þjónar hagsmunum aðildarfélaga sinna.

Pistlar

19. október 2013

U15 karla - Byrjunarliðið gegn Finnum

Strákarnir í U15 leika í dag kl. 10:00 að íslenskum tíma við jafnaldra sína frá Finnlandi en leikið er í Sviss.  Þessi leikur er í undankeppni fyrir Ólympíuleika ungmenna en sigurvegari leiksins leikur við annað hvort Moldóva eða Armena á mánudaginn um sæti á þessum Ólympíuleikum sem fara fram í Nanjing í Kína á næsta ári.

Landslið

18. október 2013

Ásmundur Haraldsson aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins

Ásmundur Haraldsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins og mun þar aðstoða Frey Alexandersson í komandi verkefnum.  Ásmundur er 38 ára og hefur verið yfirþjálfari yngri flokka Stjörnunnar síðan 2010 en þjálfaði m.a. áður meistaraflokk karla hjá Gróttu ásamt því að vera yfirþjálfari yngri flokka félagsins.

Landslið

18. október 2013

Nokkrar þjóðir sem komust ekki í umspil - Stærð þjóða

Það er gaman að skoða hversu magnaður árangur íslenska A-landsliðsins er þegar horft er á stærðir þjóðanna sem komust ekki áfram.

Landslið

17. október 2013

Karlalandsliðið í 46. sæti á FIFA-listanum

Ísland er í 46. sæti á nýútgefnum styrkleikalista FIFA fyrir karlalandslið og fer upp um 8 sæti milli mánaða. Hæst hefur íslenska liðið ná í 37. sæti, en það var í september 1994 og í sama mánuði ári síðar.  Lægsta staða Íslands á listanum var 131. sæti í apríl 2012, þannig að á einu og hálfu ári hefur klifið verið ansi hratt.

Landslið

17. október 2013

Dregið í umspilinu í hádeginu - Bein útsending

Mánudaginn 21. október verður dregið um það í höfuðstöðvum FIFA hvaða þjóðir mætast í umspilsleikjum fyrir HM 2014. Þjóðunum átta verður skipt í efri og neðri styrkleikaflokk og verður farið eftir nýútgefnum styrkleikalista FIFA. Leikdagarnir eru 15. og 19. nóvember, en ekki liggur fyrir á hvorum deginum Ísland á heimaleik.

Landslið

16. október 2013

Fyrirlestur um eineltismál

Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands, Knattspyrnusamband Íslands og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands munu þriðjudaginn 22. október standa að fyrirlestri varðandi eineltismál. Vanda Sigurgeirsdóttir mun þar halda fyrirlestur og markmið fyrirlestursins er að gefa þjálfurum og starfsmönnum íþróttafélaga þekkingu og verkfæri til að geta tekið á einelti.

Fræðsla

15. október 2013

U19 karla - Sæti í milliriðlum tryggt

Strákarnir í U19 tryggðu sér í dag sæti í milliriðlum EM en þeir lögðu Norðu Íra í lokaleik undanriðilsins en leikið var í Belgíu. Lokatölur urðu 1 - 0 fyrir Ísland og á sama tíma gerðu Belgar og Frakkar jafntefli, 2 - 2. Belgar og Íslendingar fara því áfram úr riðlinum.

Landslið

15. október 2013

Ísland í umspilsleiki fyrir HM - Meiriháttar stuðningur á vellinum!

Ísland tryggði sér í kvöld umspilsleiki um sæti á HM en strákarnir okkar gerðu 1-1 jafntefli við Noreg og Sviss vann á sama tíma Slóveníu á heimavelli. Það þýðir bara eitt, Ísland er komið í umspilsleiki þar sem líklegt er að liðið mæti Portúgal, Grikklandi, Úkraínu eða Króatíu.

Landslið

15. október 2013

U19 karla - Byrjunarliðið gegn Norður Írlandi

Strákarnir í U19 leika í dag síðasta leik sinn í undankeppni EM en leikið er í Belgíu. Mótherjarnir í dag eru Norður Írar.  Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið en vegna meiðslastöðu verður tilkynnt um markvörð síðar.

Landslið

15. október 2013

A kvenna - Æfingar um komandi helgi

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur valið 18 leikmenn til æfinga um komandi helgi en æfingarnar eru hluti af undirbúningi fyrir leik gegn Serbíu, 31. október næstkomandi. Freyr velur 18 leikmenn á þessar æfingar sem fara fram í Kórnum.

Landslið

14. október 2013

Æfingaáætlun yngri landsliða 2013 - 2014

Æfingaáætlun yngri landsliða veturinn 2013-2014 liggur nú fyrir og má sjá hana í skjali hér að neðan. Félög skulu heimila leikmönnum sínum þátttöku í æfingum og æfingaleikjum á þessum dögum og eru því minnt á að taka mið af þessum dagsetningum við skipulagningu æfinga og leikja hjá sér.

Landslið

14. október 2013

Ísland - Frakkland - A passar gilda við innganginn

Handhafar A passa frá KSÍ geta sýnt skírteini sitt við innganginn á leik Íslands og Frakklands í undankeppni EM U21 karla sem fram fer á Laugardalsvelli, mánudaginn 14. október kl. 18:30.  Ekki þarf því að sækja miða á skrifstofu KSÍ.

Landslið

14. október 2013

Frítt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega á Ísland - Frakkland

KSÍ hefur ákveðið að bjóða öryrkjum og ellilífeyrisþegum ókeypis aðgang að leiknum  Ísland – Frakkland í undankeppni EM U21 karla sem fram fer á Laugardalsvelli mánudaginn 14. október kl. 18:30.

Landslið

14. október 2013

U21 karla - Ísland mætir Frökkum í kvöld

Íslendingar mæta Frökkum í kvöld, mánudaginn 14. október, í undankeppni EM og fer leikurinn fram á Laugardalsvelli kl. 18:30.  Hér er um sannkallaðan stórleik að ræða en þarna eigast við tvö lið sem hafa fullt hús stiga til þessa í undankeppninni.

Landslið

14. október 2013

U21 karla - Naumt tap gegn Frökkum

Strákarnir í U21 töpuðu gegn Frökkum í kvöld í undankeppni EM en leikið var á Laugardalsvelli.  Lokatölur, í miklum markaleik, urðu 3 - 4 fyrir Frakka eftir að staðan hafði verið 1 - 1 í leikhléi.  Mjög fjörugur leikur sem boðið var upp á í Laugardalnum í kvöld og hafði íslenska liðið algjörlega í fullu tréi við franska liðið.

Landslið