3. september 2013
A landslið karla er komið saman í Sviss fyrir leikinn við heimamenn í undankeppni HM 2014.  Leikmenn komu til Bern á mánudag og fyrsta æfingin var í dag, þriðjudag, en leikurinn fer fram á föstudag.  Sól og blíða er í Bern þessa dagana og er hitinn um 25 gráður. 
3. september 2013
Knattspyrnusamband Íslands mun starfrækja Markmannsskóla í ár á Akranesi fyrir stúlkur og drengi í 4. aldursflokki.  Félög sem starfrækja 4. flokk drengja og/eða stúlkna geta tilnefnt tvo drengi og tvær stúlkur hvert. Stúlkurnar verða 20. – 22. september en drengirnir dagana 4. – 6. október. Um er að ræða markmenn sem léku í 4. flokki tímabilin 2012/2013
3. september 2013
U19 landslið karla gerði í kvöld, þriðjudagskvöld, 1-1 jafntefli við Skota í æfingaleik í Stirling í Skotlandi. Bæði mörk leiksins komu beint úr aukaspyrnum, en það fyrra gerði Oliver Sigurjónsson á 22. mínútu. Þessi lið mætast aftur á fimmtudag, á sama stað.
3. september 2013
Eins og kunnugt er mætast karlalandslið Sviss og Íslands í undankeppni HM 2014 næstkomandi föstudag.  Svisslendingar hafa á afar öflugu liði að skipa og til marks um það er sú staðreynd að 11 af 23 leikmönnum í landsliðshópi þeirra á mála hjá félagsliðum sem leika í Meistaradeild UEFA.
3. september 2013
Um komandi helgi fara fram úrtaksæfingar hjá U17 karla og hefur Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari, valið hóp fyrir þessar æfingar. Æfingarnar fara fram á grasvellinum við Kórinn, föstudag og laugardag.
3. september 2013
Strákarnir í U19 héldu til Skotlands snemma í morgun og eru ekkert að tvínóna við hlutina því þeir leika strax í kvöld. Framundan eru tveir vináttulandsleikir gegn Skotum og fara þeir báðir fram í Stirling. Fyrri leikurinn er í kvöld, þriðjudaginn 3. september, og hefst kl. 18:30 að íslenskum tíma en sá síðari er fimmtudaginn 5. september.
3. september 2013
Viðureign Sviss og Íslands í undankeppni HM 2014 á föstudag fer fram á sögufrægum slóðum  í Bern.  Leikvangurinn heitir Stade de Suisse, er heimavöllur BSC Young Boys, og er byggður á sama stað og áður stóð Wankdorf-leikvangurinn, en á þeim velli var leikið til úrslita í HM 1954.
30. ágúst 2013
Velski dómarinn Kris Hames mun dæma leik Breiðabliks og Fylkis í Pepsi-deild karla sem fram fer sunnudaginn 1. september á Kópavogsvelli. Þetta er hluti af verkefni varðandi dómaraskipti hjá Knattspyrnusamböndum Íslands og Wales en í október mun íslenskur dómari dæma leik í efstu deild í Wales.
30. ágúst 2013
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari A karla, hefur valið hópinn sem mætir Sviss og Albaníu í undankeppni HM 2015. Leikið verður gegn Sviss í Bern, föstudaginn 6. september en gegn Albaníu á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 10. september.
30. ágúst 2013
Nú fer í hönd lokaspretturinn í undankeppni HM 2014 en framundan eru fjórir síðustu umferðirnar í riðlakeppninni. Íslendingar eru í harðri baráttu í riðlinum en annað sætið getur gefið sæti í umspili um sæti á HM í Brasilíu. Mótherjar Íslendinga á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 10. september kl. 19:00, verða Albanir sem sitja sem stendur í öðru sæti riðilsins, einu stigi á undan Íslendingum.
30. ágúst 2013
Freyr Alexandersson hefur verið ráðinn þjálfari A landsliðs kvenna til næstu tveggja ára. Samningur var undirritaður í dag, föstudag, og gildir hann a.m.k. til loka árs 2014, eða fram yfir úrslitakeppni HM 2015, sem fram fer sumarið 2015 í Kanada.
30. ágúst 2013
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn sem mætir Kasakstan í undankeppni EM 2015 á Kópavogsvelli. Leikið verður þriðjudaginn 10. september á Kópavogsvelli og hefst leikurinn kl. 16:00.
28. ágúst 2013
Sænski dómarinn Glenn Nyberg mun dæma leik Selfoss og Grindavíkur í 1. deild karla sem fram fer á Selfossvelli, fimmtudaginn 29. ágúst. Samlandi hans, Conny Hugman, mun verða honum til aðstoðar ásamt Gylfa Má Sigurðssyni.
27. ágúst 2013
FIFA stendur nú fyrir sérstökum háttvísidögum í 17. sinn. Að þessu sinni urðu dagarnir 6. til 10. september fyrir valinu, en á því tímabili fara m.a. fram landsleikir um allan knattspyrnuheiminn. Háttvísidagarnir eru haldnir hátíðlegir á ýmsan hátt í öllum aðildarlöndum FIFA.
27. ágúst 2013
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hóp fyrir 2 vináttulandsleiki gegn Skotum sem fram fara 3. og 5. september. Átján leikmenn eru valdir í hópinn og fara leikirnir fram á Forthbank Stadium í Stirling.
26. ágúst 2013
Úrtakshópur hefur verið valinn yfir æfingar hjá U15 karla og fara æfingarnar fram um komandi helgi.  Þessar æfingar eru liður í undirbúningi fyrir undankeppni Ólympíuleika ungmenna en þar munu fjórar þjóðir, Ísland, Finnland, Armenía og Moldóva, keppa um eitt sæti.  Ólympíuleikar æskunnar fara svo fram í Nanjing í Kína, dagana 16. - 28. ágúst 2014.
23. ágúst 2013
Ísland mætir Noregi í undankeppni HM 2014, þriðjudaginn 15. október næstkomandi.  Leikið verður á Ullevaal vellinum í Noregi og hefst leikurinn kl. 17:00 að íslenskum tíma.  Panta þarf miða í síðasta lagi, fimmtudaginn 12. september, með því að senda póst á Ragnheiði Elíasdóttur
23. ágúst 2013
Ísland mætir Sviss í undankeppni HM 2014, föstudaginn 6. september næstkomandi.  Leikið verður á Stade de Suisse í Bern og hefst leikurinn kl. 20:30 að staðartíma eða 18:30 að íslenskum tíma.