23. febrúar 2012
Karlalandslið Íslands og Ungverjalands munu mætast í vináttulandsleik á Laugardalsvelli, mánudaginn 3. júní 2013. Þessi leikur er hluti af samkomulagi knattspyrnusambanda Íslands og Ungverjalands sem gert var á síðasta ári en þá mættust þjóðirnar í vináttulandsleik ytra þar sem Ungverjar fóru með sigur af hólmi.
22. febrúar 2012
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, framherjinn knái úr Vestmannaeyjum, ræddi við japanska fjölmiðla eftir æfingu landsliðsins á keppnisvellinum í Osaka. Gunnar Heiðar sagði að með menn ætluðu svo sannarlega að sýna sig og sanna fyrir nýja þjálfaranum í leiknum við Japan á föstudag.
22. febrúar 2012
Lars Lagerbäck, þjálfari A landsliðs karla, er að undirbúa lið sitt undir fyrsta leikinn undir hans stjórn, vináttuleik gegn Japan í Osaka 24. febrúar. Liðið æfði á keppnisvellinum undir kvöld og fyrir æfinguna svaraði þjálfarinn örfáum spurningum ksi.is, áður en hann sat fyrir svörum hjá Japönskum fjölmiðlum.
22. febrúar 2012
Námskeið fyrir aðstoðardómara verður haldið mánudaginn 27. febrúar í höfuðstöðvum KSÍ og hefst það kl. 19:00.  Ólafur Ingvar Guðfinnsson fyrrum FIFA aðstoðardómari mun fara yfir ýmis lykilatriði í aðstoðardómgæslunni.
22. febrúar 2012
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur gert breytingu á hópnum er mætir Aserbaídsjan ytra þann 29. febrúar í undankeppni EM. Rúnar Már S. Sigurjónsson úr Val kemur inn í hópinn í stað Eiðs Arons Sigurbjörnssonar sem er meiddur.
21. febrúar 2012
Fyrirhuguðu unglingadómaranámskeið sem halda átti á Neskaupstað, laugardaginn 25. febrúar, hefur verið frestað. Nánari dagsetning fyrir námskeiðið verður auglýst síðar hér á síðunni.
21. febrúar 2012
Aðalfundur SÍGÍ (Samtök íþrótta- og golfvallastarfsmanna á Íslandi) fer fram föstudaginn 24. febrúar á Laugardalsvelli og í framhaldi af honum fer fram ráðstefna samtakanna þar sem margir forvitnilegir fyrirlestrar eru á dagskrá. Þátttaka á ráðstefnuna er ókeypis.
20. febrúar 2012
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við ÍR í ÍR heimilinu fimmudaginn 23. febrúar og hefst kl. 19:00. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund.
20. febrúar 2012
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn sem leikur á Algarve Cup og hefst nú 29. febrúar. Fyrsti leikur Íslands er gegn Þjóðverjum, miðvikudaginn 29. febrúar. Aðrar þjóðir í riðlinum eru Svíar og Kínverjar.
20. febrúar 2012
Ein breyting hefur verið gerð á landsliðshópnum fyrir vináttulandsleikinn við Japan, sem fram fer í Osaka þann 24. febrúar. Theodór Elmar Bjarnason er meiddur og í hans stað kemur Halldor Orri Björnsson, leikmaður Stjörnunnar í Garðabæ.
17. febrúar 2012
Dagana 25. og 26. febrúar mun U16 landslið kvenna æfa í Kórnum og Egilshöll og hefur Þorlákur Árnason, þjálfari U17 kvenna, kallað 20 leikmenn til æfinga og koma leikmennirnir frá félögum víðs vegar af landinu..
17. febrúar 2012
U19 landslið kvenna tekur þátt í æfingamóti á La Manga á Spáni í mars og leikur þar við Skotland, Noreg og England. Ólafur Þór Guðbjörnsson, þálfari liðsins, hefur valið 18 manna hóp fyrir mótið. Þrír leikmenn í hópnum leika með erlendum félagsliðum.
17. febrúar 2012
Nú þegar keppni í Lengjubikarnum er að hefjast er rétt að minna félögin á bráðabirgðaákvæði í reglugerð KSÍ um félagaskipti, samninga og stöðu leikmanna og félaga. Þetta er grein 3.6 og er bráðabirgðaákvæði fyrir keppnistímabilið 2012.
17. febrúar 2012
Fimm félög af þeim sem undirgangast leyfiskerfið hafa nú þegar skilað sínum fjárhagsgögnum. Þetta eru Víkingur Ó., Keflavík, Fram, Grindavík og Stjarnan. Það verður því nóg um að vera hjá leyfisstjórn á mánudag, sem er lokaskiladagur fjárhagsgagna.
15. febrúar 2012
Unglingadómaranámskeið sem halda átti hjá Víkingi R. 22. febrúar og auglýst hafi verið á vef KSÍ hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Ný dagsetning fyrir námskeiðið verður tilkynnt síðar hér á vefnum.
15. febrúar 2012
Skiladagur fjárhagsgagna hjá þeim félögum sem undirgangast leyfiskerfið er mánudagurinn 20. febrúar. Flest félögin vinna nú hörðum höndum að því að klára gagnapakkann, en nú þegar hafa tvö félög skilað, Víkingur Ó. og Keflavík, sem skilaði sínum gögnum í dag.
15. febrúar 2012
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari A-landsliðs kvenna, verður á meðal áhorfenda á viðureign Belgíu og Norður-Írlands sem fram fer í dag, miðvikudaginn 15. febrúar, en Belgar eru einmitt næstu mótherjar Íslands í undankeppni EM.
15. febrúar 2012
Dagana 9. og 10. mars mun Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands (KÞÍ) í samstarfi við KSÍ standa fyrir námskeiði fyrir knattspyrnuþjálfara. Hingað til lands koma þeir Arnold Muhren og Eddie van Schaick, þjálfarar í unglingaakademíunni hjá hollenska stórliðinu Ajax og munu stýra námskeiðinu.