11. ágúst 2018
U16 ára lið karla varð í dag Norðurlandameistari, en liðið vann Finnland í úrslitaleik 1-0. Það var Ísak Bergmann Jóhannesson sem skoraði mark Íslands í framlengingu.
10. ágúst 2018
U15 ára lið karla mætir Peking á morgun í æfingaleik, en leikurinn fer fram á Garðsvelli og hefst klukkan 14:00. Ísland leikur síðan við Hong Kong á mánudaginn. Byrjunarlið Íslands er tilbúið og má sjá það í fréttinni.
10. ágúst 2018
U16 ára lið karla mætir Finnlandi í úrslitaleik Norðurlandamótsins í dag. Leikurinn hefst klukkan 13:30 að íslenskum tíma og fer hann fram í Þórshöfn í Færeyjum. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á heimasíðu færeyska knattspyrnusambandsins.
10. ágúst 2018
Elías Ingi Árnason og Kristján Már Ólafs hafa undanfarið verið í Færeyjum og unnið við dómgæslu á Norðurlandamóti U16 karla. Hafa þeir dæmt einn leik í hverri umferð hingað til og dæma leik Færeyja og Svíþjóðar á laugardag, en leikurinn er um 5. sæti mótsins.
10. ágúst 2018
KSÍ hefur skrifað undir samstarfssamning við Tix Miðasölu um miðasölu á viðburðum sambandsins. Samningurinn er til tveggja ára.
9. ágúst 2018
U16 ára lið karla vann í dag 2-1 sigur gegn Noregi í síðasta leik riðlakeppni Norðurlandamótsins og komst með sigrinum í úrslitaleikinn sjálfan! Frábær árangur hjá strákunum. Það voru þeir Ísak Bergmann Jóhannesson og Kristall Máni Ingason sem skoruðu mörk Íslands.
9. ágúst 2018
U16 ára lið karla mætir í dag Noregi í síðasta leik liðsins í riðlakeppni Norðurlandamótsins, en liðin eru bæði með fullt hús stiga. Með sigri kemst Ísland í úrslitaleikinn. Leikurinn hefst klukkan 18:00 að íslenskum tíma, en mótið fer fram í Færeyjum.
8. ágúst 2018
Svíinn Erik Hamrén var í dag kynntur sem nýr landsliðsþjálfari A landsliðs karla, en hann tekur við af Heimi Hallgrímssyni sem lét af störfum eftir HM í Rússlandi. Freyr Alexandersson var á sama tíma kynntur sem aðstoðarmaður hans. Samningar þeirra eru til tveggja ára.
7. ágúst 2018
U16 ára lið karla vann í dag góðan 3-0 sigur gegn Kína á opna Norðurlandamótinu, en leikið er í Færeyjum. Mörk Íslands skoruðu Eyþór Aron Wöhler og Andri Fannar Baldursson. Þriðja mark leiksins var sjálfsmark.
7. ágúst 2018
KSÍ hefur opnað fyrir umsóknir um miða á útileiki íslenska karlalandsliðsins í haust, jafnt leiki liðsins í Þjóðadeildinni og vináttuleik gegn Frakklandi.
7. ágúst 2018
Þorvaldur Árnason dæmir leik FK Spartaks Jurmala frá Lettlandi gegn FK Suduva frá Litháen, en leikurinn fer fram í Riga í Lettlandi þann 9. ágúst. Honum til aðstoðar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Birkir Sigurðarson. Fjórði dómari er Þóroddur Hjaltalín.
7. ágúst 2018
U16 ára lið karla leikur annan leik sinn á Norðurlandamótinu í þegar það mætir Kína, en leikurinn hefst klukkan 11:00 að íslenskum tíma.
5. ágúst 2018
U16 ára lið karla vann 2-1 sigur gegn Færeyjum í fyrsta leik liðsins á Norðurlandamótinu, en leikið er í Færeyjum. Það voru þeir Kristall Máni Ingason og Oliver Stefánsson sem skoruðu mörk Íslands.
5. ágúst 2018
Þór/KA hefur leik í undankeppni Meistaradeildar Evrópu á þriðjudaginn, en þá mætir liðið Linfield Ladies. Í riðlinum eru einnig Ajax og Wexford Youths Women. Leikurinn hefst klukkan 14:00 að íslenskum tíma, en leikið er á Norður-Írlandi.
3. ágúst 2018
U16 ára lið karla mætir á sunnudag Færeyjum í fyrsta leik sínum á Norðurlandamótinu, en mótið fer að þessu sinni fram í Færeyjum. Leikurinn hefst klukkan 16:00 að íslenskum tíma.
31. júlí 2018
Enska knattspyrnusambandið mun halda UEFA Pro license námskeið 2019-2020. KSÍ má senda inn umsókn fyrir einn þjálfara til að sitja námskeiðið. Áhugasamir þjálfarar eru beðnir um að senda ferilskrá á ensku á arnarbill@ksi.is. KSÍ tekur við ferilskrám til fimmtudagsins 9. ágúst og mun fræðslunefnd sambandsins velja einn þjálfara úr þeim umsóknum sem berast.
31. júlí 2018
U19 ára lið kvenna mætir Noregi og Svíþjóð í tveimur vináttuleikjum í lok Noregs. Fyrri leikurinn fer fram 29. ágúst í Larvik gegn Noregi og sá síðari 31. ágúst í Sandefjord gegn Svíþjóð. Hefjast báðir leikirnir klukkan 16:00 að íslenskum tíma.
30. júlí 2018
Á vinnufundi í síðustu viku með fulltrúum félaganna tveggja sem leika til úrslita í Mjólkurbikar kvenna, var samþykkt að færa úrslitaleikinn af laugardeginum 18. ágúst til föstudagsins 17. ágúst kl. 19.15.