8. júní 2012
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt æfingahóp fyrir Norðurlandamótið sem fer í Noregi í júlí. Úlfar velur 33 leikmenn fyrir þessar æfingar sem fara fram 15. og 16. júní.
7. júní 2012
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið 22 leikmenn í landsliðshóp sinn er mætir Ungverjum og Búlgörum síðar í þessum mánuði. Leikið verður við Ungverja á Laugardalsvelli, laugardaginn 16. júní en við Búlgari í Lovech, fimmtudaginn 21. júní.
6. júní 2012
Á nýjum styrkleikalista FIFA, sem gefinn var út í morgun, er karlalandslið Íslands í 131. sæti listans og stendur í stað frá því að síðasti listi var gefinn út. Spánverjar eru sem fyrr í efsta sæti en Uruguay veltir Þjóðverjum úr öðru sæti listans.
6. júní 2012
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur gert tvær breytingar á hópnum sem mætir Noregi í undankeppni EM en leikið verður í Drammen, þriðjudaginn 12. júní. Inn í hópinn koma þeir Andri Adolpsson úr ÍA og Arnór Ingvi Traustason úr Keflavík.
5. júní 2012
Strákarnir í U21 biðu lægri hlut gegn Aserum í undankeppni EM í kvöld en leikið var á KR vellinum. Lokatölur urðu 1 - 2 gestunum í vil eftir að Íslendingar höfðu leitt í leikhléi. Sigurmark Asera kom í uppbótartíma.
5. júní 2012
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Aserum í kvöld á KR velli kl. 19:15. Leikurinn er í undankeppni EM en Aserar höfðu betur þegar þessar þjóðir mættust ytra í febrúar á þessu ári.
5. júní 2012
Ísland og Aserbaídsjan mætast í kvöld í undankeppni EM U21 karla og hefst leikurinn kl. 19:15 á KR velli. Miðaverð á leikinn er 1.000 krónur fyrir fullorðna en frítt er inn fyrir 16 ára og yngri. Einnig er frítt inn fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega og geta þeir framvísað viðeigandi skírteinum við innganginn. Handhafar A skírteina geta einnig framvísað skírteinum við innganginn.
4. júní 2012
Þorvaldur Árnason verður í eldlínunni í dag þegar hann dæmir leik Litháen og Úkraínu í undankeppni EM U21 karla. Leikurinn fer fram í Kauna í Litháen og Þorvaldi til aðstoðar verða þeir Frosti Viðar Gunnarsson og Áskell Gíslason. Fjórði dómari er Þóroddur Hjaltalín.
4. júní 2012
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, var um helgina um Svíþjóð þar sem hann fylgdist með nokkrum landsliðskonum leika í sænsku úrvalsdeildinni. Framundan hjá kvennalandsliðinu er hörkubarátta um sæti í EM 2013 og er næsta verkefni hér á Laugardalsvelli þegar tekið verður á móti Ungverjum.
4. júní 2012
Strákarnir í U21 taka á móti Aserum á KR velli og fer leikurinn fram þriðjudaginn 5. júní og hefst kl. 19:15. Leikurinn er liður í undankeppni EM en íslenska liðið er sem stendur í neðsta sæti riðilsins með 3 stig eftir fimm leiki. Aserar eru sætinu yfir ofan, hafa 4 stig eftir fimm leiki.
4. júní 2012
Héraðsdómaranámskeið verður haldið í Sókninni 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ fimmtudaginn 7. júní kl. 19:00. Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara.
1. júní 2012
Knattspyrnuskóli stúlkna fer fram í næstu viku að Laugarvatni. Leikmenn í skólanum í ár fæddir 1998. Mæting er stundvíslega kl. 13:30 mánudaginn 11. júní á skrifstofu KSÍ á Laugardalsvelli. Ganga þarf frá greiðslu fyrir dvölina fyrir brottför.
1. júní 2012
Á nýjum styrkleikalista FIFA, sem gefinn var út í dag, er íslenska kvennalandsliðið í 17. sæti og fellur niður um 2 sæti frá síðasta lista. Litlar breytingar eru á milli lista og eru Bandaríkin á toppnum en Þjóðverjar skammt á eftir.
30. maí 2012
Íslendingar töpuðu 3 - 2 fyrir Svíum í vináttulandsleik sem fram fór á Gamla Ullevi vellinum í Gautaborg í kvöld. Staðan í leikhléi var 2 - 1 fyrir Svía sem skoruðu tvö mörk á fyrstu 14 mínútum leiksins. Kolbeinn Sigþórsson og Hallgrímur Jónasson skoruðu mörk Íslands.
30. maí 2012
A landslið karla mætir Svíum í vináttulandsleik á Gamla Ullevi í Gautaborg kl. 18:15 að íslenskum tíma í dag, miðvikudag. Byrjunarlið Íslands hefur verið tilkynnt og eru gerðar tvær breytingar frá leiknum við Frakka á dögunum.  Leikaðferðin er sem fyrr 4-4-2.
30. maí 2012
Karlalandsliðið leikur í kvöld vináttulandsleik gegn Svíum og verður leikið á Gamla Ullevi vellinum í Gautaborg. Leikurinn hefst kl. 18:15 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en útsendingin hefst kl. 18:05.
29. maí 2012
Lars Lagerbäck, þjálfari A landsliðs karla, sat fyrir svörum fulltrúa fjölmiðla á blaðamannafundi á Gamla Ullevi leikvanginum í Gautaborg. „Það er svolítið sérstakt fyrir mig að vera við stjórnvölinn á landsliði sem er að leika gegn Svíþjóð, en þetta er mjög spennandi verkefni og verður góð prófraun fyrir okkur."
29. maí 2012
Landslið Íslands munu því framvegis ferðast með hjartastuðtæki og fullbúnar neyðarsjúkratöskur ásamt hefðbundnum sjúkrabúnaði í öll sín verkefni, innanlands sem erlendis.