13. febrúar 2010
Nokkrar tillögur lágu fyrir 64. ársþingi KSÍ en tillögurnar má sjá hér að neðan sem og hvernig þær voru afgreiddar.
13. febrúar 2010
Hér að neðan má sjá ræðu Geirs Þorsteinssonar, formanns KSÍ, sem hann hélt við setningu ársþings KSÍ sem fram fór laugardaginn 13. febrúar.
13. febrúar 2010
Hér að neðan má sjá ávarp formanns KSÍ, Geirs Þorsteinssonar, á 64. ársþingi KSÍ en þingið var sett kl. 11:00 í morgun í höfuðstöðvum KSÍ.
13. febrúar 2010
Jafnréttisverðlaun voru nú veitt í annað skiptið á ársþingi KSÍ.  Að þessu sinni voru það ÍA og ÍR sem að fengu þessa viðurkenningu.
13. febrúar 2010
Á 64. ársþingi KSÍ fékk Ríkissjónvarpið viðurkenningu fyrir umfjöllun sína og efnistök um úrslitakeppni EM kvenna sem fram fór í Finnlandi á síðasta ári.  Það var Kristín Harpa Hálfdánardóttir sem veitti viðurkenningunni móttöku fyrir hönd RUV og tileinkaði hana minningu Hrafnkels Kristjánssonar.
12. febrúar 2010
Leyfisstjórn hefur tekið þá ákvörðun að skiladagur fjárhagslegra leyfisgagna verði mánudagurinn 22. febrúar. Áætlaður skiladagur samkvæmt leyfisferlinu er 20. febrúar, sem er laugardagur að þessu sinni, og því hefur verið ákveðið að framlengja skilafrestinn til mánudagsins 22. febrúar.
11. febrúar 2010
Nú er ljóst hvar íslenska kvennalandsliðið leikur útileiki sína gegn Serbíu og Króatíu en leikirnir, sem eru í undankeppni fyrir HM 2011, fara fram 27. og 31. mars. Næsta verkefni kvennalandsliðsins er hinsvegar hið sterka Algarve Cup en það hefst 24. febrúar næstkomandi
11. febrúar 2010
KSÍ hefur ákveðið að fara af stað með fræðslufundi í hádeginu einu sinni í mánuði. Fræðslufundirnir verða í formi 30 mínútna fyrirlesturs um ólík efni hverju sinni og svo svör við spurningum. KSÍ mun jafnframt bjóða gestum upp á súpu og brauð á þessum fyrirlestrum
10. febrúar 2010
Á dögunum heimsótti landsliðskonan Hólmfríður Magnúsdóttir knattspyrnukrakka á Ísafirði og í Súðavík. Með Hólmfríði í för var Guðlaugur Gunnarsson grasrótarfulltrúi KSÍ. Hólmfríður mætti á æfingar hjá krökkunum, stjórnaði upphitun og tók þátt í æfingum.
10. febrúar 2010
Dagana 23. og 24. júlí munu U17 og U19 kvennalandslið Íslands leika vináttulandsleiki við jafnaldra sína í Færeyjum. Hvort lið um leika 2 landsleiki en þessir leikir eru hluti af samstarfsverkefni knattspyrnusamband Íslands og Færeyja.
10. febrúar 2010
Laugardaginn 13. febrúar næstkomandi fer fram 64. ársþing KSÍ í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal.  Alls hafa 134 fulltrúar rétt til setu á þinginu, en nú þegar hefur kjörbréfum verið skilað fyrir 127 fulltrúa. 
10. febrúar 2010
Dómararnir Kristinn Jakobsson og Þóroddur Hjaltalín og aðstoðardómararnir Áskell Þór Gíslason, Frosti Viðar Gunnarsson og  Gunnar Sverrir Gunnarsson eru staddir í boði norska knattspyrnusambandsins á Marbella á Spáni.
10. febrúar 2010
Hér á fræðsluvefnum má finna ýmsan fróðleik sem tengist knattspyrnu á einn og annan hátt. Nú hefur bæst við þennan fróðleik því að nú má finna tengil hér á síðunni þar sem finna má 33 lokaritgerðir er tengjast knattspyrnu á ýmsan hátt og er sífellt að bætast við safnið
10. febrúar 2010
Um komandi helgi verða úrtaksæfingar hjá U17 og U19 karla og hafa landsliðsþjálfararnir, Gunnar Guðmundsson og Kristinn R. Jónsson, valið leikmenn fyrir þessar æfingar. Tveir hópar eru boðaðir hjá U19 karla.
7. febrúar 2010
Dregið var í riðla í undankeppni EM 2012 í dag og fór drátturinn fram í Varsjá í Póllandi. Úrslitakeppnin fer fram í Póllandi og Úkraínu. Ísland dróst í fimm liða H-riðil ásamt Kýpur, Noregi, Danmörku og Portúgal.
5. febrúar 2010
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur tekið fyrir erindi framkvæmdastjóra KSÍ, þar sem óskað var eftir því að nefndin tæki fyrir mál sem tengist leyfisgögnum Fram árið 2009.  Ljóst þótti að Fram hefði lagt fram röng leyfisgögn með umsókn um þátttökuleyfi fyrir keppnistímabilið 2009.
5. febrúar 2010
Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ)  birtir nú ársreikning sinn fyrir árið 2009. Rekstrartekjur KSÍ á árinu 2009 námu 703 milljónum króna samanborið við 870 milljónir króna á árinu 2008. Lækkun rekstrartekna skýrist fyrst og fremst af lækkun á erlendum tekjum.
4. febrúar 2010
KSÍ og félag deildardómara hafa undirritað nýjan samning sem er til þriggja ára og gildir því keppnistímabilin 2010, 2011 og 2012.  Samningurinn tekur m.a. mið af ákvæðum er fram koma í dómarasáttmála UEFA sem KSÍ er aðili að og samþykktu dómarar samninginn á fundi sínum þann 1. febrúar.