24. ágúst 2018
Miðasala á leik Íslands og Belgíu í Þjóðadeild UEFA hefst þriðjudaginn 28. ágúst klukkan 12:00 á tix.is, en um er að ræða fyrstu leiki liðsins í Þjóðadeilda Evrópu og undir stjórn Erik Hamrén. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli 11. september og hefst klukkan 18:45.
24. ágúst 2018
Erik Hamrén, landsliðsþjálfari A karla, hefur kynnt hópinn sem mætir Sviss og Belgíu í Þjóðadeild í september, en um er að ræða fyrstu leiki hans með A landsliði karla.
24. ágúst 2018
Knattspyrnufélag ÍA auglýsir laust starf yfirþjálfara hjá félaginu, en um er að ræða yfirumsjón með um 500 iðkendum félagsins, jafnt stelpum sem strákum.
22. ágúst 2018
Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur staðfest fjögurra leikja leikbann Gilles Daniel Mbang Ondo sem hann var úrskurðaður í af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ þann 31. júlí 2018.
21. ágúst 2018
Þorvaldur Örlygsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hópinn sem mætir Albaníu í tveimur leikjum ytra dagana 8. og 10. september.
21. ágúst 2018
Miðasala á leiki Íslands gegn Þýskalandi og Tékklandi í undankeppni HM 2019 eru hafnar og fara þær fram á Tix.is. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur landsliðinu, en þegar tveir leikir eru eftir situr liðið á toppi riðilsins. KSÍ bendir á að selt er í númerið sæti og því þurfa allir miða.
21. ágúst 2018
Fulltrúar knattspyrnusambanda Norðurlandanna sex hittust síðastliðna helgi í Helsinki í Finnlandi, en um var að ræða árlegan Norðurlandafund.
20. ágúst 2018
Þórður Þórðarson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið hópinn sem mætir Noregi og Svíþjóð í vináttuleikjum í lok ágúst. Leikið verður í Noregi og eru leikdagarnir 29. og 31. ágúst.
20. ágúst 2018
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari A kvenna, hefur valið hópinn sem mætir Þýskalandi og Tékklandi í undankeppni HM 2019. Um er að ræða síðustu tvo leiki liðsins í undankeppninni.
17. ágúst 2018
Breiðablik er Mjólkurbikarmeistari kvenna árið 2018 eftir 2-1 sigur gegn Stjörnunni. Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Guðrún Arnardóttir komu Breiðablik í 2-0, áður en Telma Hjaltalín Þrastardóttir minnkaði muninn þegar stutt var til leiksloka.
15. ágúst 2018
Fyrsta fréttabréf KSÍ var gefið út á dögunum og verður það gefið út reglulega. Í fréttabréfinu munu koma fram ýmsar upplýsingar um viðburði á næstunni, fréttir af hinum ýmsu verkefnum tengdum knattspyrnu á Íslandi og margt fleira.
14. ágúst 2018
Á ársþingi KSÍ sem fram fór 10. febrúar sl. var tilkynnt að 200 mkr. yrði úthlutað á árinu til aðildarfélaga KSÍ sem sérstakt HM framlag. Stjórn KSÍ hefur nú ákveðið hvernig greiðslurnar skiptast á milli aðildarfélaga.
14. ágúst 2018
Fimm leikmenn fengu nýliðamerki KSÍ eftir leik Íslands og Hong Kong á mánudaginn, en strákarnir unnu þann leik 7-0. Þetta voru þeir Kristian Nökkvi Hlynsson, Óliver Steinar Guðmundsson, Jón Hrafn Barkarson, Dagur Þór Hafþórsson og Jakob Franz Pálsson.
13. ágúst 2018
U15 ára karla vann 7-0 gegn Hong Kong, en leikið var á Njarðtaksvellinum í Njarðvík. Það voru þeir Jón Hrafn Barkarson, með tvö, Guðmundur Tyrfingsson, Orri Steinn Óskarsson, Kristian Nökkvi Hlynsson, Ívan Óli Santos og Ari Sigurpálsson sem skoruðu mörk Íslands.
13. ágúst 2018
Miðasala á úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna er hafin, en leikurinn fer fram á föstudaginn næstkomandi klukkan 19:15. Það eru Breiðablik og Stjarnan sem mætast.
13. ágúst 2018
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmir leik CFR 1907 Cluj frá Rúmeníu og Alashkert FC frá Armeníu, en leikurinn fer fram í Cluj-Napoca í Rúmeníu 16. ágúst.
13. ágúst 2018
U15 ára lið karla mætir í dag Hong Kong í vináttuleik, en leikurinn fer fram á Njarðtaksvellinum í Njarðvík og hefst klukkan 16:00. Á laugardaginn var mætti liðið Kína og vann þar góðan 13-0 sigur.
11. ágúst 2018
U15 ára lið karla vann góðan 13-0 sigur gegn liði frá Peking á laugardag, en leikið var á Garðsvelli. Ísland mætir jafnöldrum sínum frá Hong Kong á mánudaginn, en sá leikur fer fram á Njarðtaksvellinum.