Search
SÍA

10. september 2013

U17 kvenna - Æfingar um komandi helgi

Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hóp til æfinga um komandi helgi. Þessar æfingar eru hluti af undirbúningi fyrir keppni milliriðlum EM en íslenska liðið mun leika í Rúmeníu um mánaðarmótin.

Landslið

10. september 2013

Mætum tímanlega á leikinn

Gott er að minna gesti Laugardalsvallar á að það er fjöldi bílastæða í Laugardalnum og aðeins lítill hluti þeirra beint fyrir utan Laugardalsvöllinn. Á myndinni hér að neðan má sjá hvar hægt er að finna bílastæði í göngufæri við Laugardalsvöll. Við minnum svo vallargesti á að mæta tímanlega á leik Íslands og Albaníu sem hefst kl. 19:00.

Landslið

10. september 2013

Uppselt á Ísland - Albanía

Framundan eru tveir gríðarlega mikilvægir leikir hjá landsliðum Íslands en bæði A landslið karla og U21 karla verða í eldlínunni. Strákarnir í U21 leika gegn Kasakstan á Kópavogsvelli kl. 16:00 í undankeppni EM. Á Laugardalsvelli verður svo karlalandsliðið í flóðljósunum þegar þeir taka á mót Albaníu í undankeppni HM kl. 19:00. Uppselt er á þann leik.

Landslið

10. september 2013

Þrjú stig og stemning í Laugardalnum

Sigursöngvar ómuðu í Laugardalnum í kvöld þegar 9.768 áhorfendur fögnuðu dýrmætum sigri Íslands á Albaníu í kvöld. Lokatölur urðu 2 - 1 fyrir okkar menn en staðan var jöfn í leikhléi, 1 - 1.  Íslenska liðið er nú í öðru sæti riðilsins með 13 stig en Sviss, sem lagði Noreg í kvöld, er í efsta sætinu með 18 stig. 

Landslið

9. september 2013

A karla - Haukur Páll í hópinn

Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, hefur bætt Hauki Páli Sigurðssyni inn í landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Albaníu. Leikurinn fer fram á morgun, þriðjudaginn 10. september kl. 19:00, á Laugardalsvelli og er í undankeppni HM.

Landslið

9. september 2013

U21 karla - Ísland mætir Kasakstan á Kópavogsvelli

Strákarnir í U21 verða líka í eldlínunni á morgun, þriðjudaginn 10. september, þegar þeir mæta Kasakstan í undankeppni EM á Kópavogsvelli kl. 16:00. Íslenska liðið hefur byrjað riðilinn frábærlega unnið alla þrjá leiki sína til þessa.

Landslið

9. september 2013

Ísland - Albanía - Miðarnir fara hratt út

Miðarnir fara hratt út núna á leik Íslands og Albaníu, í undankeppni HM, sem fram fer þriðjudaginn 10. september. Rúmlega 8.000 miðar eru þegar seldir og, ef fer sem horfir, verður uppselt á leikinn.

Landslið

9. september 2013

Enskir dómarar á Ísland - Albanía

Enski dómarinn Andy Marriner mun dæma leik Íslands og Albaníu í undankeppni HM sem fram fer á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 10. september kl. 19:00. Honum til aðstoðar verða þeir Peter Kirkup og Darren England. Varadómari verður svo Lee Probert.

Dómaramál

6. september 2013

Þjálfaraferð til Mílanó með norska Knattspyrnuþjálfarafélaginu

KÞÍ býður félagsmönnum sínum í samvinnu við norska Knattspyrnuþjálfarafélagið í námsferð til AC Milan á Ítalíu. Ferðin verður frá 1. - 4. nóvember og eru einungis örfá sæti í boði fyrir félagsmenn KÞÍ.

Fræðsla

6. september 2013

Ísland - Albanía : Miðar fyrir handhafa A-skírteina

Handhafar A-skírteina frá KSÍ fá afhenta aðgöngumiða á leik Íslands og Albaníu í undankeppni HM mánudaginn 9. september kl. 10:00 til kl. 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis

Landslið

6. september 2013

Ótrúleg endurkoma í Bern

Íslendingar gerðu magnað jafntefli við Sviss í undankeppni HM í kvöld en leikið var í Bern.  Lokatölur hreint ötrúlegar, 4 - 4 og leiddu heimamenn í leikhléi, 3 - 1.  Heimamenn komust í 4 - 1 á 55. mínútu en síðustu þrjú mörk voru Íslendinga. Jóhann Berg Guðmundsson skoraði þrjú mörk í leiknum hvert öðru glæsilegra.

Landslið

6. september 2013

Byrjunarlið Íslands birtist klukkustund fyrir leik

Byrjunarlið Íslands í leiknum á móti Sviss birtist sjálfkrafa á viðkomandi mótasíðu á vef KSÍ einni klukkustund áður en leikurinn hefst. Leikskýrslan er skráð í mótakerfi KSÍ, sem stýrir birtingunni eins og í öðrum leikjum.

Landslið

6. september 2013

Norræn dómaraskipti - Íslenskir dómarar í Noregi og Svíþjóð

Íslenskir dómarar verða við störf í Noregi og Svíþjóð á næstu dögum en þetta er hluti af norrænum dómaraskiptum knattspyrnusambanda Norðurlandanna.  Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæma leik Strömmen og Ullensaker/Kisa í norsku 1. deildinni og Valdimar Pálsson dæmir leik GAIS og Värnamo í sænsku "Superettan" deildinni.

Dómaramál

6. september 2013

Kristinn dæmir í Aþenu

Kristinn Jakobsson mun dæma leik Grikkja og Letta í undankeppni HM en leikið verður í Aþenu þriðjudaginn 10. september. Leikurinn er í G riðli þar sem Grikkir eru í öðru sæti riðilsins sem stendur en Lettar í því fimmta.

Dómaramál

5. september 2013

U19 karla - Öruggur sigur á Skotum

Strákarnir í U19 unnu jafnaldra sína frá Skotlandi örugglega í vináttulandsleik í dag en leikið var í Stirling. Lokatölur urðu 0 - 3 og hafði íslenska liðið tveggja marka forystu í leikhléi.  Þetta var annar vináttulandsleikur þjóðanna á þremur dögum, fyrri leiknum lauk með 1 - 1 jafntefli.

Landslið

5. september 2013

U19 karla - Byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Skotum

Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Skotum í vináttulandsleik í Stirling í dag. Leikurinn hefst kl. 10:00 að íslenskum tíma en þetta er seinni vináttulandsleikur liðanna á þremur dögum en fyrri leiknum lauk með 1 - 1 jafntefli.

Landslið

4. september 2013

Mikið um að vera hjá landsliðunum okkar í september

Það verður mikið um að vera hjá landsliðum Íslands í knattspyrnu í september mánuði en þá eru 16 landsleikir á dagskránni.  Strákarnir í U19 riðu á vaðið í gær þegar þeir léku vináttulandsleik gegn Skotum en öll okkar landslið munu leika í september.

Landslið

3. september 2013

Frítt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega á Ísland - Albanía

KSÍ hefur ákveðið að bjóða öryrkjum og ellilífeyrisþegum ókeypis aðgang að hinum mikilvæga leik, Ísland – Albanía í undankeppni HM sem fram fer á Laugardalsvelli þriðjudaginn 10. september næstkomandi kl. 19:00.

Landslið