Search
SÍA

12. nóvember 2013

Spænskir dómarar á Ísland - Króatía á föstudaginn

Það verða spænskir dómarar sem verða við stjórnvölinn á leik Íslands og Króatíu, fyrri umspilsleik um laust sæti á HM í Brasilíu.  Dómarinn heitir Alberto Undiano og honum til aðstoðar verða þeir Raúl Cabanero og Roberto Diaz.  Fjórði dómari er svo Carlos Clos Gomez.

Dómaramál

11. nóvember 2013

Vel sóttir Íslandsleikar Special Olympics

Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu og frjálsum íþróttum, fóru fram í Reykjaneshöllinni, Reykjanesbæ 10. nóvember. Keppt var í knattspyrnu og frjálsum íþróttum.  Í fyrsta skipti á Íslandsleikum var keppt alfarið samkvæmt reglum "Unified" fótbolta þar sem lið eru skipuð fötluðum og ófötluðum leikmönnum. 

Fræðsla

11. nóvember 2013

18 erlendar sjónvarpsstöðvar sýna leik Íslands og Króatíu

Það hefur ekki farið fram hjá neinum að Íslendingar taka á móti Króötum í tveimur umspilsleikjum um sæti á HM í Brasilíu og fer fyrri leikurinn fram á Laugardalsvelli á föstudaginn. Áhugi fyrir leiknum er gríðarlegur og nær hann langt út fyrir landsteinana því það munu allavega 18 erlendar sjónvarpsstöðvar sýna leikinn í beinni útsendingu á föstudagskvöldið.

Landslið

8. nóvember 2013

Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu á sunnudaginn

Íslandsleikar eru árlegt samstarfsverkefni Íþróttasambands fatlaðra, Special Olympics á Íslandi og Knattspyrnusambands Íslands.  Umsjónaraðili leikanna 2013 er íþróttafélagið Nes á Suðurnesjum.  Í fyrsta skipti á Íslandi verður keppt alfarið eftir reglum Special Olympics, Unified football sem byggir á keppni fatlaðra og ófatlaðra leikmanna.

Fræðsla

7. nóvember 2013

A karla - Hópurinn fyrir umspilsleikina gegn Króatíu

Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ um þá 24 leikmenn sem verða í hópnum fyrir umspilsleikina gegn Króatíu. Leikið verður hér á Laugardalsvelli, föstudaginn 15. nóvember og ytra þriðjudaginn 19. nóvember. Sú þjóð sem hefur betur úr þessum viðureignum samanlagt tryggir sér sæti í úrslitakeppni HM í Brasilíu 2014.

Landslið

6. nóvember 2013

U16 karla - Úrtaksæfingar á Norðurlandi um helgina

Um komandi helgi mun Freyr Sverrisson, landsliðsþjálfari U16 karla, stjórna úrtaksæfingum fyrir leikmenn á Norðurlandi og fara æfingarnar fram í Boganum á Akureyri.  Alls eru 26 leikmenn, frá 8 félögum á Norðurlandi, boðaðir á þessar æfingar.

Landslið

4. nóvember 2013

Landsdómararáðstefna fór fram laugardaginn 2. nóvember

Landsdómarar KSÍ hittust laugardaginn 2. nóvember, fóru yfir nýliðið keppnistímabil og hófu undirbúninginn fyrir það næsta.  Ýmsir fyrirlestrar voru haldnir sem og farið var yfir æfingar vetrarins hjá dómurum.  Skoðaðar voru innlendar og erlendar klippur og gengust dómarar undir próf úr því efni.

Dómaramál

4. nóvember 2013

U17 og U19 kvenna - Úrtaksæfingar 9. og 10. nóvember

Um komandi helgi verða úrtaksæfingar hjá U17 og U19 kvenna og fara æfingarnar fram í Kórnum og í Egilshöll.  Landsliðsþjálfararnir, Úlfar Hinriksson og Ólafur Þór Guðbjörnsson, hafa valið leikmenn á þessar æfingar.

Landslið

31. október 2013

Áfrýjunardómstóll úrskurðar í máli Fylkis gegn aga- og úrskurðarnefnd KSÍ

Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur tekið fyrir mál knattspyrnudeildar Fylkis gegn aga- og úrskurðarnefnd KSÍ, þar sem úrskurði nefndarinnar frá 24. september er áfrýjað, en þar samþykkti aga- og úrskurðarnefndin að sekta Fylki um 35.000 krónur vegna framkomu starfsmanna  félagsins í leik Fylkis og Víkings Ólafsvíkur, 22. september. Áfrýjunardómstóllinn staðfesti fyrri úrskurð.

