22. mars 2013
Ísland mætir Slóveníu í dag í undankeppni HM 2014 og verður leikið í Ljubliana.  Leikurinn hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma og verður sýndur í beinni útsendingu hjá RÚV.  Þetta er í fyrsta skiptið sem þjóðirnar mætast í mótsleik en þær hafa tvisvar leikið vináttulandsleiki og hafa Slóvenar haft sigur í bæði skiptin.
20. mars 2013
Karlalandsliðið er í Slóveníu þar sem þeir mæta heimamönnum í undankeppni HM á föstudaginn. Liðið æfði í gær á keppnisvellinum en flutti sig yfir á æfingasvæði í dag. Allir leikmenn hópsins voru með á æfingu dagsins.
20. mars 2013
Knattspyrnusambönd Íslands og Ungverjalands hafa komist að samkomulagi um að fresta vináttulandsleik þjóðanna sem fram átti að fara 3. júní á Laugardalsvelli. Leikurinn mun fara fram árið 2014 og verður nánari tímasetning tilkynnt síðar.
20. mars 2013
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Völsung og hefst kl. 17:00. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.
20. mars 2013
Miðasala á úrslitakeppni EM kvenna er í fullum gangi en keppnin hefst 10. júlí í Svíþjóð. Íslenska liðið hefur leik 11. júlí þegar leikið verður gegn Noregi í Kalmar. Hægt er að kaupa miða hjá KSÍ á leiki íslenska liðsins til 1. apríl en nú er einnig hægt að kaupa miða á leikina í gegnum heimasíðuna http://www.ticnet.se/.
20. mars 2013
Hér að neðan má sjá þinggerð 67. ársþings Knattspyrnusambands Íslands, sem haldið var á Hilton Nordica Hótel 9. febrúar síðastliðinn.
19. mars 2013
Hér að neðan má sjá úrtakshópa sem verða við æfingar um helgina hjá U16 og U17 kvenna. Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll og hefur Úlfar Hinriksson valið 66 leikmenn á þessar æfingar.
19. mars 2013
Gunnar Jarl Jónsson mun dæma leik Wales og Moldavíu í undankeppni EM U21 karla en leikið verður í Llanelli í Wales á föstudaginn. Aðstoðardómarar Gunnars í leiknum verða þeir Frosti Viðar Gunnarsson og Gylfi Már Sigurðsson. Varadómari verður Vilhjálmur Alvar Þórarinsson.
18. mars 2013
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn sem mætir Hvíta Rússlandi í undankeppni EM 2015. Þetta er fyrsti leikurinn í riðlinum og verður leikið ytra, þriðjudaginn 26. mars. Þrír leikmenn eru í hópnum sem hafa ekki leikið áður með U21 liðinu.
18. mars 2013
Seinni fundur leyfisráðs í leyfisferlinu fyrri keppnistímabilið 2013 fór fram föstudaginn 15. mars. Sextán félögum voru veitt þátttökuleyfi á fundinum, en átta félög höfðu fengið útgefin leyfi á fyrri fundi ráðsins mánudaginn 11. mars. Öll 24 félögin í efstu tveimur deildum karla hafa því fengið útgefin leyfi fyrir sumarið.
18. mars 2013
A landslið karla mætir Slóveníu í undankeppni HM 2014 föstudaginn 22. mars. Leikurinn hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma og er í beinni útsendingu á RÚV. Leikið verður á hinum glæsilega leikvangi Sportni Park Stozice, sem tekur rúmlega 16 þúsund manns í sæti.
18. mars 2013
Það verður grískur dómarakvartett á leik Slóveníu og Íslands í undankeppni HM 2014, sem fram fer í Ljubljana næstkomandi föstudag. Eftirlitsmaður leiksins er írskur og dómaraeftirlitsmaðurinn kemur frá Færeyjum.
18. mars 2013
Málþing um hagræðingu úrslita í íþróttahreyfingunni verður haldið miðvikudaginn 20. mars frá kl. 12:00 – 14:00 í húsakynnum KSÍ á Laugardalsvelli. Það eru ÍSÍ og Íslenskar Getraunir sem efna til þessa málþings.  Skráning er hjá Íslenskum getraunum í netfangið phs@getspa.is í síðasta lagi þriðjudaginn 19. mars.
17. mars 2013
Steinþór Freyr Þorsteinsson, leikmaður Sandnes Ulf í Noregi, hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikinn við Slóveníu í undankeppni HM, en liðin mætast föstudaginn 22. mars. Leikmennirnir mæta til Ljubljana à mànudag og með innkomu Steinþórs telur hópurinn 21 leikmann.
15. mars 2013
Lars Lagerbäck, þjálfari A landsliðs karla, hefur tilkynnt leikmannahópinn sem fer til Slóveníu og etur þar kappi við heimamenn í undankeppni HM 2014 22. mars næstkomandi. Af þeim 20 leikmönnum sem eru í hópnum leika einungis markverðirnir þrír með íslenskum félagsliðum.
14. mars 2013
Á nýjum styrkleikalista FIFA, sem gefin var út núna nýlega, klifrar íslenska karlalandsliðið upp um sex sæti frá síðasta lista og sitja nú í 92. sæti. Ríkjandi heims- og Evrópumeistarar Spánverjar sitja sem fyrr á toppi listans og Þjóðverjar í því næsta.
14. mars 2013
Gunnar Jarl Jónsson og Frosti Viðar Gunnarsson halda til Englands á morgun þar sem þeir munu m.a. fylgjast með undirbúningi dómara í ensku úrvalsdeildinni. Þeir munu einnig starfa ,á sínum hvorum leiknum, í nýrri "Premier League" deild U21 liða.
13. mars 2013
Fyrri fundur leyfisráðs í leyfisferlinu fyrir keppnistímabilið 2013 fór fram á mánudag.  Leyfisstjóri kynnti stöðu mála hjá félögunum 24 sem undirgangast leyfiskerfið.  Gefin voru út átta þáttökuleyfi, en afgreiðsla sextán félaga bíða seinni fundar leyfisráðs, sem fram fer á föstudag.