Search
SÍA

4. desember 2012

Knattspyrnuþing 2013 - Boðun

67. ársþing KSÍ verður haldið á Hilton Nordica Hótel 9. febrúar nk. Tillögur og málefni þau er sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þingi skulu berast stjórn KSÍ minnst mánuði fyrir þing eða í síðasta lagi miðvikudaginn 9. janúar næstkomandi.

Ársþing

4. desember 2012

U16, U17 og U19 kvenna - Landsliðsæfingar um helgina

Um komandi helgi fara fram landsliðsæfingar hjá þremur landsliðum kvenna, U16, U17 og U19 kvenna. Þjálfararnir, Úlfar Hinriksson og Ólafur Þór Guðbjörnsson, hafa valið leikmenn fyrir þessar æfingar og eru alls 96 leikmenn boðaðir á þessar æfingar.

Landslið

3. desember 2012

Ítarleg tölfræðiskýrsla UEFA um kvennaknattspyrnu

UEFA hefur nýverið sent aðildarsamböndum sínum ítarlega tölfræðiskýrslu sem unnin var um kvennaknattspyrnu í Evrópu. Mikil rannsóknarvinna er á bak við skýrsluna, sem verður birt opinberlega eftir áramót og mun hún þá verða birt í heild sinni á vef KSÍ.

Fræðsla

3. desember 2012

Magni Mohr – hraða- og snerpuþjálfun, upphitun og endurheimt

Helgina 19.-20. janúar 2013 mun Magni Mohr koma aftur hingað til lands og halda námskeið ætlað knattspyrnuþjálfurum. Að þessu sinni er umfjöllunarefnið hraða- og snerpuþjálfun, upphitun og endurheimt knattspyrnumanna.

Fræðsla

3. desember 2012

Kristinn dæmir í Tékklandi

Kristinn Jakobsson mun dæma leik Viktoria Plzen frá Tékklandi og Atletico Madrid frá Spáni í Evrópudeild UEFA en leikið verður í Plzen á fimmtudaginn. Aðstoðardómarar verða Sigurður Óli Þorleifsson og Frosti Viðar Gunnarsson og aukaaðstoðardómarar þeir Þorvaldur Árnason og Gunnar Jarl Jónsson. Fjórði dómari verður Gunnar Sverrir Gunnarsson.

Dómaramál

29. nóvember 2012

Getuskipting í þjálfun yngri flokka - Viðtal við Sigurð Ragnar Eyjólfsson

Nokkur umræða hefur verið á síðustu dögum varðandi þjálfun yngri flokka í knattspyrnu og getuskiptingu sem notuð er í þeirri þjálfun.  Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fræðslustjóri KSÍ, var í viðtali í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun og fjallaði um þetta málefni. Hægt er að hlusta á viðtalið við Sigurð hér.

Fræðsla
Pistlar

28. nóvember 2012

Tækniþjálfun - Coerver Coaching

Dagana 5 .- 6. janúar mun KSÍ bjóða þjálfurum upp á námskeið í tækniþjálfun. Hingað til lands kemur Brad Douglass en hann starfar sem Technical Director hjá Coerver Coaching í Evrópu, Mið-Austurlöndum og Afríku. Margir ættu að kannast við hollenska þjálfarann Wiel Coerver sem var á sínum tíma brautryðjandi á sviði tækniþjálfunar og byggist Coerver Coaching á hans hugmyndafræði.

Fræðsla

27. nóvember 2012

U21 karla - Tveir hópar æfa um helgina

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið tvo hópa til æfinga um komandi helgi. Æft verður í Kórnum og æfir annar hópurinn laugardaginn 1. desember og hinn hópurinn, sunnudaginn 2. desember.

