17. apríl 2013
U16 landslið kvenna gerði í dag, miðvikudag, jafntefli við Norður-Írland í æsispennandi átta marka leik, en liðin áttust við í undirbúningsmóti UEFA sem fram fer í Wales. Liðin skiptust á að taka forystuna en þurftu að lokum að sætta sig við að deila stigunum.
16. apríl 2013
Fulltrúar þjóðanna sem leika í 3. riðli í undankeppni HM kvenna 2015 funduðu strax að loknum drætti í riðla í höfuðstöðvum UEFA í dag, þriðjudag, og ræddu niðurröðun og leikdaga. Niðurstaða liggur nú fyrir og leikur Ísland tvo leiki í riðlinum á árinu 2013 og átta leiki 2014.
16. apríl 2013
Dregið var í riðla fyrir undankeppni HM kvennalandsliða 2015 í höfuðstöðvum UEFA í dag, þriðjudag. Eingöngu var dregið fyrir undankeppnina í Evrópu að þessu sinni. Ísland verður í riðli með Danmörku, Sviss, Serbíu, Ísrael og Möltu.
16. apríl 2013
U16 landslið kvenna vann í dag öruggan 4-0 sigur á Wales í sérstöku undirbúningsmóti UEFA fyrir þennan aldursflokk, en mótið fer einmitt fram í Wales. Esther Rós Arnarsdóttir gerði tvö af mörkum Íslands og fyrirliðinn Ingibjörg Sigurðardóttir átti þátt í þremur markanna.
16. apríl 2013
Knattspyrnudeild Fylkis leitar að þjálfara fyrir 7. flokk karla í knattspyrnu fyrir núverandi tímabil. Viðkomandi þarf að getið hafið störf strax. Áhugasömum er bent á að vera í sambandi við íþróttafulltrúa Fylkis
16. apríl 2013
Dómaranámskeið verður haldið í Barnaskólanum á Reyðarfirði laugardaginn 20. apríl kl. 13:00. Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og kennari verður Gunnar Jarl Jónsson FIFA-dómari.
16. apríl 2013
Stelpurnar í U16 eru nú í Wales þar sem þær leika á undirbúningsmóti UEFA en einnig leika á þessu móti Norður Írland og Færeyjar. Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir heimastúlkum í Wales og hefst leikurinn kl. 10:00 að íslenskum tíma.
15. apríl 2013
Næsti súpufundur KSÍ verður haldinn fimmtudaginn 18. apríl. Að þessu sinni mun Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur, fjalla um hvernig hægt er að vinna markvisst að þjálfun félagslegrar- og hugarfarslegrar færni yngri iðkenda á heildstæðan hátt. Fundurinn er ætlaður þjálfurum, foreldrum og skipuleggjendum íþróttastarfs.
15. apríl 2013
Á morgun, þriðjudaginn 16. apríl, verður dregið í riðla fyrir undankeppni HM kvenna 2015 en úrslitakeppnin fer að þessu sinni fram í Kanada.  Ísland í í öðrum styrkleikaflokki en flokkarnir eru sex talsins en dregið verður í sjö riðla.
14. apríl 2013
Strákarnir í U16 töpuðu lokaleik sínum á undirbúningsmóti UEFA í dag en leikið var í Wales. Andstæðingar dagsins voru heimamenn sem höfðu betur 2 - 0. Wales endaði því í efsta sæti en Ísland og Norður Írar komu þar á eftir.
12. apríl 2013
Strákarnir í U16 gerðu í dag jafntefli við Norður Íra á undirbúningsmóti UEFA sem fram fer í Wales. Niðurstaðan varð markalaus í miklum baráttuleik þar sem ekkert var gefið eftir og ekki var mikið um opin marktækifæri.  Ísland mætir heimamönnum í lokaumferðinni og stendur önnur hvor þjóðin uppi sem siguvegari á mótinu.
12. apríl 2013
UEFA hefur boðað fulltrúa 14 knattspyrnusambanda til vinnufundar á Íslandi um leyfismál og fjárhagslega háttvísi, en fundað verður í höfuðstöðvum KSÍ dagana 18. og 19. júní. Um er að ræða árlegan viðburð sem nú er haldinn á Íslandi í fyrsta sinn.
12. apríl 2013
Næstkomandi mánudag mun fara fram Landsdómararáðstefna KSÍ en þar hittast landsdómarar í lokaundirbúningi fyrir verkefni sumarins. Þetta er einn af vorboðuðum í boltanum en keppni í Borgunarbikarnum hefst 1. maí og í Pepsi-deild karla 5. maí.
12. apríl 2013
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U16 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Norður Írum í dag á undirbúningsmóti UEFA sem fram fer í Wales.  Leikurinn hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma en þetta er annar leikur Íslands á mótinu en sigur vannst á Færeyingum í gær, 2 - 0.
12. apríl 2013
Námskeiðið er það síðasta sem haldið verður á Reykjanesi að þessu sinni. Í október verður síðan aftur farið af stað með námskeiðahald hjá þeim félögum sem þess óska.
11. apríl 2013
Strákarnir í U16 hófu í dag leik á undirbúningsmóti UEFA og fer það fram í Wales. Mótherjar Íslendinga í dag voru Færeyingar og höfðu Íslendingar sigur, 2 - 0. Það var Óttar Magnús Karlsson sem skoraði bæði mörk Íslendinga og komu þau bæði í fyrri hálfleik.
11. apríl 2013
Nýr styrkleikalisti FIFA sem gefinn var út í morgun, sýnir að Ísland fór upp um 19 sæti og sitja nú í 73. sæti. Spánn, Þýskaland og Argentína skipa þrjú efstu sætin sem hafa haldist óbreytt frá seinasta styrkleikjalista.
11. apríl 2013
Strákarnir í U16 leika í dag við Færeyjar í undirbúningsmóti UEFA sem leikið er í Wales. Fjórar þjóðir leika á þessu æfingamóti en hinar þjóðirnar eru gestgjafarnir og Norður Írar. Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn sem hefst kl. 10:00 að íslenskum tíma.