24. janúar 2013
Knattspyrnusamband Íslands hefur komist að samkomulagi við knattspyrnusambönd Danmerkur og Skotlands um að U19 karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleiki síðar á þessu ári.
23. janúar 2013
Knattspyrnudeild Þróttar auglýsir eftir metnaðarfullum þjálfara sem er tilbúinn til að vinna skv. stefnu félagsins. Um er að ræða þjálfun í yngri flokkum félagsins og þarf viðkomandi að geta hafið störf strax. Reynsla af þjálfarastörfum og þjálfaramenntun skilyrði.
23. janúar 2013
Framundan eru vináttulandsleikir hjá A landsliði og U21 karla og fara þeir báðir fram miðvikudaginn 6. febrúar. Rússar verða mótherjar A landsliðsins en Walesverjar andstæðingar U21 karla en hópurinn hjá Wales var tilkynntur í dag.
22. janúar 2013
Leyfisstjórn hefur lokið við fyrstu yfirferð leyfisgagna allra leyfisumsækjenda og vinnur nú með félögunum að úrbótum og lausnum þar sem við á. Þau gögn sem skilað var 15. janúar og farið er yfir nú snúa að öllum öðrum þáttum en fjárhagslegum.
22. janúar 2013
Mikið verður um að vera hjá kvennalandsliðum Íslands en U17, U19 og A landslið kvenna verða öll við æfingar um helgina. Um er að ræða yngri hópinn hjá U17 kvenna en eldri hópurinn leikur 2 vináttulandsleiki við Dani á næstu dögum.
22. janúar 2013
Landsliðsþjálfararnir Ólafur Þór Guðbjörnsson og Úlfar Hinriksson  hafa valið 25 leikmenn til að mæta Dönum í tveimur vináttulandsleikjum á næstu dögum.  Fyrri leikurinn verður í Kórnum næstkomandi sunnudag, 27. janúar og hefst kl. 13:30.  Sá síðari verður í Akraneshöllinni, þriðjudaginn 29. janúar og hefst kl. 15:00.
21. janúar 2013
Námskeið fyrir aðstoðardómara verður haldið mánudaginn 28. janúar í höfuðstöðvum KSÍ og hefst það kl. 18:00. Námskeiðið er ætlað öllum starfandi aðstoðardómurum sem áhuga hafa á því að bæta sig í starfi.
18. janúar 2013
Laugardaginn 19. janúar fara fram landshlutaæfingar á Norðurlandi undir stjórn Péturs Ólafssonar landshlutaþjálfara. Æfingarnar fara fram í Boganum á Akureyri telur æfingahópurinn alls um 60 leikmenn frá félögum víðs vegar af Norðurlandi.
17. janúar 2013
A landslið karla byrjar árið 2013 í 89. sæti á styrkleikalista FIFA og hækkar um eitt sæti milli mánaða. Annars eru afar litlar breytingar á listanum milli mánaða og t.a.m. engin breyting á topp 10, enda ekki margir landsleikir farið fram síðan listinn var síðast gefinn út.
17. janúar 2013
Þann 20. janúar fara fram landshlutaæfingar U17 kvenna á Austurlandi undir stjórn Úlfars Hinrikssonar landsliðsþjálfara og Eysteins Haukssonar landshlutaþjálfara. Til æfinganna, sem fram fara í Fjarðabyggðarhöllinni, hafa verið boðaðir tæplega 40 leikmenn frá 6 félögum
17. janúar 2013
Skiladagur leyfisgagna, annarra en fjárhagslegra, var þriðjudaginn 15. janúar. Leyfisstjórn hefur nú móttekið gögn frá öllum félögum í efstu tveimur deildum karla, en það eru þær deildir sem leyfiskerfið nær til. Öll félögin skiluðu gögnum innan tímamarka.
16. janúar 2013
Helgina 1.-3. febrúar mun KSÍ standa fyrir 5. stigs þjálfaranámskeiði. Þátttökurétt hafa allir þeir þjálfarar sem eru með KSÍ B/UEFA B þjálfaragráðu og fengu a.m.k. 70 af 100 í skriflega KSÍ B prófinu.  Námskeiðið er upphafið af KSÍ A (UEFA A) þjálfaragráðu og gildir jafnframt sem endurmenntun.
16. janúar 2013
Framboð til stjórnar KSÍ skal skv. 15. grein laga KSÍ berast skrifstofu KSÍ skriflega minnst hálfum mánuði fyrir þing eða í síðasta lagi 26. janúar nk. Kjörnefnd er þó heimilt að samþykkja framboð sem fram kemur síðar ef nægjanlegur fjöldi hefur ekki tilkynnt framboð sitt innan tilkynningarfrests.
15. janúar 2013
Um síðustu helgi var haldin læknaráðstefna í höfuðstöðvum KSÍ þar sem fjallað var um ýmis málefni tengd knattspyrnu, meiðsli og annað. Ráðstefnustjóri var Reynir Björnsson og tóku 9 læknar þátt, auk leiðbeinenda.
15. janúar 2013
Dagana 2.-3. febrúar mun KSÍ standa fyrir ráðstefnu um félagaskiptamál og greiðslur vegna félagaskipta. Hingað til lands kemur Omar Ongaro sem er yfirmaður félagaskiptadeildar FIFA og mun hann flytja erindi um uppeldisbætur og samstöðubætur, auk þess að fjalla um veðmál og hagræðingu úrslita.
14. janúar 2013
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við ÍA og hefst kl. 17:00. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri. Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.
14. janúar 2013
Miðasala á leiki Íslands á EM kvenna 2013, sem fram fer í Svíþjóð 10. - 28. júlí, er hafin. Skila skal miðapöntunum til KSÍ og þurfa þær að berast í síðasta lagi 1. apríl næstkomandi. Miðapöntunum skal skila á þar til gerðu eyðublaði sem finna má hér að neðan.
14. janúar 2013
Landsliðsþjálfararnir, Freyr Sverrisson og Þorlákur Árnason, hafa valið leikmenn fyrir úrtaksæfingar hjá U16 og U17 karla. Æfingarnar fara fram um komandi helgi og fara fram í Kórnum og Egilshöllinni.