16. apríl 2014
Miðvikudaginn 30. apríl stendur fræðslusvið KSÍ fyrir KSÍ B prófi (UEFA B prófi). Prófið er opið öllum þjálfurum sem hafa klárað KSÍ I, II, III, IV, KSÍ B þjálfaraskólann og skilað öllum verkefnum á fullnægjandi hátt (engar undantekningar eru gerðar).
16. apríl 2014
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Færeyingum í dag í undirbúningsmóti UEFA en leikið er í Belfast.  Leikurinn hefst kl. 10:00 að íslenskum tíma en þetta er síðasti leikur Íslands á mótinu.  Liðið lagði Wales í fyrsta leiknum en beið lægri hlut gegn Norður Írlandi í öðrum leik.
16. apríl 2014
Stelpurnar í U17 luku keppni á undirbúningsmóti UEFA í Belfast í dag með því að leggja Færeyinga að velli, 5 - 1. Staðan í leikhléi var 3 - 1 fyrir Ísland en þetta var þriðji leikur liðsins í mótinu, sigur vannst einnig á Wales en tap gegn heimastúlkum í Norður Írlandi.
16. apríl 2014
Á fundi stjórnar KSÍ, sem fram fór þann 11. apríl síðastliðinn, var samþykkt ný reglugerð KSÍ um aðgönguskírteini. Farið var í endurskoðun á reglugerðinni í heild sinni og má sjá hana hér til hliðar undir "Reglugerðir" og einnig undir "Dreifibréf til félaga".
16. apríl 2014
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið 18 leikmenn í landslið Íslands sem tekur þátt í undirbúningsmóti UEFA í Færeyjum í apríl. Um er að ræða leikmenn fædda 1996 og síðar.  Leikið verður gegn Færeyjum og Skotlandi dagana 22. og 23. apríl. Æfing verður á gervigrasinu í Laugardal, sunnudaginn 20. apríl kl. 14:00.
15. apríl 2014
Laugardaginn 3. maí mun KSÍ standa fyrir ráðstefnu sem haldin verður í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardalnum. Ráðstefnan er frá kl. 11.00 - 14.00 og er hún öllum opin. Markmið ráðstefnunnar er að gefa aðildarfélögum KSÍ hugmyndir um hvernig hægt sé að fjölga iðkendum í yngstu kvennaflokkunum.
14. apríl 2014
Stelpurnar í U17 kvenna biðu lægri hlut í dag gegn stöllum sínum frá Norður Írlandi á undirbúningsmóti UEFA en leikið var í Belfast.  Lokatölur urðu 2 – 0 fyrir Norður Íra sem leiddu í leikhléi, 2 – 0.  Síðasti leikur liðsins í mótinu er svo gegn Færeyingum og fer sá leikur fram miðvikudaginn 16. apríl.
14. apríl 2014
Gunnar Sigurðsson frá Akranesi var sæmdur gullmerki færeyska knattspyrnusambandsins um síðastliðna helgi þegar hann var þar í heimsókn. Gunnar lagði hönd á plóginn þegar Færeyingar fengu inngöngu í UEFA og FIFA.
14. apríl 2014
Í samræmi við greinar 10.1 og 11.2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Aron Þórður Albertsson lék ólöglegur með Fram gegn BÍ/Bolungarvík í Lengjubikar karla þann 4. apríl síðastliðinn. Leikmaðurinn átti að taka út leikbann vegna 3ja áminninga.
14. apríl 2014
Í samræmi við greinar 10.1 og 11.2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Markús Andri Sigurðsson lék ólöglegur með Hamar gegn KFR í Lengjubikar karla þann 12. apríl síðastliðinn.  Leikmaðurinn átti að taka út leikbann vegna 3ja áminninga.
14. apríl 2014
Í samræmi við greinar 10.1 og 11.2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Ólafur Páll Snorrason lék ólöglegur með FH gegn Fjölni í Lengjubikar karla þann 3. apríl síðastliðinn. Leikmaðurinn átti að taka út leikbann vegna 3ja áminninga.
14. apríl 2014
Í samræmi við greinar 10.1 og 11.2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Davíð Steinn Sigurðarson lék ólöglegur með KV gegn Víkingi Reykjavík í Lengjubikar karla þann 11. apríl síðastliðinn. Leikmaðurinn átti að taka út leikbann vegna 3ja áminninga.
14. apríl 2014
U17 landslið kvenna leikur um þessar mundir í sérstöku undirbúningsmóti UEFA.  Fyrstu leikirnir fóru fram á sunnudag og þá vannst 4-0 sigur á Wales.  Í dag, mánudag, er leikið gegn Norður-Írum og hefur byrjunarlið Íslands verið tilkynnt.
13. apríl 2014
U17 landslið kvenna, skipað leikmönnum fæddum 1998 og síðar, byrjaði undirbúningsmót UEFA fyrir þennan aldursflokk ansi vel með flottum 4-0 sigri á Wales í dag, sunnudag.  Næsti leikur er strax á mánudag kl. 16:00 að íslenskum tíma og verður mótherjinn þá lið heimamanna, Norður-Íra.
13. apríl 2014
U17 landslið kvenna, skipað leikmönnum fæddum 1998 og síðar, mætir Wales í dag, sunnudag, kl. 10:00, í sérstöku undirbúningsmóti UEFA.  Þetta er fyrsti leikur liðsins af þremur í þessu móti.  Úlfar Hinriksson, þjálfari íslenska liðsins, hefur tilkynnt byrjunarliðið.
11. apríl 2014
U17 landslið karla, skipað leikmönnum fæddum 1998 og síðar, vann öruggan 5-0 sigur í lokaleik sínum í sérstöku undirbúningsmóti UEFA sem fram fór í Belfast á Norður-Írlandi. Íslenska liðið hafnaði því í þriðja sæti með þrjú stig, eftir eins marks töp í leikjum gegn Wales og Norður-Írlandi.
11. apríl 2014
KSÍ stóð fyrir sérstökum vinnufundi um málefni stuðningsmanna fimmtudaginn 10. apríl.  Á fundinum var fjallað um hlutverk og mikilvægi tengiliðs félags við stuðningsmenn og mikilvægi þess að treysta böndin milli knattspyrnufélaga og stuðningsmanna. 
11. apríl 2014
U17 landslið karla, skipað leikmönnum fæddum 1998 og síðar, mætir frændum okkar, Færeyingum, í dag föstudag kl. 10:00 í lokaleik sínum í sérstöku undirbúningsmóti UEFA, sem fram fer í Belfast.  Byrjunarlið Íslands hefur verið opinberað.