18. nóvember 2013
Dregið verður í milliriðla EM hjá U19 kvenna, miðvikudaginn 20. nóvember, og verður dregið í höfuðstöðvum UEFA. Sama dag verður dregið í undankeppni EM 2015 hjá sama aldursflokki en Ísland verður í pottinum í bæði skiptin.
18. nóvember 2013
Íslensku strákarnir æfðu í dag á Maksimir vellinum í Zagreb en þar leika Króatía og Ísland í seinni umspilsleiknum um laust sæti á HM á næsta ári. Leikurinn hefst kl. 19:15 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu hjá RÚV.
18. nóvember 2013
Gunnar Jarl Jónsson mun dæma leik Englands og San Marínó í undankeppni EM U21 karla en leikið verður í Shrewsbury, þriðjudaginn 19. nóvember. Gunnari til aðstoðar verða þeir Gylfi Már Sigurðsson og Birkir Sigurðarson og fjórði dómari verður Erlendur Eiríksson.
18. nóvember 2013
Aðalfundur Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands verður haldinn í fræðslusetri KSÍ á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 21. nóvember næstkoandi klukkan 20:00. Veittar viðurkenningar fyrir þjálfara ársins í efstu deild karla og kvenna Veittar viðurkenningar fyrir vel unnin störf við þjálfun yngri flokka.
15. nóvember 2013
Fyrri umspilsleikur Íslands og Króatía um sæti í úrslitakeppni HM hefst kl. 19:00 í kvöld á Laugardalsvelli.  Áhorfendur eru hvattir til þess að mæta tímanlega á völlinn til að forðast biðraðir en völlurinn opnar kl. 18:00. Spáin er prýðileg fyrir kvöldið en allir hvattir samt til þess að klæða sig vel og ekki skemmir fyrir að mæta í bláu. 
15. nóvember 2013
KSÍ mun halda grunnnámskeið í markmannsþjálfun helgina 29. nóv.-1. des og fer það fram í höfuðstöðvum KSÍ og í Hamarshöllinni í Hveragerði. Námskeiðið er ætlað þeim markmannsþjálfurum sem eru að stíga sín fyrstu skref og eins þeim þjálfurum sem búa ekki svo vel að hafa markmannsþjálfara en vilja sinna sínum markmönnum á góðan hátt. Námskeiðinu hefur verið frestað og er fyrirhugað í janúar eða febrúar 2014.
15. nóvember 2013
Stuðningur áhorfenda á Laugardalsvelli í kvöld var einfaldlega magnaður. Frá því löngu fyrir leik voru áhorfendur byrjaðir að hvetja og það hélt áfram allan leikinn og rúmlega það. Stórkostleg stemning sem lengi verður í minnum höfð.
15. nóvember 2013
Jafntefli varð í fyrri umspilsleik Íslands og Króatíu um laust sæti á HM 2014 en leikið var á Laugardalsvelli.  Ekkert mark var skorað í leiknum en íslenska liðið lék manni færra síðustu 40 mínútur leiksins. Seinni leikur Króatíu og Íslands fer fram í Zagreb næstkomandi þriðjudag, þar verður allt undir en það er allt hægt.
15. nóvember 2013
Samkvæmt leyfisreglugerð KSÍ hefur þeim félögum sem hyggjast sækja um þátttökuleyfi í Pepsi-deild og 1. deild karla 2014 verið sendar nauðsynlegar upplýsingar, áður en vinna við leyfisumsókn hefst.
15. nóvember 2013
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Króötum í fyrri umspilsleik þjóðanna um laust sæti á HM 2014.  Leikurinn hefst kl. 19:00 á Laugardalsvelli og verður í beinni útsendingu hjá RÚV.
15. nóvember 2013
Um 300 miðar á umspilsleik Ísland – Króatía fara í sölu kl. 14:00 í dag og fer salan fram í gegnum miðasölukerfi hjá www.midi.is.  Þessir miðar eru aðeins í K hólfi og eru komnir til vegna þess að stuðningsmenn Króata verða færri en reiknað var með og skiluðu þeir hluta af þeim miðum sem þeim var úthlutað.
14. nóvember 2013
Gott er að minna gesti Laugardalsvallar á að það er fjöldi bílastæða í Laugardalnum og aðeins lítill hluti þeirra beint fyrir utan Laugardalsvöllinn. Á myndinni hér að neðan má sjá hvar hægt er að finna bílastæði í göngufæri við Laugardalsvöll. Við minnum svo vallargesti á að mæta tímanlega á leik Íslands og Króatíu sem hefst kl. 19:00, föstudaginn 15. nóvember. Hlið Laugardalsvallar ljúkast upp kl. 18:00.
13. nóvember 2013
Landslið karla í knattspyrnu beinir í aðdraganda stórleikjanna við Króatíu athyglinni að börnum sem eiga um sárt að binda.  Leikmenn hvetja landsmenn til að leggja neyðarstarfi UNICEF á Filippseyjum lið í kjölfar eins stærsta fellibyls sögunnar.
13. nóvember 2013
Landsliðsþjálfararnir, Úlfar Hinriksson og Ólafur Þór Guðbjörnsson, hafa valið hópa hjá U17 og U19 kvenna sem æfa munu helgina 23. - 24. nóvember.  Æfingarnar fara fram í Kórnum og í Egilshöll.
13. nóvember 2013
Það styttist í stórleik Íslands og Króatíu og spennan farin að magnast. Til fræðslu og skemmtunar er komin út vegleg rafræn leikskrá á vegum KSÍ þar sem finna má viðtöl við landsliðsmenn og þjálfara en að auki er fjallað um önnur landslið Íslands og mikilvægar upplýsingar um leikinn og Laugardalsvöllinn.
13. nóvember 2013
Um komandi helgi verða úrtaksæfingar hjá U17 og U19 karla og fara æfingarnar fram í Kórnum og í Egilshöll.  Landsliðsþjálfararnir, Þorlákur Árnason og Kristinn R. Jónsson, hafa valið leikmenn fyrir þessar æfingar en tveir hópar munu æfa hjá U19 karla.
12. nóvember 2013
Tólfan er aðal stuðningssveit íslenska landsliðsins og hefur verið það um nokkurra ára skeið.  Framlag Tólfunnar til þess árangurs sem A landslið karla hefur náð í undankeppninni fyrir HM 2014 er af ýmsum toga og að mörgu leyti ómetanlegt. 
12. nóvember 2013
Það hefur ekki farið framhjá neinum að íslenska landsliðið leikur mikilvægan leik við Króata á föstudaginn. Í tilefni af því ætla leikmenn íslenska landsliðsins að árita veggspjöld í knattspyrnuhúsinu Kórnum í Kópavogi á morgun frá klukkan 17:00 - 17:30. Landsliðið verður í anddyri Kórsins og munu leikmenn árita fyrir þá sem mæta á staðinn.