Search
SÍA

23. ágúst 2006

Dómur í máli Vina gegn Neista Djúpavogi

Dómstóll KSÍ hefur kveðið upp dóm í máli Vina gegn Neista frá Djúpavogi.  Leikurinn fór fram 1. júlí sl. og var leikinn í Boganum á Akureyri.  Liðin léku í D-riðli 3. deildar Íslandsmótsins.

Agamál
Lög og reglugerðir

23. ágúst 2006

Tap gegn Slóvakíu hjá U18 karla

Íslenska U18 karlalandsliðið tapaði gegn Slóvakíu í dag en leikurinn var liður í alþjóðlegu móti er fram fer í Tékklandi.  Lauk leiknum 1-3 en Íslendingar komust yfir snemma leiks.

Landslið

23. ágúst 2006

Óbreyttur hópur fyrir leikinn gegn Svíum

Íslenska kvennalandsliðið leikur gegn Svíum á Laugardalsvelli, laugardaginn 26. ágúst kl. 14:00.  Leikurinn er síðasti heimaleikur liðsins í riðlakeppni fyrir HM 2007.  Svíar eru efstir í riðlinum og hafa aðeins tapað stigi gegn Íslendingum.

Landslið

23. ágúst 2006

Jafntefli gegn Belgum hjá U18

Íslenska U18 karlalandsliðið gerði í gær jafntefli við Belga á alþjóðlegu móti er fram fer í Tékklandi.  Lauk leiknum með því að hvort lið skoraði eitt mark.  Liðið leikur í dag gegn Slóvakíu og hefst leikurinn kl. 15:00 að íslenskum tíma.

Landslið

22. ágúst 2006

Miðasala á Ísland- Danmörk hefst á hádegi í dag

Miðasala á landsleik Íslands og Danmerkur, hefst kl. 12:00 í dag, þriðjudag.  Leikurinn fer fram miðvikudaginn 6. september kl. 18:05.  Hægt er að kaupa miða á netinu og verslunum Skífunnar og BT-tölva.

Landslið

22. ágúst 2006

Miðasala á leik Íslands og Danmerkur hafin

Miðasala á landsleik Íslands og Danmerkur í Evrópukeppni landsliða er hafin á ksi.is og midi.is.  Sala aðgöngumiða á landsleiki fer nú fram í nýju miðasölukerfi fyrir Laugardalsvöll frá midi.is.  Kaupendum gefst kostur á að velja sér það sæti sem viðkomandi vilja sitja í.

Landslið

22. ágúst 2006

Miðasölu seinkar á landsleik Íslands og Danmerkur

Verið er að vinna í uppsetningu á miðasölukerfi vegna leiks Íslands og Danmerkur.  Vegna þess mun opnun á miðasölu seinka en opnað verður síðar í dag.  Fylgist með hér á síðunni um opnun miðasölunnar.

Landslið

22. ágúst 2006

Leikreynt kvennalandslið Svía mætir til leiks

Svíar hafa tilkynnt leikmannahóp sinn er mætir Íslendingum á Laugardalsvelli laugardaginn 26. ágúst kl. 14:00.  Lið Svía er geysisterkt og mjög leikreynt en sex leikmenn hafa leikið yfir 100 landsleiki.

Landslið

22. ágúst 2006

U18 karlalandsliðið leikur í Tékklandi

Íslenska U18 karlalandsliðið er statt í Tékklandi þar sem það tekur þátt í alþjóðlegu móti.  Ísland leikur í riðli með Belgíu, Slóvakíu og Póllandi á mótinu.  Fyrsti leikur liðsins í mótinu er í dag kl. 15:00 þegar liðið leikur við Belga.

Landslið

21. ágúst 2006

Kvennalandsliðið leikur á Richmond Stadium í Virginíu

Íslenska kvennalandsliðið leikur vináttulandsleik við Bandaríkin 8. október næstkomandi.  Leikið verður á velli háskólans í Richmond í Virginíu.  Leikurinn verður í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni ESPN2 í Bandaríkjunum.

Landslið

19. ágúst 2006

Stelpurnar töpuðu gegn Tékkum

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu laut í lægra haldi gegn Tékkum í dag.  Lauk leiknum með því að Tékkar skoruðu fjögur mörk gegn tveimur íslenskum.  Íslenska liðið leikur gegn Svíum laugardaginn 26. ágúst á Laugardalsvelli.

Landslið

18. ágúst 2006

Byrjunarliðið gegn Tékkum

Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Tékkum á laugardag kl. 16:00 á Laugardalsvelli.  Ókeypis aðgangur er á leikinn og eru landsmenn hvattir til þess að mæta. 

Landslið

18. ágúst 2006

Allir á völlinn kl. 16:00 á laugardag

Íslenska kvennalandsliðið leikur á morgun, laugardag, gegn Tékkum í undankeppni fyrir HM 2007.  Leikið er á Laugardalsvelli og hefst leikurinn kl. 16:00.  Ókeypis er á völlinn og getur stuðningur skipt sköpum fyrir stelpurnar í leiknum.

Landslið

17. ágúst 2006

Kvennalandsliðið undirbýr sig af krafti

Íslenska kvennalandsliðið í knattspynu undirbýr sig nú af krafti fyrir leikinn gegn Tékkum.  Liðið kom saman á þriðjudaginn og æfa einu sinni á dag fram að leik.  Leikurinn er á laugardaginn á Laugardalsvelli og er ókeypis inn á völlinn.

Landslið

17. ágúst 2006

KSÍ leitar að bókum um sögu íslenskrar knattspyrnu

Í gegnum árin hafa mörg félög gefið út bók um sögu knattspyrnunnar í viðkomandi félagi. Það hafa líka verið gefnar út bækur um sögu einstakra knattspyrnumanna. KSÍ leitar nú eftir að fá eintak af þessum bókum til varðveislu á bókasafni KSÍ.

Fræðsla

16. ágúst 2006

Dómur í máli Hattar gegn Fjarðabyggð

Knattspyrnudómstóll KSÍ hefur dæmt í máli Hattar gegn Fjarðabyggð.  Var kært vegna leiks í 2. flokki karla C2 sem fram fór 31. júlí síðastliðinn og var leikinn á Vilhjálmsvelli.

Agamál
Lög og reglugerðir

16. ágúst 2006

Markalaust jafntefli í Austurríki

U21 karlalandslið Íslands og Austurríkis gerðu markalaust jafntefli í undankeppni EM í dag, miðvikudag, en leikurinn fór fram í Austurríki.  Nokkuð jafnræði var með liðunum í leiknum og segja má að jafntefli hafi verið sanngjörn úrslit.

Landslið

16. ágúst 2006

Kvennalandsliðið í eldlínunni á laugardaginn

Íslenska A-landslið kvenna verður í eldlínunni á laugardaginn þegar liðið tekur á móti Tékkum.  Leikið er á Laugardalsvelli og hefst leikurinn kl. 16:00.  Leikurinn er liður í riðlakeppni HM 2007. Frítt verður á þennan leik.

Landslið