Search
SÍA

25. febrúar 2013

Unglingadómaranámskeið hjá Fram mánudaginn 4. mars

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Fram og hefst kl. 18:30. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.

Dómaramál

25. febrúar 2013

A landslið kvenna - Hópurinn sem fer til Algarve

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn sem leikur á Algarvemótinu sem hefst miðvikudaginn 6. mars. Sigurður Ragnar velur 23 leikmenn til fararinnar og þar af er einn nýliði, Birna Kristjánsdóttir úr Breiðabliki.  Ísland leikur í B riðli og er fyrsti leikur liðsins er gegn Bandaríkjunum 6. mars.

Landslið

25. febrúar 2013

U19 kvenna - Hópurinn sem fer til La Manga

Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið hópinn sem tekur þátt á æfingamóti á La Manga í mars. Leikið verður við þrjár sterkar þjóðir í þessari ferð og verður fyrsti leikurinn gegn Hollandi, miðvikudaginn 6. mars.

Landslið

21. febrúar 2013

U19 karla - Góður sigur á Dönum

Strákarnir í U19 lögðu jafnaldra sína frá Danmörku í vináttulandsleik sem leikinn var í Farum í dag. Lokatölur urðu 2 - 1 fyrir Íslendinga sem leiddu með tveimur mörkum í leikhléi.  Kristján Flóki Finnbogason og Stefán Þór Pálsson skoruðu mörk Íslendinga. 

Landslið

21. febrúar 2013

21 félag hefur skilað fjárhagsgögnum

Skilafrestur fjárhagslegra leyfisgagna þeirra félaga sem undirgangast leyfiskerfið fyrir keppnistímabilið 2013 var 20. febrúar. Þrjú félög fengu framlengdan frest til að skila sínum gögnum, en 21 félag skilaði innan tímamarka.

Leyfiskerfi

21. febrúar 2013

Uppfærðir dómaralistar aðildarfélaga

Skrifstofa KSÍ hefur uppfært á vef KSÍ, undir "Séraðgerðir", lista með starfandi dómurum hjá aðildarfélögum KSÍ.  Á þessum lista eru þeir dómarar sem koma fram á leikskýrslum a.m.k. einu sinni frá 1. janúar 2012.

Dómaramál

21. febrúar 2013

U19 karla - Leikið við Dani í dag kl. 13:30

Strákarnir í U19 leika í dag annan vináttulandsleikinn við Dani á þremur dögum en fyrri leik liðanna lauk með 1 - 1 jafntefli á þriðjudaginn. Kristinn R. Jónsson, landliðsþjálfari U19 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið en leikið verður í Farum og hefst leikurinn kl. 13:30 að íslenskum tíma.

Landslið

20. febrúar 2013

Breytingar á reglugerðum KSÍ - Samþykktar af stjórn KSÍ 8. febrúar

Á fundi stjórnar KSÍ, þann 8. febrúar síðastliðinn, voru gerðar breytingar á nokkrum reglugerðum og hefur aðildarfélögum verið sent dreifibréf þess efnis.  Félögum er bent á að kynna sér þessar breytingar gaumgæfilega.

Lög og reglugerðir

19. febrúar 2013

U19 karla - Jafntefli gegn Dönum

Strákarnir í U19 léku í dag fyrri vináttulandsleikinn gegn Dönum en leikið var í Farum í Danmörku. Lokatölur leiksins urðu 1 - 1 eftir að Íslendingar höfðu leitt í leikhléi.  Liðin mætast aftur í fimmtudaginn í öðrum vináttulandsleik sem fram fer á sama stað.

Landslið

19. febrúar 2013

A landslið kvenna - Æfingar um komandi helgi

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur valið æfingahóp til æfinga um komandi helgi. Sigurður hefur valið 22 leikmenn fyrir þessar æfingar en eingöngu er valdir leikmenn sem leika hérlendis fyrir þessar æfingar.

Landslið

19. febrúar 2013

U17 og U19 kvenna - Æfingar fara fram um helgina

Æfingar fara fram um komandi helgi hjá U17 og U19 landsliðum kvenna og fara æfingarnar fram í Fífunni, Egilshöll og Kórnum. Landsliðsþjálfararnir, Úlfar Hinriksson og Ólafur Þór Guðbjörnsson, hafa valið hópa fyrir þessar æfingar.

Landslið

19. febrúar 2013

U19 karla - Byrjunarliðið sem mætir Dönum í dag

Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Dönum í dag í vináttulandsleik. Leikið verður í Farum í Danmörku og hefst leikurinn kl. 17:00 að íslenskum tíma.

Landslið

19. febrúar 2013

Unglingadómaranámskeið KSÍ á Selfossi í Iðu þriðjudaginn 26. febrúar

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við knattspyrnudeild Selfoss og hefst kl. 19:00. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.  Þetta er eina unglingadómaranámskeiðið sem haldið verður á Suðurlandi á árinu.

Dómaramál

18. febrúar 2013

Unglingadómaranámskeið hjá Víkingi mánudaginn 18. febrúar

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Víking og hefst kl. 19:00. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.  Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk. 

Dómaramál

18. febrúar 2013

U19 karla - Aron inn í hópinn

Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, valdi Aron Bjarnason úr Þrótti inn í hópinn hjá U19 karla sem hélt utan í morgun. Aron kemur í stað Daða Bergssonar sem er meiddur. Liðið leikur 2 vináttulandsleiki gegn Dönum, 19. og 21. febrúar og verður leikið í Farum.

Landslið

15. febrúar 2013

Úrskurður í máli Fjölnis gegn KR

Aga- og úrskurðarnefnd hefur úrskurðað í máli Fjölnis gegn KR í Reykjavíkurmóti meistaraflokks kvenna vegna ólöglegs skipaðs liðs. Leikurinn fór fram 20. janúar síðastliðinn og er Fjölni er dæmdur sigur í leiknum.

Agamál

15. febrúar 2013

Fimmta skýrsla UEFA um fjárhagsstöðu félaga

Nýverið gaf UEFA út sína fimmtu árlegu skýrslu um fjárhagsstöðu félaga í Evrópu - The European Club Licensing Benchmarking Report - Financial Year 2011". Skýrslan er mjög ítarleg og mörgum áhugaverðum spurningum er velt upp, ekki eingöngu fjárhagslegum.

Leyfiskerfi

14. febrúar 2013

Almenn miðasala á EM kvenna 2013 - Tryggið ykkur miða í tíma

Almenn miðasala á úrslitakeppni EM kvenna 2013, sem fer fram í Svíþjóð 10.-28. júlí næstkomandi, er hafin og er hægt að kaupa miða í gegnum vef UEFA. Miðasala KSÍ á leiki Íslands er reyndar enn í fullum gangi og stendur til 22. febrúar.

Landslið