Agamál

31. október 2013

Þrjú dýrmæt stig sótt til Belgrad

Íslenska kvennalandsliðið vann í dag dýrmætan sigur á Serbum í undankeppni HM en leikið var í Belgrad. Lokatölur urðu 1 - 2 fyrir Ísland eftir að staðan hafði verið 0 - 2 í leikhléi.  Margrét Lára Viðarsdóttir og Katrín Ómarsdóttir skoruðu mörk Íslands í leiknum.

Landslið

31. október 2013

Serbía-Ísland kl. 13:00 í dag - Byrjunarliðið tilbúið

A landslið kvenna mætir Serbíu í undankeppni HM 2015 í dag, en leikið er á heimavelli FK Obilic í Belgrad.  Leikurinn hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma og verður fylgst með gangi mála á Facebook-síðu KSÍ, auk þess sem textalýsing verður á vef UEFA.  Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið.

Landslið

30. október 2013

Danka og Vesna - "Okkar lið hefur mun meira sjálfstraust en áður

Tveir leikmenn úr serbneska landsliðshópnum eru kunnari íslenskum knattspyrnuáhugamönnum heldur en aðrir en þetta eru þær Danka Podovac og Vesna Smiljkovic.  Heimasíðan hitti leikmennina á hóteli liðanna í Belgrad og spurði þær fyrst hvort það væri öðruvísi fyrir þær að leika gegn Íslandi en öðrum þjóðum?:

Landslið

30. október 2013

A kvenna - Margrét Lára nýr fyrirliði

Margrét Lára Viðarsdóttir er nýr landsliðsfyrirliði en þetta tilkynnt landsliðsþjálfarinn, Freyr Alexandersson, á fundi með leikmönnum í gærkvöldi.  Margrét Lára tekur við fyrirliðabandinu af Katrínu Jónsdóttur sem lagt hefur landsliðskóna á hilluna.  Viðtal við nýjan fyrirliða má sjá með því að smella á tengilinn hér að neðan

Landslið

30. október 2013

Miðasala á Króatía - Ísland í umspili fyrir HM 2014

Króatía og Ísland mætast í umspili um sæti í lokakeppni HM 2014 í nóvember, eins og knattspyrnuáhugafólki er kunnugt um.  Seinni leikurinn fer fram á Maksimir-leikvanginum í Zagreb kl. 20:15 að staðartíma.

Landslið

30. október 2013

61 stúlka á landshlutaæfingum á Norðurlandi

Um komandi helgi fara fram á Akureyri  landshlutaæfingar fyrir stúlkur fæddar 1998-2001. Alls hefur 61 leikmaður verið boðaður á æfingarnar, sem fram fara á KA-velli og í Boganum.  Um tvo hópa leikmanna er að ræða - Leikmenn fæddir 1998 og 1999 æfa saman annars vegar, og hins vegar leikmenn fæddir 2000 og 2001.

Landslið

30. október 2013

90 leikmenn á úrtaksæfingum U17 og U19 karla um helgina

Alls hafa 90 leikmenn frá félögum víðs vegar um landið verið boðaðir á úrtaksæfingar fyrir U17 og U19 landslið karla um komandi helgi.  Æfingarnar fara fram í Kórnum í Kópavogi og Egilshöll í Reykjavík.  Um tvo æfingahópa er að ræða hjá U17 karla - leikmenn fædda 1997 annars vegar og 1998 hins vegar.

Landslið

29. október 2013

A kvenna - Tvær æfingar í dag

Tvær æfingar voru á dagskránni í dag hjá kvennalandsliðinu sem þessa dagana er statt í Belgrad í Serbíu.  Framundan er mikilvægur leikur í undankeppni HM en leikið verður við heimastúlkur á fimmtudaginn.  Leikuirnn hefst kl. 14:00 að staðartíma á fimmtudaginn eða kl. 13:00 að íslenskum tíma.

Landslið

29. október 2013

Vegna miðasölu á Ísland-Króatía

Uppselt er á leik Íslands og Króatíu sem fram fer á Laugardalsvelli þann 15. nóvember nk.  Mikil óánægja hefur komið fram um hvernig staðið var að miðasölu á leikinn en hún hófst kl. 4 í nótt.  Var það gert í góðri trú um að með þeim hætti væri hægt að láta miðasölu ganga áfallalaust fyrir sig.  

Landslið