Landslið

27. nóvember 2012

Breytingar á reglugerðum - Samþykktar á stjórnarfundi 22. nóvember

Á stjórnarfundi KSÍ, þann 22. nóvember síðastliðinn, voru samþykktar breytingar á reglugerðum KSÍ og má finna þessar breytingar undir "Dreifibréf til félaga" hér til vinstri á síðunni. Sérstaklega er mikilvægt að aðildarfélög kynni sér viðamiklar breytingar sem hafa orðið á reglugerð um knattspyrnumót.

Lög og reglugerðir

27. nóvember 2012

U17 kvenna - Úrtaksæfingar á Norðurlandi

Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hóp til úrtaksæfinga um komandi helgi í Boganum á Akureyri. Valdir eru 33 leikmenn á þessar æfingar og koma þeir frá sex félögum á Norðurlandi.

Landslið

27. nóvember 2012

U17 og U19 karla - Úrtaksæfingar um komandi helgi

Um komandi helgi fara fram úrtaksæfingar hjá U17 og U19 karla og verða þessar æfingar í Kórnum og Egislhöll. Þjálfararnir, Gunnar Guðmundsson og Kristinn R. Jónsson, hafa valið hópa fyrir þessar æfingar.

Landslið

22. nóvember 2012

Skipta íþróttir máli?

Ráðstefna Háskóla Íslands og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands um stöðu íþrótta í íslensku samfélagi verður haldin miðvikudaginn 28. nóvember nk. klukkan 13.00-16.30. Ráðstefnan verður í Hátíðarsal Háskóla Íslands og er þátttaka öllum að kostnaðarlausu.

Fræðsla

21. nóvember 2012

Aðalfundur KÞÍ fimmtudaginn 6. desember

Aðalfundur Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands verður haldinn í fræðslusetri KSÍ á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 6. desember n.k. klukkan 20:00.

Fræðsla

20. nóvember 2012

Milliriðill U19 kvenna - Leikið í Portúgal

Ísland er í riðli með Finnlandi, Norður Írlandi og Portúgal í milliriðli EM U19 kvenna en dregið var í dag. Leikið verður í Portúgal, dagana 4. - 9. apríl á næsta ári en stelpurnar tryggðu sér sæti í milliriðlum þegar þær léku í Danmörku í október.

Landslið

20. nóvember 2012

U19 kvenna - Leikið í Búlgaríu í undankeppninni 2013/14

Í dag var í höfuðstöðvum UEFA í Sviss, dregið í undankeppni EM U19 kvenna 2013/14 og dróst Ísland í riðil með Frakklandi, Slóvakíu og Búlgaríu. Leikið verður í Búlgaríu dagana 21. - 26. september 2013.

Landslið

20. nóvember 2012

U17 kvenna - Stelpurnar leika í Moldavíu

Í dag var dregið í riðla í undankeppni EM U17 kvenna 2013/2014 og fór drátturinn fram í höfuðstöðvum UEFA í Sviss. Ísland er í riðli með Lettlandi, Ungverjalandi og Moldavíu og verður leikið í síðastnefnda landinu, dagana 30. júlí - 4. ágúst 2013.

Landslið

19. nóvember 2012

Úrtaksæfingar U16 karla í Boganum 24. og 25. nóvember

Úrtaksæfingar fyrir U16 landslið karla (leikmenn fæddir 1998) fara fram í Boganum á Akureyri um komandi helgi, laugardaginn 24. og sunnudaginn 25. nóvember. Alls hafa 24 leikmenn frá átta félögum á Norðurlandi verið boðaðir til æfinga.

Landslið

16. nóvember 2012

Leyfisferlið fyrir 2013 hafið

Samkvæmt leyfisreglugerð KSÍ hefur þeim félögum sem hyggjast sækja um þátttökuleyfi í Pepsi-deild og 1. deild karla 2013 verið sendar nauðsynlegar upplýsingar, áður en vinna við leyfisumsókn hefst. Keflvíkingar hafa þegar skilað leyfisgögnum og eru því fyrstir annað árið í röð.

Leyfiskerfi