20. febrúar 2009
ÍBV og ÍA hafa póstað sína fjárhagslegu leyfisgögn í dag, samkvæmt upplýsingum leyfisstjórnar, og ættu þau því að berast strax eftir helgi. Þar með hefur verið gert grein fyrir gögnum 15 af 24 félögum.
20. febrúar 2009
Hinir grænklæddu Breiðablikar úr Kópavogi hafa skilað endurskoðuðum ársreikningi sínum til leyfisstjórnar. Þá hafa 7 af 12 félögum í efstu deild skilað og listinn styttist.
20. febrúar 2009
Þróttur hefur nú skilað sínum fjárhagsgögnum og þar með hefur helmingur félaga í efstu deild skilað, 6 af 12 félögum. Enn er von á gögnum frá þó nokkrum félögum og verður fylgst með gangi mála hér á ksi.is.
20. febrúar 2009
Alls hafa nú 10 félög af þeim 24 sem undirgangast leyfiskerfið skilað fjárhagslegum fylgigögnum með leyfisumsókn sinni fyrir keppnistímabilið 2009. Nú síðast skiluðu KR-ingar sínum gögnum.
20. febrúar 2009
Víkingur Reykjavík hefur nú skilað fjárhagslegum leyfisgögnum sínum og þar með hafa fimm félög í 1. deild skilað. Áður höfðu Haukar, HK, Leiknir og Selfoss skilað.
20. febrúar 2009
Fjárhagslegum leyfisgögnum rignir nú yfir leyfisstjórn. Leiknir í Breiðholti hefur skilað endurskoðuðum ársreikningi með viðeigandi staðfestingum og hafa þar með fjögur félög í 1. deild skilað gögnum.
20. febrúar 2009
Selfyssingar hafa nú skilað fjárhagslegum fylgigögnum með umsókn um þátttökuleyfi fyrir keppnistímabilið 2009. Um er að ræða endurskoðaðan ársreikning við viðeigandi staðfestingum sem krafist er í leyfishandbók.
20. febrúar 2009
HK í Kópavogi hefur skilað fjárhagsgögnum sínum og hafa þá tvö félög í 1. deild skilað. Á meðal fjárhagsgagna er ársreikningur og ýmsar staðfestingar honum tengdar.
20. febrúar 2009
Njarðvíkingar hafa skilað inn fjárhagslegum leyfisgögnum sínum, þ.e. endurskoðuðum ársreikningi og viðeigandi staðfestingum. Njarðvíkingar leika í 2. deild, en taka engu að síður þátt í leyfisferlinu.
19. febrúar 2009
Knattspyrnusamband Íslands heldur um helgina 3. stigs þjálfaranámskeið. Dagskrá námskeiðsins er hér fyrir neðan en námskeiðið fer fram í höfuðstöðvum KSÍ, Egilshöll og í Kórnum í Kópavogi.
17. febrúar 2009
Unglingadómaranámskeið hjá Þrótti verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ mánudaginn 23. febrúar kl. 16:30. Um að ræða rúmlega tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna.
17. febrúar 2009
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið 16 leikmenn til æfinga um komandi helgi. Æft verður í Reykjaneshöll á laugardaginn og æfingaleikur verður leikinn gegn U19 kvenna á sunnudaginn í Kórnum.
17. febrúar 2009
Haukar urðu í dag fyrsta 1. deildar félagið til að skila fjárhagslegum leyfisgögnum vegna umsóknar um þátttökuleyfi í deildinni 2009. FH-ingar skiluðu í gær og þar með hafa Hafnarfjarðarfélögin bæði skilað sínum gögnum.
17. febrúar 2009
Þjálfararnir, Þorlákur Árnason og Ólafur Þór Guðbjörnsson, hafið valið hópa sína er æfa um komandi helgi. Æfingar fara fram í Kórnum og í Egilshöllinni en U19 hópurinn mun leika æfingaleik við A landslið kvenna á sunnudeginum.
17. febrúar 2009
Íslandsmeistarar FH hafa skilað endurskoðuðum ársreikningi sínum til leyfisstjórnar og þar með hafa fjögur félög, öll úr efstu deild, skilað sínum gögnum innan tímamarka. Enn eiga því 20 félög eftir að skila.
17. febrúar 2009
Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum þann 13. febrúar nýja reglugerð KSÍ um knattspyrnuleikvanga og breytingar á reglugerð KSÍ um aga – og úrskurðarmál og reglugerð KSÍ um knattspyrnumót.
16. febrúar 2009
Við höldum ársþing þegar útlit í efnahagsmálum Íslendinga er það dekksta sem við höfum upplifað. Alheimskreppa er eða hefur skollið á og óvissutímar eru framundan. Knattspyrnan slær í takt við það samfélag sem við lifum í og ljóst er að rekstrarskilyrðin hafa versnað.
14. febrúar 2009
Laust um kl. 15:00 lauk ársþingi KSÍ en þingið var haldið í höfuðstöðvum KSÍ. Geir Þorsteinsson var sjálfkjörinn formaður KSÍ til tveggja ára. Þá komu þeir Gylfi Þór Orrason og Róbert Agnarsson inn í stjórn KSÍ.