4. september 2009
Þjóðverjar og Norðmenn tryggðu sér í dag, föstudag, sæti í undanúrslitum á EM kvennalandsliða, sem fer eins og kunnugt er fram í Finnlandi. Bæði þessi lið voru með Íslandi í B-riðli og bæði lögðu íslenska liðið með sömu markatölu, 1-0.
4. september 2009
Í hálfleik á viðureign Íslands og Noregs í undankeppni HM 2010, sem fram fer á laugardag, munu þrír heppnir vallargestir Laugardalsvallar fá tækifæri til að spreyta sig í erfiðri þraut. Þeir munu reyna að hitta slána og vinna ferð fyrir tvo til útlanda.
4. september 2009
Eins og kunnugt er mætast Ísland og Noregur á Laugardalsvelli á laugardag kl. 18:45. Þetta er lokaleikur íslenska liðsins í undankeppni HM 2010. Fólk er hvatt til að mæta snemma á völlinn til að lenda ekki í biðröð utan við leikvanginn. Mætum öll í bláum fötum og litum stúkuna bláa!
4. september 2009
FIFA stendur nú fyrir sérstökum háttvísidögum í 13. sinn, en þeir voru fyrst haldnir árið 1997. Að þessu sinni urðu dagarnir 5. til 9. september fyrir valinu, en á því tímabili eru einmitt tveir landsleikjadagar.
4. september 2009
Það verða Rúmenar sem dæma viðureign Íslands og Noregs í undankeppni HM 2010 á laugardag. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og hefst kl. 18:45. Dómarinn heitir Alexander Tudor.
3. september 2009
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur gert eina breytingu á hóp sínum sem leikur tvo vináttulandsleiki gegn Skotum. Árni Snær Ólafsson úr ÍA kemur inn í hópinn fyrir Arnar Darra Pétursson sem er meiddur.
3. september 2009
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur gert eina breytingu á landsliðshóp sínum fyrir leikinn gegn Norður Írum næstkomandi þriðjudag. Elfar Freyr Helgason úr Breiðabliki er kominn í hópinn og kemur hann fyrir Andrés Már Jóhannesson sem er meiddur.
2. september 2009
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið leikmenn til úrtaksæfinga um komandi helgi. Gunnar valdi 27 leikmenn til þessara æfinga og fara æfingarnar fram á Tungubökkum í Mosfellsbæ.
2. september 2009
Nú eru allra síðustu forvöð að sjá heimildarmyndina "Stelpurnar okkar" en sýningum verður hætt núna 3. september. Almennt verð á myndina er 1100 krónur en með því að gefa upp kóðann HZ88 í miðasölu Háskólabíós, fæst miðinn á 750 krónur.
2. september 2009
Ævintýri íslenska kvenna-landsliðsins í Finnlandi er nú lokið, en af frammistöðu liðsins að dæma er ljóst að þátttaka þeirra í úrslitakeppninni nú er aðeins upphafið að frekari afrekum.  Við erum öll í íslenska landsliðinu og getum verið stolt af framgöngu þess í lokakeppninni í Finnlandi. 
2. september 2009
Hermann Hreiðarsson mun ekki verða með í landsleikjunum sem framundan eru gegn Noregi og Georgíu. Hermann á við meiðsli að stríða og varð endanlega ljóst nú í kvöld að þessi meiðsli koma í veg fyrir að hann verði með í þessum landsleikjum.
2. september 2009
Dagana 4. - 9. september hefst keppni í riðlakeppni EM U17 kvenna en riðill Íslands fer fram hér á landi.  Mótherjar Íslendinga í þessari riðlakeppni verða Þjóðverjar, Frakkar og Ísraelar.  Fyrsti leikur Íslands fer fram á Vodafonevellinum á föstudaginn og hefst kl. 15:00.
2. september 2009
Von er á um 1000 Norðmönnum á landsleik Íslands og Noregs á Laugardalsvellinum á laugardaginn. Búist má við mikilli stemningu hjá rauðklæddum Norðmönnum og er ljóst að ærið verkefni bíður íslenskra áhorfenda líkt og leikmanna.
1. september 2009
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari karla, valdi í dag 22 leikmenn til tveggja verkefna sem framundan eru.  Annars vegar er leikur gegn Norðmönnum í undankeppni HM á laugardaginn og hins vegar vináttuleikur gegn Georgíu á miðvikudaginn. Báðir leikirnir verða spilaðir á Laugardalsvelli.  Heimasíðan hitti Ólaf í dag og spjallaði við hann um komandi verkefni.
1. september 2009
Knattspyrnusamband Íslands og Icelandair undirrituðu í dag samkomulag um áframhaldandi samstarf til næstu fjögurra ára (2010-2013).  Í samningnum felst stuðningur Icelandair við starfsemi KSÍ á öllum sviðum og nær samningurinn m.a. til allra landsliða Íslands
1. september 2009
Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Noregur afhenta fimmtudaginn 3. september frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.
1. september 2009
Kristinn Rúnar Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hóp fyrir 2 vináttulandsleiki gegn Skotum.  Leikið verður ytra og fara leikirnir fram mánudaginn 7. september og miðvikudaginn 9. september.
1. september 2009
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt hóp sinn er mætir Norður Írum ytra þann 8. september næstkomandi. Þetta er annar leikur liðsins í riðlakeppninni en Íslendingar töpuðu gegn Tékkum í fyrsta leik sínum.