13. mars 2013
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Stjörnuna og hefst kl. 19:00. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.
13. mars 2013
Ísland lagði Ungverja að velli í dag í leik um níunda sætið á Alagarve-mótinu. Lokatölur urðu 4 - 1 eftir að íslensku stelpurnar höfðu leitt í leikhléi 1 - 0.  Sara Björk Gunnarsdóttir, Rakel Hönnudóttir, Katrín Ómarsdóttir og Sandra María Jessen skoruðu mörk Íslands.
13. mars 2013
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Ungverjum í dag á Algarve mótinu. Leikið er um níunda sætið á mótinu og hefst leikurinn kl. 12:00 að íslenskum tíma. Fylgst verður með helstu atriðum leiksins á Facebook síðu KSÍ.
12. mars 2013
Kvennalandsliðið leikur gegn Ungverjalandi á morgun, miðvikudaginn 13. mars, á Algarve mótinu. Leikið er um níunda sætið og hefst leikurinn kl. 12:00 að íslenskum tíma. Fylgst verður með helstu atriðum leiksins á Facebook síðu KSÍ.
12. mars 2013
Slóvenar hafa tilkynnt hópinn fyrir leikinn gegn Íslendingum í undankeppni HM sem fram fer ytra, 22. mars. Srecko Katanec hefur valið 24 leikmenn í hópinn en þetta er fyrsti mótsleikur Katanec síðan hann tók við Slóvenum að nýju um áramótin.
12. mars 2013
Úrtaksæfingar fara fram um komandi helgi hjá U17 karla og verða æfingarnar í Kórnum og Egilshöllinni. Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið 35 leikmenn fyrir þessar æfingar.
12. mars 2013
Í samræmi við greinar 9.1 og 11. 2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að þeir Alexander Jovetic og Miroslov Rikanovik léku ólöglegir með KF gegn Þrótti í Lengjubikar karla, þann 9. mars síðastliðinn. Leikmennirnir eru skráðir í erlend félagslið.
11. mars 2013
Kvennalandsliðið lék í dag síðasta leik sinn í riðlakeppni Algarve mótsins en liðið beið þá lægri hlut fyrir Kína, 0 - 1. Markalaust var í leikhléi en sigurmarkið kom á 62. mínútu leiksins eftir hornspyrnu.  Edda Garðarsdóttir lék sinn 100. landsleik í dag.
11. mars 2013
Edda Garðarsdóttir lék í dag sinn 100. landsleik þegar Ísland mætti Kína á Algarve mótinu. Edda er næst leikjahæst allra landsliðskvenna, á eftir Katrínu Jónsdóttur og er þriðji íslenski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu til að rjúfa 100 leikja múrinn. Sá þriðji er Rúnar Kristinsson sem lék 104 landsleiki.
11. mars 2013
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Kínverjum í dag á Algarve mótinu. Leikurinn hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma og er síðasti leikur Íslands í riðlakeppni mótsins en á miðvikudaginn verður leikið um sæti.
11. mars 2013
Kvennalandsliðið leikur í dag síðasta leik sinn í riðlakeppni Algarve mótsins en mótherjar dagsins eru Kínverjar. Ísland er án stiga eftir tvær umferðir en Kínverjar hafa eitt stig, eftir jafntefli gegn Svíum. Leikurinn hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma og með sigri nær íslenska liðið þriðja sæti riðilsins og tryggir sér þar með leik um fimmta sætið á miðvikudaginn.
11. mars 2013
Stelpurnar í U19 töpuðu síðasta leik sínum af þremur á La Manga í gærkvöldi en leikið var við Frakka. Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir Frakka sem leiddu með einu marki í leikhléi. Þetta var síðasti leikur Íslands af þremur í þessari ferð til La Manga. Sigur vannst á Hollandi, jafntefli við Skota og tap gegn Frökkum.
8. mars 2013
Kvennalandsliðið lá í valnum á í kvöld þegar leikið var við Svía á Algarvemótunu. Lokatölur urður 6 - 1 fyrir Svía sem leiddu í leikhléi, 4 - 0.  Sannarlega slæmt tap gegn Svíum en þjóðirnar mætast aftur í vináttulandsleik þann 6. apríl næstkomandi. Næsti leikur Íslands á Algarve er hinsvegar gegn Kína á mánudaginn.
8. mars 2013
Stelpurnar í U19 kvenna léku í dag vináttulandsleik við Skota en leikið var á La Manga. Lokatölur urðu 4 - 4 eftir að íslenska liðið hafði leitt í leikhléi, 3 - 1. Íslenska liðið leikur þriðja og síðasta vináttulandsleikinn í ferðinni á sunnudaginn þegar leikið verður við Frakka.
8. mars 2013
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Svíum í dag á Algarve mótinu. Leikurinn hefst kl. 18:00 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á íþróttasjónvarpsstöðinni Eurosport.
8. mars 2013
Í dag kl. 18:00 mætast Ísland og Svíþjóð á Algarve mótinu en þetta er annar leikur liðanna á mótinu. Ísland tapaði fyrir Bandaríkjunum á meðan Svíþjóð og Kína skildu jöfn í fyrstu umferð mótsins. Leikurinn verður í beinni útsendingu á íþróttasjónvarpsstöðinni Eurosport.
8. mars 2013
Stelpurnar í U19 leika í dag við Skota en um er að ræða vináttulandsleik sem fram fer á La Manga. Leikurinn hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma og hefur Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn.
7. mars 2013
Í samræmi við greinar 9.1 og 11. 2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Sturlaugur Haraldsson lék ólöglegur með Gróttu gegn ÍR í Lengjubikar karla, þann 4. mars síðastliðinn. Leikmaðurinn er skráður í Hamar.