2. júlí 2013
Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar FH og Ajax Online Academy hafa gert með sér þriggja ára samstarfssamning, sem felur í sér að þjálfarar FH fá aðgang að upp undir 1000 æfingum auk þess sem það auðveldar þjálfurum að skipuleggja æfingar, gera áætlanir og halda betur utan um sína iðkendur, skv. fréttatilkynningu frá FH.
1. júlí 2013
Fyrsta leikdegi á Opna Norðurlandamóti U17 landsliða kvenna lauk með markaveislu á Hertz-vellinum í Breiðholti, þar sem leiki í B-riðli fóru fram.  Ísland lék í grindavík gegn Þýskalandi, þar sem þær þýsku höfðu betur.  Finnar unnu Hollendinga í Grindavík í opnunarleiknum.
1. júlí 2013
Vefsíðan Sport TV (http://www.sporttv.is/) mun sýna beint frá leikjum í Opna Norðurlandamóti U17 kvenna, alls 7-8 leiki. Sýnt verður beint frá tveimur leikjum á sama leikstað á hverjum leikdegi í riðlakeppninni og síðan frá úrslitaleiknum sjálfum, sem fram fer á Laugardalsvelli.
1. júlí 2013
Opna NM U17 landsliða kvenna byrjar í dag, mánudag, og í dag er leikið í Grindavík og á Hertz-vellinum í Breiðholti (ÍR). Ísland mætir Þýskalandi á Grindavíkurvelli kl. 16:00 og hefur Úlfar Hinriksson, þjálfari íslenska liðsins tilkynnt byrjunarlið sitt.
28. júní 2013
Við kveðjum einn besta talsmann knattspyrnunnar og góðan félaga með söknuði en minningin um Hemma Gunn mun lifa. Við sendum ættingjum og vinum Hermanns innilegar samúðarkveðjur.
28. júní 2013
Það verða ekki einungis íslensk félagslið og íslenskir leikmenn í eldlínunni þann 4. júlí næstkomandi, þegar fram fer 1. umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA. Íslenskur dómarakvartett verður einnig að störfum með Þórodd Hjaltalín fremstan í flokki.
28. júní 2013
Mánudaginn 1. júlí hefst Opna Norðurlandamót U17 landsliða kvenna, og fer það fram hér á landi í ár, í Reykjavík og á Suðurnesjum.  Fyrsti leikur Íslands er gegn Þýskalandi á Grindavíkurvelli á mánudag.  Sett hefur verið upp sérstök Facebook-síða fyrir mótið.
28. júní 2013
Um 70 krakkar mættu á opna æfinga hjá A landsliði kvenna, sem fram fór á Valbjarnarvelli í dag, föstudag, í tengslum við alþjóðlega Ólympíuviku. Eftir æfinguna gafst kostur á myndatöku með leikmönnum landsliðsins og eiginhandaráritunum.
28. júní 2013
KSÍ heldur 6. stigs þjálfaranámskeið í Wokefield Park, Englandi dagana 8.-15. nóvember 2013.  Umsækjendur verða að hafa lokið KSÍ V þjálfaranámskeiði og er síðasti dagur umsókna 15. ágúst næstkomandi, en fræðslunefnd stefnir á að taka inn 20 þjálfara á námskeiðið.
26. júní 2013
Aga- og úrskurðarnefnd hefur úrskurðað í máli Breiðabliks gegn KR í leik félaganna í eldri flokki karla 40+ sem fram fór 11. júní síðastliðinn. Kært var á grundvelli þess að um ólöglega skipað lið væri um að ræða. 
26. júní 2013
Aga- og úrskurðarnefnd hefur úrskurðað í máli Fylkis gegn Gróttu vegna leiks félaganna í 2. flokki kvenna B deild sem fram fór 30. maí síðastliðinn en kært var á grundvelli þess að ekki voru aðstoðardómarar á leiknum. Samkvæmt úrskurði skulu úrslit leiksins standa óhögguð.
25. júní 2013
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hópinn sem leikur fyrir Íslands hönd á Opna Norðurlandamótinu sem fer fram hér á landi dagana 1. - 6. júlí. Ísland verður í riðli með Finnlandi, Þýskalandi og Hollandi og verður riðill Íslands leikinn á Suðurnesjum.
25. júní 2013
Á hverju ári er haldið upp á alþjóðlega Ólympíudaginn út um allan heim Hér á landi hefur þessi dagur verið haldinn hátíðlegur undanfarin ár. En í stað þess að vera með einn dag hefur undanfarin ár verið boðið uppá Ólympíuviku.  Hægt verður að fara á æfingu hjá kvennalandsliðinu í knattspyrnu í Ólympíuvikunni. Föstudaginn 28. júní munu stelpurnar æfa á Valbjarnarvelli í Laugardal og hefst æfingin kl.10:00 og stendur til 11:30.
24. júní 2013
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt 23 leikmenn sem skipa hópinn í úrslitakeppni EM í Svíþjóð. Mótið hefst 10. júlí en fyrsti leikur Íslands er degi síðar, 11. júlí, þegar liðið mætir Noregi í Kalmar. Einn nýliði er í hópnum, Anna Björk Kristjánsdóttir úr Stjörnunni.
24. júní 2013
Til að minnast Ólafs Rafnssonar, forseta ÍSÍ, óskar Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands þess við aðildarfélög sín með starfsemi í dag að mínútu þögn verði kl. 10:00 í dag, mánudaginn 24. júní. Tilkynningu þess efnis má sjá hér að neðan.
21. júní 2013
Vegna umræðu um notkun spjaldtölva á varamannabekk og við boðvang á knattspyrnuleikjum er rétt að fram komi að samkvæmt túlkun FIFA er bannað samkvæmt knattspyrnulögunum að skoða beinar útsendingar af leikjum á boðvangi (technical area) á meðan á leik stendur.
21. júní 2013
Dagana 18. og 19. júní fór fram vinnufundur UEFA um leyfismál í höfuðstöðvum KSÍ og er þetta í fyrsta skipti sem þessi árlegi fundur fer fram hér á landi. Á þessum fundum er jafnan fjallað almennt um leyfiskerfið, regluverkið, vinnulag, þær breytingar sem þegar hafa verið gerðar og þær breytingar sem framundan eru.
21. júní 2013
Íslenska kvennalandsliðið er í 15. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í morgun. Liðið er því í sama sæti og á síðasta lista en Bandaríkin tróna á toppnum sem fyrr og, mótherjar Íslendinga á EM í sumar, Þjóðverjar eru í öðru sæti listans.