Search
SÍA

3. október 2012

Styrkleikalisti FIFA - Karlalandsliðið upp um 21 sæti

Íslenska karlalandsliðið fer upp um 21 sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem birtur var í morgun. Ísland er nú í 97. sæti listans en það eru Spánverjar sem tróna á toppi listans sem fyrr og Þjóðverjar sitja í öðru sætinu.

Landslið

1. október 2012

Kristinn og félagar dæma í Evrópudeildinni

Kristinn Jakobsson verður í eldlínunni, fimmtudaginn 4. október, þegar hann dæmir leik Videoton frá Ungverjalandi og Sporting Lissabon frá Portúgal í Evrópudeild UEFA.  Fimm aðrir íslenskir dómarar munu starfa með Kristni á leiknum.

Dómaramál

1. október 2012

U17 karla - Tveggja marka tap gegn Noregi

Strákarnir í U17 töpuðu í dag gegn jafnöldrum sínum frá Noregi en leikurinn var liður í undankeppni EM og fór fram á Möltu. Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir Norðmenn sem leiddu með einu marki í leikhléi.

Landslið

1. október 2012

U17 karla - Byrjunarliðið er mætir Norðmönnum

Strákarnir í U17 mæta Norðmönnum í dag en leikurinn er liður í undankeppni EM og er leikið á Möltu. Þetta er annar leikur strákanna en fyrsta leiknum töpuðu þeir, 4 - 2, gegn Portúgölum á meðan Norðmenn lögðu heimamenn.  Gunnar Guðmundsson hefur tilkynnt byrjunarliðið og er það þannig skipað:

Landslið

29. september 2012

U17 karla - Tap gegn Portúgal í fyrsta leik

Strákarnir í U17 töpuðu gegn Portúgölum í fyrsta leik sínum í undankeppni EM en leikið er á Möltu. Lokatölur urðu 4 - 2 eftir að Portúgal hafði leitt í leikhléi, 2 - 0.  Næsti leikur liðsins er gegn Norðmönnum á mánudaginn.

Landslið

29. september 2012

U17 karla - Byrjunarliðið gegn Portúgal

Strákarnir í U17 hefja í dag leik í undankeppni EM en riðill þeirra er leikinn á Möltu. Mótherjarnir eru ekki af verri endanum, Portúgal, og hefst leikurinn kl. 14:00 að íslenskum tíma. Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið.

Landslið

28. september 2012

2. október – Dagur án ofbeldis

Þann 2. október næstkomandi er fagnað degi baráttu fyrir tilveru án ofbeldis. Ofbeldi er grundvallarvandamál okkar tíma.  Til að sýna samhug á táknrænan hátt verður mannlegt friðarmerki myndað á Klambratúni í Reykjavík þann 2. október kl. 20:00.

Fræðsla

27. september 2012

Rúna dæmir í Litháen

Rúna Kristín Stefánsdóttir verður við störf í Litháen dagana 30. september til 7. október. Hún verður þá aðstoðardómari í undankeppni EM hjá U17 kvenna en auk heimastúlkna leika þar Frakkland, Ungverjaland og Bosnía Hersegóvína.

Dómaramál

27. september 2012

U19 karla - Æfingar í október

Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið æfingahóp sem verður við æfingar í október en framundan hjá liðinu er undankeppni EM sem fram fer í Króatíu í lok október. Kristinn hefur valið 28 leikmenn fyrir þessar æfingar.

Landslið

27. september 2012

Ísland - Best í heimi!

Ég tek hatt minn að ofan fyrir þeim rúmlega 600 knattspyrnuþjálfurum sem eru að vinna í að búa til næsta landsliðsmann og landsliðskonu. Starf þeirra er oft vanþakklátt en þau eru að skila rosalega góðu starfi

Pistlar

27. september 2012

A kvenna - Leikdagar fyrir umspilsleikina

Nú er ljóst hvenær umspilsleikir íslenska kvennalandsliðsins fara fram en eins og kunnugt er leika Ísland og Úkraína tvo leiki um sæti í úrslitakeppni EM 2013 í Svíþjóð. Fyrri leikurinn fer fram laugardaginn 20. október í Sevastopol í Úkraínu en sá síðari verður hér á Laugardalsvellinum, fimmtudaginn 25. október.

Landslið

26. september 2012

Úrskurður í máli Hauka gegn Stjörnunni

Aga-og úrskurðarnefnd KSÍ hefur úrskurðað í máli Hauka gegn Stjörnunni í 4. flokki kvenna B liða vegna ólöglega skipaðs liðs hjá Stjörnunni. Í úrskurðarorðum kemur m.a. fram úrslit í leiksins skulu skráð 3 - 0 Haukum í vil.

Agamál

26. september 2012

Úrskurður í máli Hauka gegn Fjölni

Aga-og úrskurðarnefnd KSÍ hefur úrskurðað í máli Hauka gegn Fjölni í 3. flokki kvenna vegna ólöglega skipaðs liðs hjá Fjölni. Í úrskurðarorðum kemur m.a. fram úrslit í leiksins skulu skráð 3 - 0 Haukum í vil.

Agamál

26. september 2012

Fylkir auglýsir eftir þjálfurum fyrir komandi tímabil

Knattspyrnudeild Fylkis leitar að aðalþjálfara fyrir 6. flokk kvenna og aðstoðarþjálfara fyrir 6. flokk karla í knattspyrnu á komandi tímabil. Viðkomandi þarf að geta hafið störf strax. Áhugasömum er bent á að vera í sambandi við íþróttafulltrúa Fylkis Hörð Guðjónsson með því að senda tölvupóst á netfangið hordur@fylkir.com eða með því að hringja í síma 571-5604

Fræðsla

25. september 2012

U19 kvenna - Æfingar næstu daga

Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið æfingahóp en þessi hópur verður við æfingar næstu daga. Æfingarnar eru liður í undirbúningi fyrir undankeppni EM sem fram fer í Danmörku í október.

Landslið

24. september 2012

U17 karla - Hópurinn sem leikur á Möltu

Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hópinn sem leikur í undankeppni EM á Möltu 29. september til 4. október. Mótherjar Íslendinga í riðlinum eru, auk heimamanna, Portúgal og Noregur og er fyrsti leikur Íslands gegn Portúgölum.

Landslið

24. september 2012

Landsleikir í október 2012

Mótherjinn í umspilinu verður Úkraína, sem var eins og íslenska liðið í úrslitakeppninni í Finnlandi fyrir fjórum árum. Leikið verður heima og heiman og þetta verða án nokkurs vafa hörkuleikir þar sem lítið má útaf bregða. Í heimaleiknum verðum við Íslendingar að fjölmenna og styðja við bakið á íslenska liðinu.

Pistlar

24. september 2012

Vilhjálmur og Halldór dæmdu í Svíþjóð

Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og Halldór Breiðfjörð Jóhannsson dæmdu um helgina leik Ljungskile og Umeå í næst efstu deild í Svíþjóð. Vilhjálmur var dómari leiksins og Halldór var annar aðstoðardómara

Dómaramál