29. mars 2011
Lokaumferð EM-milliriðils U17 karla fer fram í dag og hefjast báðir leikirnir í riðli Íslands kl. 15:00 að íslenskum tíma.  Drengirnir okkar leika gegn Rússum og hefur Gunnar Guðmundsson, þjálfari liðsins, tilkynnt byrjunarliðið.
28. mars 2011
Strákarnir okkar í U21 landsliði karla unnu í kvöld góðan 2-1 sigur á Englendingum í vináttulandsleik sem fram fór á Deepdale-leikvanginum. Íslenska liðið lék vel í leiknum og er þessi sigur auðvitað gott veganesti fyrir liðið, sem leikur í úrslitakeppni EM í Danmörku í sumar.
28. mars 2011
Eyjólfur Sverrisson. landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Englendingum í vináttulandsleik í kvöld. Leikurinn hefst kl. 18:45 að íslenskum tíma og er síðari hálfleikur í beinni útsendingu hjá Ríkissjónvarpinu.
28. mars 2011
Að loknu leyfisferlinu á ári hverju fer fram svokallað árlegt endurmat, að kröfu UEFA, þar sem farið er yfir alla þætti kerfisins og skoðað hvað vel hefur gengið og hvað mætti betur fara.  Svör bárust frá 18 félögum af þeim 25 sem undirgengust leyfiskerfið að þessu sinni.
27. mars 2011
Fjórir leikmenn bætast við hópinn hjá U21 karla fyrir vináttulandsleikinn gegn Englandi sem fram fer í Preston á morgun, mánudag. Við hópinn bætast þeir Alfreð Finnbogason, Arnór Smárason, Birkir Bjarnason og Guðmundur Kristjánsson en þeir voru með A landsliðshópnum á Kýpur. Þá mun markvörðurinn Haraldur Björnsson einnig koma í hópinn að nýju.
26. mars 2011
U17 landslið karla tapaði 0-2 fyrir Ungverjum í milliriðli EM í dag, en riðillinn er einmitt leikinn í Ungverjalandi.  Þetta tap þýðir því miður að drengirnir okkar eiga ekki möguleika á að komast áfram í úrslitakeppnina.  Aðeins efsta liðið fer áfram í keppninni.
26. mars 2011
A landslið karla náði fyrsta stigi sínu í höfn í undankeppni EM 2012 með markalausu jafntefli við Kýpur í Nicosia í dag, laugardag.  Heimamenn voru mun meira með boltann í leiknum, en náðu ekki að skapa sér afgerandi færi, ef undan er skilin vítaspyrna sem Stefán Logi Magnússon varði meistaralega.
26. mars 2011
Í dag, laugardaginn 26. mars, er Knattspyrnusamband Íslands 64 ára. Fjórtán félög og íþróttabandalög stofnuðu KSÍ 26. mars 1947 og var Agnar Klemens Jónsson fyrsti formaður KSÍ.
25. mars 2011
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Kýpur í undankeppni EM á morgun, laugardaginn 26. mars. Leikurinn hefst kl. 18:00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
25. mars 2011
Samkvæmt afgreiðslu leyfisráðs á umsóknum félaga um þátttökuleyfi 2011 uppfylltu þrjú félög ekki kröfu um menntun unglingaþjálfara. Á fundi Aga- og úrskurðarnefndar KSÍ var fjallað um málið og var ákveðið að beita viðurlögum í samræmi við lið 8.1. í leyfisreglugerð KSÍ.
25. mars 2011
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur bætt Hirti Loga Valgarðssyni inn í hópinn fyrir vináttulandsleikinn gegn Englandi á mánudaginn.  Hinsvegar munu þeir Jósef Kristinn Jósefsson, Eiður Aron Sigurbjörnsson og Guðmundur Reynir Gunnarsson ekki vera með gegn Englendingum vegna meiðsla.
25. mars 2011
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur gert eina breytingu á hópnum sem leikur í milliriðli EM í Wales.  Anna María Baldursdóttir úr Stjörnunni kemur inn í hópinn í stað Írunnar Aradóttur.
25. mars 2011
Strákarnir í U17 leika á morgun, laugardaginn 27. mars, annan leik sinn í milliriðli EM en hann er leikinn í Ungverjalandi. Leikið verður við heimamenn og hefst leikurinn kl. 14:00 og er hægt að fylgjast með textalýsingu af leiknum á heimasíðu UEFA. Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið.
25. mars 2011
Tveir af þremur markvörðum í A landsliðshópnum eiga við meiðsli að stríða og eru ekki leikfærir fyrir leikinn gegn Kýpur á morgun. Þess vegna hefur Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, kallað í Harald Björnsson markvörð U21 karla. Í stað Haraldar hefur Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21, kallað Óskar Pétursson í U21 hópinn
25. mars 2011
Færeyskir dómarar verða hér á landi um helgina og eru að leggja lokahönd á undirbúning sinn fyrir færeysku deildina sem hefst 9. apríl.  Þeir munu einnig koma við sögu í tveimur leikjum í Lengjubikar karla um helgina.
24. mars 2011
Strákarnir í U21 biðu lægri hlut gegn Úkraínu í vináttulandsleik sem fram fór í kvöld í Kænugarði.  Lokatölur urðu 3 - 2 fyrir heimamenn eftir að þeir höfðu leitt í leikhléi, 1 - 0.  Aron Jóhannsson og Björn Bergmann Sigurðarson skoruðu mörk Íslands í leiknum.
24. mars 2011
Strákarnir í U17 gerðu jafntefli í fyrsta leik sínum í milliriðli fyrir EM en riðillinn er leikinn í Ungverjalandi.  Mótherjarnir í fyrsta leiknum voru Rúmenar og lauk leiknum með markalausu jafntefli.  Næsti leikur Íslands verður gegn Ungverjum á laugardaginn.
24. mars 2011
Íslenska karlalandsliðið mun æfa tvisvar í dag en liðið undirbýr sig nú fyrir leikinn gegn Kýpur í undankeppni EM.  Liðið æfði í gær og í dag verða tvær æfingar.  Vel fer um hópinn og aðstæður hinar ágætustu þó svo að vel hafi rignt á æfingunni í gær.