10. ágúst 2011
Ólafur Jóhannesson, þjálfari A landsliðs karla, hefur opinberað byrjunarlið sitt gegn Ungverjum, en Ísland leikur vináttuleik gegn ungverska liðinu í dag og hefst leikurinn, sem er í beinni á Stöð 2 sport, kl. 17:45.
10. ágúst 2011
A landslið karla tapaði með fjórum mörkum gegn engu í vináttuleik í Búdapest í kvöld.  Fyrri hálfleikurinn var nokkuð jafn og liðin skiptust á að sækja, en heimamenn náðu að setja tvö mörk.  Ungverjarnir voru sterkari í síðari hálfleik og bættu við tveimur mörkum.
9. ágúst 2011
Þeir Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og Ásgeir Þór Ásgeirsson voru í dómarateyminu á leik FC Espoo og KPV í næst efstu deild í Finnlandi þann 7. ágúst.  Þetta verkefni var hluti í samstarfi knattspyrnusambandanna á Norðurlöndunum í norrænum dómaraskiptum.  
8. ágúst 2011
Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur tekið fyrir áfrýjun Víkings Ólafsvík gegn Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ þar sem þjálfari Víkings Ól. var dæmdur í þriggja leikja bann. Áfrýjandi krafðist þess að leikbannið yrði stytt.
8. ágúst 2011
KSÍ heldur 6. stigs þjálfaranámskeið í Wokefield Park, Englandi dagana 30. janúar til 6. febrúar 2012.  Umsækjendur verða að hafa lokið KSÍ V þjálfaranámskeiði eða verða að taka KSÍ V þjálfaranámskeið sem haldið verður í október á þessu ári.
8. ágúst 2011
Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á hópnum hjá A-landsliði karla fyrir vináttulandsleikinn gegn Ungverjum á miðvikudag.  Fimm leikmenn hafa helst úr lestinni og í staðinn hefur Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari kallað á fjóra.
8. ágúst 2011
Miðasala á viðureign Noregs og Íslands í undankeppni EM 2012 er hafin, en liðin mætast í Osló 2. september næstkomandi. Hægt er að panta miða á leikinn hjá KSÍ, fyrir 19. ágúst nk. til að tryggja miða.
7. ágúst 2011
Ísland tryggði sér í dag Norðurlandameistaratitilinn hjá U17 karla þegar þeir lögðu Dani í úrslitaleik á Þórsvelli í dag.  Lokatölur urðu 1 - 0 fyrir Ísland og skoraði Ævar Ingi Jóhannesson markið á 22. mínútu.  Ísland 2 lék einnig í dag við Norðmenn í leik um 3. sætið en þar höfðu Norðmenn betur, 2 - 1.
7. ágúst 2011
Í dag verður leikið um sæti á Norðurlandamóti U17 karla og leika bæði íslensku liðin um verðlaunasæti á mótinu. Ísland og Danmörk leika til úrslita á mótinu en þjóðirnar mætast á Þórsvelli kl. 13:00. Allir aðrir leikir um sæti hefjast kl. 11:00 og þeirra á meðal er leikur Íslands og Noregs sem hefst kl. 11:00, einnig á Þórsvelli.
5. ágúst 2011
Í dag fara fram lokaleikirnir í riðlakeppni Norðurlandamóts U17 karla og verður leikið í dag á Dalvík og á Húsavík.  Mikil spenna er fyrir lokaumferðina og margir möguleikar í spilinu en leikið verður um sæti á sunnudaginn og fara þeir leikir fram á Akureyri og Grenivík.
4. ágúst 2011
Knattspyrnusamband Íslands kynnir Þjálfaraskóla KSÍ. Aðildarfélög KSÍ og starfandi knattspyrnuþjálfarar hjá þeim geta haft samband við fræðsludeild KSÍ og fengið leiðbeinanda frá KSÍ í heimsókn á 3-4 æfingar.
3. ágúst 2011
Á fundi Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ 2. ágúst 2011 var samþykkt að sekta KR um 25.000.- vegna framkomu stuðningsmanna félagsins í leik BÍ/Bolungarvíkur og KR í Valitor-bikar KSÍ 31. júlí 2011.
3. ágúst 2011
Úrtökumót KSÍ 2011 fyrir stúlkur fæddar árið 1996 fer fram dagana 12. - 14. ágúst.  Úrtökumótið verður á Laugarvatni og eru félög leikmanna eru beðin um að kynna sér upplýsingar sem finna má hér að neðan.
3. ágúst 2011
Á öðrum leikdegi á Norðurlandamóti U17 karla voru sigur og jafntefli aftur upp á teningnum á íslensku liðunum.  Ísland 1 lagði Færeyjar með þremur mörkum gegn engu og Ísland 2 gerði jafntefli við Finna, 1 - 1.
3. ágúst 2011
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn er mætir Ungverjum í vináttulandsleik, miðvikudaginn 10. ágúst.  Leikið verður á Ferenc Puskas vellinum í Búdapest og hefst leikurinn kl. 17:45 að íslenskum tíma.  Tveir nýliðar eru í hópnum að þessu sinni og eru þeir báðir markverðir.
3. ágúst 2011
Í dag fara fram fjórir leikir á Norðurlandamóti U17 karla og verða leikir dagsins á Sauðárkróki og Ólafsfirði.  Eins og áður hefur komið fram er Ísland með tvö lið að þessu sinni á mótinu.  Ísland 1 mætir Færeyjum á Sauðárkróki kl. 14:00 en Ísland 2 leikur gegn Finnum á Ólafsfirði kl. 16:00.
2. ágúst 2011
Í dag hefst Norðurlandamót U17 karla og verður það leikið víðsvegar um Norðurland.  Ísland er að þessu sinni með tvö lið í mótinu en aðrar þjóðir eru: Færeyjar, Noregur, Svíþjóð, Danmörk, Finnland og England.  Leikirnir í dag fara allir fram á Akureyri, á Akureyrarvelli og Þórsvelli. 
2. ágúst 2011
Norðurlandamót karla U17 hefur göngu sína í dag og að þessu sinni er Ísland með tvö lið í mótinu.  Ísland 1 mætir Noregi kl. 16:00 á Þórsvelli en núna kl. 14:00 leikur Ísland 2 gegn Svíum.  Gunnar Guðmundsson stjórnar liði 1 en Freyr Sverrisson stjórnar liði 2.  Þeir hafa tilkynnt byrjunarlið sín.