5. maí 2014
Áfrýjunardómstóll KSÍ hefurt staðfest úrskurð Aga- og úrskurðarnefndar varðandi leikbann leikmanns Augnabliks vegna atviks í leiks Vatnaliljanna og Augnabliks í Lengjubikar karla sem fram fór 16. apríl síðastliðinn.
3. maí 2014
Sú breyting er á landsliðshóp kvenna sem mætir Sviss að Rakel Hönnudóttir, leikmaður Breiðabliks, þurfti að draga sig úr hópnum sökum meiðsla en Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, leikmaður Stjörnunnar, kemur í hennar stað í hópinn.
2. maí 2014
Í janúar 2014 voru sett inn ný ákvæði í reglugerð KSÍ um aga-og úrskurðarmál vegna tilskipunar FIFA og áherslu á að taka fast á hvers kyns mismunun eða fordómum.  Ákvæðið er þýðing á ákvæði í agareglugerð FIFA sem öllum knattspyrnusamböndum innan FIFA ber að taka upp.
30. apríl 2014
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt hópinn sem mætir Sviss í undankeppni HM, fimmtudaginn 8. maí.  Svissneska liðið hefur byrjað undankeppnina vel og er í efsta sæti riðilsins með 16 stig eftir 6 leiki.  Íslenska liðið er í öðru sæti með 9 stig eftir 4 leiki.
30. apríl 2014
Þorlákur Árnason yfirmaður hæfileikamótunar verður á Ísafirði á miðvikudag og fimmtudag. Á miðvikudagskvöldið verður hann með fund með forráðamönnum BÍ/Bolungarvíkur og á fimmtudag verða æfingar með iðkendum 4.flokks drengja og stúlkna.
28. apríl 2014
Þeir dómarar sem dæmt hafa tilskilinn fjölda leikja og hafa sent skrifstofu KSÍ mynd af sér, geta sótt aðgönguskírteini sín á skrifstofu KSÍ á föstudaginn. Öruggara er þó að hringja á undan sér og fá staðfest að skírteinið sé tilbúið.
28. apríl 2014
Við fráfall Hannesar Þ. Sigurðssonar sér knattspyrnuhreyfingin á Íslandi á bak góðum félaga. Hannes var sæmdur æðsta heiðursmerki knattspyrnusambands Íslands, heiðurskrossinum, árið 2007, fyrir vel unnin störf sem dómari, fræðimaður og eftirlitsmaður. Hannes var skoðunarmaður reikninga hjá sambandinu í 60 ár, en lét af þeim störfum 2013 og var heiðraður fyrir vel unnin störf á ársþingi KSÍ 2013.
25. apríl 2014
UEFA hefur birt sjöttu útgáfu af árlegri skýrslu sinni um evrópska knattspyrnu - UEFA Club Licensing Benchmarking Report - sem byggir á leyfisgögnum þeirra félaga sem undirgangast leyfiskerfi í aðildarlöndum UEFA, alls um 700 knattspyrnufélögum að ýmsum stærðum  og gerðum.
24. apríl 2014
Á fundi Aga-og úrskurðarnefndar KSÍ, 23. apríl 2014, var Hrafnkell Freyr Ágústsson, Augnabliki, úrskurðaður í tímabundið leikbann til 6 vikna vegna brottvísunar í leik Vatnaliljanna og Augnabliks í mfl. karla 16. apríl 2014.
23. apríl 2014
Stelpurnar í U19 léku í morgun seinni leik sinn á undirbúningsmóti UEFA en leikið var í Færeyjum. Mótherjarnir voru Skotar og höfðu þeir betur, 0 - 1, með marki í uppbótartíma. Tómas Þóroddsson sendi okkur eftirfarandi umfjöllun um leikinn.
23. apríl 2014
Stelpurnar í U19 leika í dag síðari leik sinn á undirbúningsmóti UEFA sem fram fer í Færeyjum. Leikið er gegn Skotum og hefst leikurinn kl 09:00 að íslenskum tíma. Úlfar Hinriksson hefur tilkynnt byrjunarliðið og er það skipað eftirtöldum leikmönnum:
22. apríl 2014
Knattspyrnusamband Íslands hlaut á dögunum viðurkenningu frá Evrópusamtökum Special Olympics fyrir farsælt samstarf við Special Olympics á Íslandi. Það var Guðlaugur Gunnarsson, starfsmaður KSÍ, sem veitti viðurkenningunni móttöku.
22. apríl 2014
Stelpurnar í U19 lögðu stöllur sínar frá Færeyjum í morgun í fyrri leik liðsins á undirbúningsmóti UEFA en leikið er í Færeyjum.  Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir Ísland sem leiddi með einu marki í leikhléi.
22. apríl 2014
Mánudaginn 28. apríl klukkan 12.10-13.00 mun KSÍ standa fyrir fundi þar sem viðfangsefnið er höfuðhögg - heilahristingur. Fundurinn verður í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardalnum, 3. hæð. Fyrirlesari er Reynir Björnsson læknir en hann er formaður heilbrigðisnefndar KSÍ.
22. apríl 2014
Stelpurnar í U19 leika í dag fyrri leik sinn í undirbúningsmóti UEFA en leikið er í Færeyjum. Fyrri leikur Íslands er gegn heimastúlkum og hefst leikurinn kl. 09:00 að íslenskum tíma. Úlfar Hinriksson hefur tilkynnt byrjunarliðið og er það þannig skipað:
22. apríl 2014
Ráðstefna landsdómara fór fram mánudaginn 14. apríl síðastliðinn en lokaundirbúningur landsdómara er nú í fullum gangi líkt og hjá leikmönnum. Ráðstefnan fór fram í höfuðstöðvum KSÍ þar sem farið var m.a. yfir áhersluatriði dómaranefndar fyrir keppnistímabilið 2014.
16. apríl 2014
Á fundi Aga-og úrskurðarnefndar KSÍ, 15. apríl 2014, var Andri Rúnar Gunnarsson, leikmaður Ísbjarnarins, úrskurðaður í tímabundið leikbann til 2 mánaða vegna brottvísunar í leik Víðis og Ísbjarnarins í Lengjubikar karla sem fram fór 5. apríl síðastliðinn.
16. apríl 2014
Á fundi Aga-og úrskurðarnefndar KSÍ, 15. apríl 2014, var Gylfi Örn Á Öfjörð úrskurðaður í 5 leikja bann í vegna brottvísunar í leik Víðis og Ísbjarnarins í Lengjubikar karla sem fram fór 5. apríl síðastliðinn.