24. október 2012
Venjulega koma á milli 3.000 og 4.000 manns á landsleikina okkar en mest hafa komið 6.000 manns á völlinn. En ég vil fá 10.000 manns! Með því að það verður uppselt á kvennalandsleikinn breytum við heiminum. Ekki bara hjá þeim 18 stelpum sem klæðast landsliðstreyjunni í leiknum. Heldur í huga allra lítilla stúlkna sem æfa íþróttir á Íslandi.
23. október 2012
Gunnar Jarl Jónsson og Birkir Sigurðarson verða við störf næstu daga í Belgíu þar sem þeir dæma í undankeppni EM U17 karla. Þjóðirnar sem leika í þessum riðli eru, auk heimamanna, Holland, Lettland og Litháen.
23. október 2012
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið æfingahópa hjá U16 og U17 kvenna en æfingar hjá þessum hópum fara fram um komandi helgi. Æfingarnar fara fram í Egilshöllinni og Kórnum.
23. október 2012
Æfingaáætlun yngri landsliða fyrir veturinn 2012 - 2013 liggur nú fyrir og má finna hana hér að neðan. Félög eru beðin um að kynna sér hana og koma henni til viðeigandi aðila til að hafa í huga við skipulagningu leikja og æfinga.
22. október 2012
Í næsta mánuði verður í fyrsta sinn farið af stað með KSÍ markmannsþjálfaragráðu. Um er að ræða veigamikið verkefni en markmiðið með KSÍ markmannsþjálfaragráðunni er að bæta við sérþekkingu markmannsþjálfara hér á landi. Námskeiðið mun standa yfir frá nóvember 2012 til apríl 2013.
22. október 2012
Knattspyrnusamband Íslands mun halda 3. stigs þjálfaranámskeið helgina 9.-11. nóvember. Námskeiðið er opið öllum sem lokið hafa við fyrstu tvö stigin, þ.e. KSÍ I og KSÍ II þjálfaranámskeið.
22. október 2012
Stelpurnar í U19 lögðu stöllur sínar frá Moldavíu örugglega í dag í undankeppni EM en þetta var annar leikur liðsins í riðlinum sem leikinn er í Danmörku. Lokatölur urðu 5 – 0 fyrir Ísland en þær leiddu með þremur mörkum í leikhléi.
22. október 2012
Handhafar A passa KSÍ 2012 geta sýnt passann við innganginn þegar komið er á leik Íslands og Úkraínu, fimmtudaginn 25. október kl. 18:30. Ekki þarf að sækja miða á skrifstofu KSÍ heldur gildir skírteinið við innganginn.
22. október 2012
Frítt er inn fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja á leik Íslands og Úkraínu, seinni umspilsleiknum á milli þjóðanna þar sem leikið er um sæti í úrslitakeppni EM 2013. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 25. október og hefst kl 18:30. Hægt er að framvísa viðeigandi skírteinum við innganginn og þarf því ekki að sækja miða áður á skrifstofu KSÍ.
22. október 2012
Stelpurnar gerðu góða ferð til Úkraínu þar sem þær lögðu heimastúlkur í hörkuleik, 2 – 3, en seinni leikurinn verður á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 25. október kl. 18:30. Miðasala á þann leik er nú hafin og er knattspyrnuáhugafólk hvatt til þess að tryggja sér miða í tíma og styðja stelpurnar til Svíþjóðar. Miðasala er sem fyrr í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.
22. október 2012
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Moldavíu í dag. Leikið verður í Esbjerg í Danmörku og hefst leikurinn kl. 12:00 að íslenskum tíma. Minnt er á að hægt er að fylgjast með textalýsingu frá leiknum á heimasíðu UEFA.
20. október 2012
Íslenska kvennalandsliðið steig í dag stórt skref í átt að sæti í lokakeppni EM 2013 í Svíþjóð næsta sumar. Skrefið var stigið með því að leggja Úkraínu 3-2 í Sevastopol í fyrri umspilsleik liðanna. Seinni leikurinn fer fram á Laugardalsvelli fimmtudaginn 25. október.
20. október 2012
U19 landslið kvenna hóf undankeppni EM með glæsibrag í fyrsta leik gegn Slóvakíu, en riðillinn fer fram í Danmörku. Fjögur mörk í síðari hálfleik tryggðu íslenskan sigur og íslenska liðið hefur þar með stimplað sig rækilega inn.
20. október 2012
Eins og knattspyrnuáhugafólki er kunnugt mætir A landslið kvenna Úkraínu í fyrri viðureign liðanna í umspili fyrir EM í dag. Leikurinn fer fram í Sevastopol og hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Íslands, hefur tilkynnt byrjunarliðið í dag.
20. október 2012
U19 landslið kvenna hefur í dag leik í undankeppni EM 2013 og fer riðill Íslands fram í Danmörku. Fyrstu mótherjarnir eru Slóvakía og hefst leikurinn kl. 10:00 í dag að íslenskum tíma. Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari íslenska liðsins, hefur tilkynnt byrjunarliðið.
19. október 2012
Kvennalandsliðið æfði á keppnisvellinum í Sevastopol í dag en þetta var lokaæfing liðsins fyrir leikinn mikilvæga gegn Úkraínu á morgun. Leikurinn hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma en aðstæður í Sevastopol eru mjög góðar og fór æfingin í dag fram í 17 stiga hita og logni
19. október 2012
Íslenska kvennalandsliðið mætir því úkraínska í fyrri umspilsleik þjóðanna um sæti í úrslitakeppni EM sem fram fer í Svíþjóð á næsta ári. Leikið verður í hafnarborginni Sevastopol sem er sunnarlega í Úkraínu, við Svartahafið.
19. október 2012
Það verður hin finnska, Kirsi Heikkinen, sem dæmir leik Úkraínu og Íslands í umspili fyrir úrslitakeppni EM en leikið verður í Sevastopol í Úkraínu á morgun kl. 13:00. Kirsi er einn fremstu dómurum í alþjóðaboltanum en hún dæmdi t.a.m. undanúrslitaleik Frakka og Bandaríkanna á HM á síðasta ári sem og úrslitaleik Meistaradeildar UEFA kvenna árið 2010.