9. september 2011
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið hópinn sem leikur í undankeppni EM.  Riðll Íslands verður leikinn hér á landi en mótherjarnir verða Wales, Slóvenía og Kasakstan.  Fyrsti leikur Íslands verður gegn Slóveníu á Vodafonevellinum, laugardaginn 17. september kl. 12:00.
9. september 2011
Knattspyrnudeild Gróttu óskar eftir að ráða þjálfara fyrir yngri flokka kvenna. Kvenþjálfarar eru sérstaklega hvattir til þess að sækja um.
8. september 2011
Aga- og úrskurðarnefnd hefur tekið fyrir kæru Augnabliks gegn KV vegna leiks liðanna í úrslitakeppni í 3. deild karla sem fram fór kl. 14.00 þann 27. ágúst 2011. Í úrskurðarorðum kemur fram að málinu sé vísað frá.
8. september 2011
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn er mætir Noregi og Belgíu á Laugardalsvelli, 17. og 21. september.  Leikirnir eru í undankeppni EM 2013 en Ísland hefur leikið einn leik til þessa í riðlinu, lögðu Búlgari fyrr á þessu ári.
8. september 2011
Stjarnan leitar eftir þjálfara fyrir 2.fl.kvk og 3.fl.kvk fyrir næsta tímabil. Hugsanlegt er að ráðið verði í sitthvorn flokkinn en áhugi er fyrir því að sami aðili sé með báða flokka.
7. september 2011
Knattspyrnudeild Fylkis leitar að þjálfurum fyrir yngri flokka félagsins á komandi tímabil. Áhugasömum er bent á að vera í sambandi við íþróttafulltrúa Fylkis Hörð Guðjónsson með því að senda tölvupóst á netfangið hordur@fylkir.com eða með því að hringja í síma 571-5604.
7. september 2011
Þann 20. september næstkomandi eru liðin 30 ár frá fyrsta kvennalandsleik Íslands. Þessi fyrsti landsleikur var viðureign A landsliðs kvenna við Skotland.  Um var að ræða vináttulandsleik sem leikinn var í Kilmarnock og lauk honum með 3-2 sigri heimamanna.
7. september 2011
Fyrir leik Íslands og Kýpurs var Rúnar Kristinsson heiðraður af Knattspyrnusambandi Evrópu og fékk afhentan minnispening og húfu (cap) af því tilefni.  UEFA var þarna að heiðra þá knattspyrnumenn í Evrópu sem hafa náð 100 landsleikjamarkinu.  Það var Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, sem heiðraði Rúnar.
6. september 2011
Íslendingar unnu langþráðan sigur í kvöld í undankeppni EM þegar Kýpverjar voru lagðir af velli á Laugardalsvelli í kvöld. Mark Kolbeins Sigþórssonar á 5. mínútu dugði til sigurs og eru Íslendingar með fjögur stig í fjórða sæti riðilsins.
6. september 2011
U21 landslið karla tapaði 0-2 gegn Noregi í undankeppni EM 2013, en liðin mættust á Kópavogsvellinum í dag. Eitt mark í hvorum hálfleik gerði út um leikinn og eru nú fjögur lið í riðlinum með 3 stig, en Englendingar og Norðmenn hafa reyndar aðeins leikið einn leik.
6. september 2011
Í hálfleik á viðureign Íslands og Kýpurs í undankeppni EM 2012 reyndu fimm heppnir vallargestir að spyrna knetti frá vítateigsboganummeð það fyrir augum að hitta þverslána. Ágústi Valves Jóhannessyni tókst verkið og fékk hann utanlandsferð fyrir tvo með Icelandair að launum.
6. september 2011
Byrjunarlið U21 landsliðs karla gegn Norðmönnum í undankeppni EM 2013 hefur verið tilkynnt. LIðin mætast á Kópavogsvelli í dag og hefst leikurinn kl. 16:15, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
6. september 2011
Sigmundur Þórðarson á Þingeyri sendi A landsliði karla góða gjöf og baráttukveðjur fyrir leikinn gegn Kýpur í undankeppni EM 2012. Helgi Valur Daníelsson og Alfreð Finnbogason tóku við gjöfinni, sem var af veglegri gerðinni – alvöru vestfirskur harðfiskur.
6. september 2011
Það verða Serbar sem sjá um dómgæsluna á viðureign Íslands og Kýpurs í undankeppni EM 2012 á Laugardalsvellinum í kvöld.  Dómari leiksins er Bosko Jovanetic.  Eftirlitsmennirnir koma frá Lúxemborg og Wales.
6. september 2011
Ísland og Kýpur mætast kl. 18:45 í kvöld á Laugardalsvellinum. Þetta er síðasti heimaleikur íslenska liðsins í undankeppni EM 2012 og strákarnir eru staðráðnir í að innbyrða fyrsta sigurinn og lyfta sér þér með af botninum og upp fyrir Kýpur.
5. september 2011
U19 landslið karla lagði Eistland öðru sinni íþegar liðin mættust að nýju í vináttulandsleik í Eistlandi í dag.  Úrslit leiksins voru 1-0 og var það Hólmbert Aron Friðjónsson sem skoraði eina mark leiksins.  Fyrri vináttuleik liðann lauk með 4-1 sigri Íslands.
5. september 2011
U21 landslið karla leikur annan leik sinn í undankeppni EM 2013 þegar það mætir Norðmönnum á Kópavogsvellinum kl. 16:15 á þriðjudag.  Íslenska liðið fór vel af stað í keppninni og vann 2-1 sigur á Belgum á Vodafone-vellinum í síðustu viku.
5. september 2011
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur kallað á markvörðinn Harald Björnsson og sóknarmanninn Björn Bergmann Sigurðarson inn í landsliðhópinn fyrir leikinn gegn Kýpverjum á þriðjudag. Liðin mætast á Laugardalsvelli og hefst leikurinn kl. 18:45.