Search
SÍA

4. október 2011

Frítt fyrir börn, öryrkja og ellilífeyrisþega á Ísland – England

KSÍ býður börnum 16 ára og yngri, öryrkjum og ellilífeyrisþegum, ókeypis aðgang að landsleik Íslands og Englands í undankeppni EM U21 karla sem fram fer á Laugardalsvelli fimmtudaginn 6. október kl. 18:45.

Landslið

4. október 2011

U21 karla - Ísland mætir Englandi - A passar gilda við innganginn

Handhafar A-passa 2011 frá KSÍ þurfa ekki að sækja miða fyrir landsleik Íslands og Englands  í undankeppni EM U21 karla. Dugar að sýna passann við innganginn þegar mætt er á völlinn en leikið verður á Laugardalsvellinum. Frjálst sætaval er á leiknum sem hefst kl. 18:45, fimmtudaginn 6. október.

Landslið

3. október 2011

A landslið karla - Breytingar á hópnum fyrir leikinn gegn Portúgal

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert breytingar á hóp sínum er mætir Portúgal í undankeppni EM næstkomandi föstudag.  Inn í hópinn koma þeir Arnór Smárason, Baldur Sigurðsson og Guðmundur Kristjánsson.

Landslið

3. október 2011

U17 karla - Hópurinn valinn sem leikur í Ísrael

Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hópinn er leikur í undankeppni EM nú í október en leikið verður í Ísrael.  Mótherjarnir eru, auk heimamanna, Sviss og Grikkland.  Fyrsti leikur Íslands er gegn Sviss, miðvikudaginn 12. október.

Landslið

3. október 2011

U17 kvenna - Eva Lind kemur inn í hópinn

Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur gert eina breytingu á hópnum er tekur þátt í undankeppni EM.  Þorlákur hefur valið Evu Lind Elíasdóttur, Selfossi, í hópinn og kemur hún í stað Elínar Mettu Jensen úr Val.

Landslið

2. október 2011

A landslið karla - Kjartan Henry valinn í hópinn

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert eina breytingu á hóp sínum er mætir Portúgal í undankeppni EM.  Ólafur hefur valið Kjartan Henry Finnbogason í hópinn og kemur hann í stað Alfreðs Finnbogasonar sem á við meiðsli að stríða.

Landslið

30. september 2011

U19 karla - Úrtakshópur valinn fyrir fjórar æfingar í næstu viku

Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið úrtakshóp fyrir æfingar í næstu vikur.  Æfingarnar verða alls fjórar í þessar i atrennu og eru 30 leikmenn boðaðir á þessar æfingar.

Landslið

30. september 2011

U17 kvenna - Hópurinn valinn fyrir undankeppni EM í Austurríki

Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hóp sinn er leikur í Austurríki í undankeppni EM.  Leikið verður dagana 7. - 12. október og er Ísland í riðli með heimastúlkum, Kasakstan og Skotlandi.

Landslið

29. september 2011

U21 karla - Hópurinn gegn Englandi valinn

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn sem mætir Englendingum í undankeppni EM.  Leikið verður á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 6. október, kl. 18:45.  Þetta er þriðji leikur Íslendinga í þessari undankeppni en liðið vann Belga í fyrsta leik sínum en töpuðu gegn Noregi.

Landslið

29. september 2011

A landslið karla - Hópurinn gegn Portúgal valinn

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn mætir Portúgal í undankeppni EM en leikið verður í Porto, föstudaginn 7. október kl. 20:00.  Þetta er lokaleikur Íslands í riðlinum en Ísland hefur hlotið 4 stig til þessa í undankeppninni. 

Landslið

29. september 2011

U21 karla - Enski hópurinn er mætir Íslendingum

Englendingar hafa tilkynnt hópinn er mætir Íslendingum á Laugardalsvelli í EM U21 karla.  Leikurinn verður fimmtudaginn 6. október og hefst kl. 18:45.  Stuart Pearce, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt hópinn en England mætir fyrst Íslendingum áður en þeir halda til Noregs þar sem þeir mæta heimamönnum, 11. október.

Landslið

27. september 2011

Frá áfrýjunardómstól KSÍ - Úrskurði hrundið

Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur hrundið úrskurði aga- og úrskurðarnefndar KSÍ þar sem Þór var sektað vegna framkomu stuðningsmanna félagsins í leik Þórs og KR í Valitor-bikarnum.  Þór hafði í fyrri úrskurði verið sektað um 35.000 krónur.

Agamál

27. september 2011

U21 karla - Miðasala hafin á Ísland - England

Það er sannkallaður stórleikur framundan hjá strákunum í U21 en þeir taka á móti Englendingum á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 6. október kl. 18:45.  Miðasala á leikinn er hafin og fer hún fram í gegnum miðasölukerfi hjá www.midi.is.  Miðaverð er 1.000 krónur fyrir fullorðna, 17 ára og eldri, en frítt er inn fyrir börn 16 ára og yngri.

Landslið

26. september 2011

Norræn dómaraskipti - Guðrún Fema og Rúna Kristín til Noregs

Guðrún Fema Ólafsdóttir og Rúna Kristín Stefánsdóttir munu halda til Noregs á næstu dögum og starfa þar við leik Stabæk og Klepp í efstu deild kvenna, 2. október næstkomandi.  Guðrún Fema mun dæma leikinn og Rúna Kristín verður annar aðstoðardómara leiksins. 

Dómaramál

26. september 2011

24 landsleikir í september og október

September og október eru annasamir mánuðir hjá landsliðum Íslands en 24 landsleikir eru á dagskrá þessa tvo mánuði.  A landslið karla og kvenna, U21 og U19 karla ásamt U19 kvenna léku landsleiki í september og voru þeir 11 talsins. 

Landslið

26. september 2011

Kristinn dæmir í Úkraínu

Kristinn Jakobsson verður við störf á fimmtudaginn þegar hann dæmir leik Vorskla Poltava frá Úkraínu og Hannover frá Þýskalandi.  Leikurinn er í B riðli Evrópudeildar UEFA og verður leikinn í Úkraínu

Dómaramál

26. september 2011

2. október – Dagur án ofbeldis

Þann 2. október næstkomandi er fagnað degi baráttu fyrir tilveru án ofbeldis.  Ofbeldi er grundvallarvandamál okkar tíma.  Til að sýna samhug á táknrænan hátt verður mannlegt friðarmerki myndað á Klambratúni í Reykjavík þann 2. október kl. 20:00.

Fræðsla

23. september 2011

Kvennalandsliðið í 15. sæti á styrkleikalista FIFA

Íslenska kvennalandsliðið er í 15. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í morgun.  Ísland fer upp um 2 sæti frá síðasta lista en Bandaríkin tróna sem fyrr á toppi listans en Þjóðverjar eru skammt undan.

Landslið