Search
SÍA

6. september 2012

U19 karla - Tveir vináttulandsleikir gegn Eistlandi

Framundan eru tveir vináttulandsleikir hjá U19 karla gegn jafnöldrum þeirra frá Eistlandi. Fyrri leikurinn er á morgun, föstudaginn 7. september, á Víkingsvelli og hefst kl. 15:00. Sá síðari er sunnudaginn 9. september en þá verður leikið á Grindavíkurvelli.

Landslið

5. september 2012

Miðasala á leikdag hefst kl. 12:00 á Laugardalsvelli

Framundan er fyrsti heimaleikur Íslands í undankeppni HM 2014 þegar Norðmenn koma í heimsókn á Laugardalsvöll, föstudaginn 7. september kl. 18:45. Miðasala á leikinn fer fram í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.

Landslið

5. september 2012

A kvenna - Hópurinn valinn fyrir leiki gegn Norður Írlandi og Noregi

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari A kvenna, hefur valið hópinn er mætir Norður Írum og Norðmönnum í lokaleikjum liðsins í undankeppni EM 2013. Leikið verður við Norður Íra hér á Laugardalsvelli, laugardaginn 15. september og Noreg á Ullevål vellinum í Osló, miðvikudaginn 19. september.

Landslið

5. september 2012

Karlalandslið Íslands og Noregs mætast í 31. skipti

Karlalandslið Íslands og Noregs mætast á Laugardalsvelli, föstudaginn 7. september kl. 18:45. Þetta er 31. skiptið sem karlalandslið þjóðanna mætast en fyrsti landsleikur þjóðanna fór fram á Melavelli, 24. júlí 1947, eða fyrir 65 árum síðan. Norðmenn höfðu þá betur, 2 - 4.

Landslið

5. september 2012

U17 kvenna - Byrjunarliðið er mætir Slóvenum

Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Slóvenum í undankeppni EM en riðillinn er leikinn í Slóveníu.  Leikurinn hefst kl. 14:30 að íslenskum tíma en þetta er fyrsti leikur Íslands í riðlinum.  Tékkland og Eistland skipa einnig þennan riðil.

Landslið

5. september 2012

Styrkleikalisti FIFA - Karlalandsliðið upp um 12 sæti

Íslenska karlalandsliðið er í 118. sæti í nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í morgun. Liðið fer upp um 12 sæti frá síðasta lista en Spánverjar eru sem fyrr í efsta sæti listans.

Landslið

5. september 2012

Kristinn dæmir í Svartfjallalandi

Kristinn Jakobsson mun dæma leik Svartfjallalands og Póllands í undankeppni HM 2014 en leikið verður í Podgorica í Svartfjallalandi á föstudaginn. Kristni til aðstoðar verða þeir Sigurður Óli Þorleifsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson og fjórði dómari er Þóroddur Hjaltalín.

Dómaramál

4. september 2012

Ísland – Noregur - Miðar fyrir handhafa A-passa

Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland – Noregur í undankeppni HM 2014 afhenta miðvikudaginn 5. september frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.

Landslið

3. september 2012

Að hitta þverslána eða ekki - það er spurningin

Í hálfleik á viðureign Íslands og Noregs á föstudag munu þrír heppnir vallargestir fá tækifæri til að spreyta sig í erfiðri þraut.  Þrautin felst í því að spyrna knetti frá vítateigsboganum, hitta þverslána og vinna þannig ferð fyrir tvo til Bandaríkjanna með Icelandair!

Landslið

3. september 2012

Þorvaldur dæmir í Skotlandi

Þorvaldur Árnason verður í eldlínunni í Skotlandi á fimmtudaginn þegar hann dæmir leik Skotlands og Lúxemborg í undankeppni EM U21 karla. Leikurinn fer fram í borginni Paisley. Þorvaldi til aðstoðar verða þeir Áskell Þór Gíslason og Frosti Viðar Gunnarsson. Fjórði dómari verður Erlendur Eiríksson.

Dómaramál

3. september 2012

U21 karla - Hópurinn sem mætir Belgum

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn er mætir Belgum ytra í undankeppni EM 2013. Þetta er síðasti leikur Íslands í riðlinum en leikurinn fer fram mánudaginn 10. september og verður leikið á Freethiel Stadium í Beveren.

Landslið

3. september 2012

Gunnar Heiðar kallaður inn í landsliðshópinn

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, leikmaður Norrköping í Svíþjóð, hefur verið kallaður inn í landsliðshópinn fyrir leikina gegn Noregi og Kýpur í undankeppni HM 2014.  Björn Bergmann Sigurðarson verður ekki með íslenska landsliðinu í þessum tveimur leikjum.

Landslið

31. ágúst 2012

A karla - Arnór Sveinn í hópinn

Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, hefur gert breytingu á hópnum fyrir leikina gegn Noregi og Kýpur í undankeppni fyrir HM 2014. Arnór Sveinn Aðalsteinsson úr Hönefoss kemur inn í hópinn í stað Indriða Sigurðssonar sem er meiddur.

Landslið

30. ágúst 2012

Franskir dómarar á Ísland - Noregur 7. september

Það verða franskir dómarar sem verða við stjórnvölinn þegar Ísland tekur á móti Noregi í undankeppni HM 2014. Þetta er fyrsti leikur Íslands í keppninni og fer fram á Laugardalsvelli, föstudaginn 7. september kl. 18:45.

Dómaramál
Landslið

30. ágúst 2012

A kvenna - Staðfestur leiktími á lokaleikinn gegn Noregi

Knattspyrnusamband Evrópu hefur tilkynnt um leiktíma á leik Noregs og Íslands í undankeppni EM kvenna 2013.  Leikurinn fer fram miðvikudaginn 19. september á Ullevaal vellinum í Osló og hefst kl. 17:30 að íslenskum tíma.

Landslið

30. ágúst 2012

U19 karla - Hópur valinn fyrir vináttulandsleiki gegn Eistlandi

Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hóp fyrir tvo vináttulandsleiki gegn Eistlandi. Leikirnir fara fram föstudaginn 7. september kl. 15:00 á Víkingsvelli og sunnudaginn 9. september á Grindavíkurvelli kl. 16:00.

Landslið

29. ágúst 2012

Fyrri úrskurður í máli Vals gegn Leikni staðfestur

Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur staðfest úrskurð Aga-og úrskurðanefndar frá 14. ágúst varðandi leik Vals og Leiknis/KB á Íslandsmóti 2. flokks karla B-liðum. Leikurinn, sem fram fór 20. júlí var úrskurðaður Val tapaður með markatölunni 0-3.

Agamál

29. ágúst 2012

Fylkir auglýsir eftir þjálfara fyrir 7.flokk karla

Knattspyrnudeild Fylkis leitar að þjálfara fyrir 7. flokk karla í knattspyrnu fyrir komandi tímabil. Nýtt tímabil hefst í byrjun október. Áhugasömum er bent á að vera í sambandi við íþróttafulltrúa Fylkis, Hörð Guðjónsson, með því að senda tölvupóst á netfangið hordur@fylkir.com eða með því að hringja í síma 571-5604.

Fræðsla