18. maí 2011
Stelpurnar okkar leika sinn fyrsta leik í undankeppni EM kvenna á morgun, fimmtudaginn 19. maí, á Laugardalsvelli.  Mótherjarnir eru Búlgarir og hefst leikurinn kl. 19:30.  Miðasala er í gangi hjá midi.is og kostar 1.000 krónur fyrir fullorðna 17 ára og eldri en frítt er inn fyrir 16 ára og yngri.
17. maí 2011
Dómarar leiksins Íslands - Búlgaríu í undankeppni EM kvenna, sem fram fer á fimmtudaginn, koma frá Rúmeníu. Dómarinn heitir Floarea Cristina Babadac-Ionescu. Henni til aðstoðar verða þær Petruta Claudia Iugulescu og Carmen Gabriela Morariu.
17. maí 2011
Handhafar A-passa frá KSÍ þurfa ekki að sækja miða fyrir landsleik Íslands og Búlgaríu í undankeppni EM kvenna. Dugar að sýna passann við innganginn þegar mætt er á völlinn. Frjálst sætaval er á leiknum sem hefst kl. 19:30, fimmtudaginn 19. maí.
17. maí 2011
Héraðsdómaranámskeið verður haldið í Sókninni 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ 26. maí kl. 19:00. Námskeiðið er hugsað fyrir unglingadómara sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara. Hér er gott tækifæri fyrir félögin að finna líkleg dómaraefni og senda þau á námskeiðið.
17. maí 2011
Námskeiðið er haldið af KSÍ þriðjudaginn 31. maí og hefst kl. 19:30. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund. Allir sem náð hafa 15 ára aldri eru velkomnir á námskeiðið. Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk
16. maí 2011
Tækniskóli KSÍ er DVD diskur sem KSÍ gefur út í 20.000 eintökum og er færður öllum börnum og unglingum að gjöf sem æfa knattspyrnu og eru 16 ára og yngri.  Markmiðið með disknum er að efla knatttækni hjá börnum og unglingum, hvetja þau til aukaæfinga, jákvæðrar hreyfingar og vekja athygli á heilbrigðum fyrirmyndum í A-landsliði karla og kvenna og í U-21 árs landsliði karla. 
13. maí 2011
Miðasala á leik Íslands og Búlgaríu í undankeppni EM er nú hafin en miðasala fer fram sem fyrr í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.  Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 19. maí og hefst kl. 19:30.  Miðaverð á leikinn er 1.000 krónur en frítt er inn fyrir börn, 16 ára og yngri.
13. maí 2011
KSÍ bauð fulltrúum fjölmiðla á fræðslufund um knattspyrnulögin í vikunni þar sem farið var yfir ýmis atriði, leikbrot, rangstöðu, hendi eða ekki hendi, og fleiri þætti sem mikið er rætt um í fjölmiðlum sem annars staðar eftir fótboltaleiki.
13. maí 2011
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt hóp 40 leikmanna sem tilkynntur hefur verið til UEFA fyrir úrslitakeppni EM U21 karla sem fram fer í Danmörku í sumar.  Úr þessum hópi verða svo valdir 23 leikmenn sem munu leika í Danmörku en fyrsti leikur Íslands verður gegn Hvít Rússum, 11. júní í Árósum.
12. maí 2011
Aga- og úrskurðarnefnd hefur úrskurðað í máli KH gegn Létti vegna leiks þessara félaga í 1. umferð Valitors bikars karla sem leikinn var 4. maí síðastliðinn. Í úrskurðarorðum kemur fram að KH sé dæmdur sigur í leiknum, 0 - 3.
12. maí 2011
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið 28 leikmenn í undirbúningshóp fyrir úrslitakeppni EM.  Þar er Ísland ein fjögurra þjóða en úrslitakeppnin fer fram í Nyon í Sviss, 28. - 31. júlí.  Ísland mætir Spánverjum í undanúrslitum en í hinum undanúrslitaleiknum leika Frakkar og Þjóðverjar.
11. maí 2011
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag landsliðshópinn er mætir Búlgaríu í undankeppni EM 2013. Þetta er fyrsti leikurinn í þessari undankeppni og fer hann fram á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 19. maí kl. 19:30. Sigurður Ragnar velur 22 leikmenn og þar af eru þrír nýliðar.
10. maí 2011
Leyfisstjóri fundaði með fulltrúum Breiðabliks í byrjun mánaðarins. Þessi fundur er liður í því að aðstoða félögin sem undirgangast leyfiskerfið og tryggja að þau uppfylli skilyrði um hæfni starfsmanna sem bera ábyrgð á þjónustu við fjölmiðla og málum tengdum öryggi og gæslu.
5. maí 2011
Tækniháskólinn í Chemnitz í Þýskalandi hefur leitað til knattspyrnusambanda í Evrópu vegna könnunar sem skólinn er að vinna vegna verkefnis UEFA um Fjárhagslega háttvísi (Financial Fair Play).  Leitað er álits knattspynuáhugafólks og stuðningsmanna um gjörvalla Evrópu.
3. maí 2011
Héraðsdómaranámskeið verður haldið í Hamri á Akureyri 12. maí kl. 19:00. Námskeiðið er hugsað fyrir unglingadómara sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara. Ekkert próf en viðvera gefur réttindi til héraðsdómara.
3. maí 2011
Dómaranámskeið fyrir konur verður haldið í Hamri á Akureyri 10. maí kl. 19:00. Þetta námskeið er ætlað konum sem hafa áhuga á því gerast Héraðsdómarar og dæma í efri deildum.  Um er að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur.  Ekkert próf en viðvera gefur réttindi til héraðsdómara.
3. maí 2011
Fimmtudaginn 5. maí verður Dick Bate, sem starfar sem Elite Coaching Manager hjá Enska knattspyrnusambandinu, hér á landi og mun halda stutt námskeið að því tilefni. Námskeiðið ber yfirskriftina Wide attacker development og verður bæði bóklegt og verklegt.
3. maí 2011
Eins og undanfarin ár starfrækir Knattspyrnusamband Íslands í sumar knattspyrnuskóla fyrir stúlkur og drengi. Í ár eru þetta iðkendur fæddir 1997.  Knattspyrnuskóli drengja verður dagana 6. – 10. júní og Knattspyrnuskóli stúlkna verður 14. – 18. júní.