26. apríl 2012
Fundað var með fjölmiðlafulltrúum félaga í Pepsi-deild karla 2012 í vikunni. Starf þeirra á leikjum í Pepsi-deildinni verður sífellt mikilvægara með auknum fjölda miðla sem fjalla um deildina. Því er afar mikilvægt að fjölmiðlafulltrúarnir séu vel undirbúnir undir þetta krefjandi starf.
25. apríl 2012
Í samræmi við greinar 9.1 og 11. 2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Sigurður Örn Arnarson lék ólöglegur með ÍH gegn Reyni S. í Lengjubikar karla, þann 22. apríl síðastliðinn. Leikmaðurinn er skráður í FH.
25. apríl 2012
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Fram í Framheimilinu Safamýri fimmtudaginn 26. apríl og hefst kl. 18:00. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund.
23. apríl 2012
KSÍ hefur komist að samkomulagi við LMA í Englandi og Sportspath.com um að bjóða þjálfurum á Íslandi upp á þjálfaranámskeið í fjarnámi (í gegnum tölvu). Þetta námskeið nefnist „Evaluating performance“ og er um hvernig við metum frammistöðu í knattspyrnu
23. apríl 2012
KSÍ hefur komist að samkomulagi við LMA í Englandi og Sportspath.com um að bjóða þjálfurum á Íslandi upp á þjálfaranámskeið í fjarnámi (í gegnum tölvu). Námskeiðið inniheldur m.a. 6 klukkutíma af vídeóviðtölum við nokkra af kunnustu framkvæmdastjórum í ensku úrvalsdeildinni.
20. apríl 2012
Knattspyrnusambönd Íslands og Skotlands hafa komist að samkomulagi um vináttulandsleiki á milli þjóðanna hjá A landsliði kvenna og U23 kvenna. Leikirnir fara fram í Skotlandi 4. og 5. ágúst næstkomandi.  Stefnt er að því að Skotar endurgjaldi heimsóknina með A landsliði sínum sumarið 2013.
20. apríl 2012
Á miðvikudag undirritaði formaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, framlengingu á samstarfssamningi KSÍ við Icelandair, og gildir samningurinn því út árið 2014. Samningurinn felur í sér víðtækt samstarf sem felst m.a. í því að öll knattspyrnulandslið Íslands ferðast með Icelandair.
18. apríl 2012
Stelpurnar í U17 voru hársbreidd frá því að komast í úrslitakeppni EM hjá U17 kvenna en lokaumferð milliriðils þeirra fór fram í dag. Ísland lagði Belgíu með þremur mörkum gegn einu en á sama tíma vann Sviss England, 1 - 0. Sviss tryggði sér þar með efsta sætið í riðlinum og þátttökurétt í úrslitakeppninni í Sviss.
18. apríl 2012
Í samræmi við greinar 9.1 og 11. 2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Ívar Karl Hafliðason lék ólöglegur með Hugin gegn KFS í Lengjubikar karla þann 15. apríl síðastliðinn.
18. apríl 2012
Í samræmi við greinar 9.1 og 11. 2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að þeir Gunnlaugur Jónasson og Sölvi G. Gylfason léku ólöglegir með BÍ/Bolungarvík í Lengjubikar karla. Gunnlaugur lék ólöglegur gegn Fram þann 13. apríl síðastliðinn en Sölvi gegn Haukum, 15. apríl síðastliðinn.
18. apríl 2012
Í samræmi við greinar 9.1 og 11. 2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Jón Gísli Ström lék ólöglegur með ÍR gegn Víkingi R. í Lengjubikar karla, þann 23. mars síðastliðinn.
18. apríl 2012
Í samræmi við greinar 9.1 og 11. 2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Reynir Leósson lék ólöglegur með Víkingi R. gegn Stjörnunni í Lengjubikar karla, þann 13. apríl síðastliðinn.
18. apríl 2012
Stelpurnar í U17 leika í dag lokaleik sinn í milliriðli EM sem fram fer í Belgíu. Mótherjarnir eru heimastúlkur og hefst leikurinn kl. 16:00 að íslenskum tíma. Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið.
17. apríl 2012
Alþjóðanefnd FIFA hefur gert nokkrar breytingar á knattspyrnulögunum sem taka gildi 1. júní. Að venju munu þessar breytingar taka gildi á Íslandi við upphaf Íslandsmótsins/Bikarkeppninnar 1. maí. Nákvæmur texti verður birtur í nýrri útgáfu af knattspyrnulögunum um leið og endanlegur texti berst frá FIFA.
16. apríl 2012
Í samræmi við greinar 9.1 og 11. 2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Marinó Haraldssson lék ólöglegur með Hvíta Riddaranum gegn Árborgu í Lengjubikar karla, þann 31. mars síðastliðinn. Leikmaðurinn var skráður í Aftureldingu.
16. apríl 2012
Í samræmi við greinar 9.1 og 11. 2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Stefán Ari Björnsson lék ólöglegur með Ými gegn Létti í Lengjubikar karla, þann 11. apríl síðastliðinn. Leikmaðurinn var skráður í HK.
16. apríl 2012
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið undirbúningshóp fyrir úrslitakeppni EM sem fram fer í Slóveníu 4. - 16. maí. Ísland mun þar leika í riðli með Frakklandi, Þýskalandi og Georgíu.
16. apríl 2012
Á stjórnarfundi KSÍ, 12. apríl síðastliðinn, voru samþykktar breytingar á reglugerðum KSÍ og má finna þesar breytingar hér til hægri undir "Dreifibréf til félaga". Gerðar voru breytingar á reglugerð um knattspyrnuleikvanga og einnig á reglugerð um knattspyrnumót sem gerir það að verkum að leyfilegt er að vera með 7 varamenn og 7 í liðsstjórn í 2. deild karla.