Search
SÍA

14. febrúar 2013

Styrkleikalisti FIFA - Karlalandsliðið niður um níu sæti

Á nýjum styrkleikalista FIFA, sem gefinn var út í morgun, fellur íslenska karlalandsliðið niður um níu sæti frá síðasta lista og sitja nú í 98. sæti. Spánverjar eru sem fyrr í efsta sæti listans og Þjóðverjar koma þar á eftir.

Landslið

14. febrúar 2013

Unglingadómaranámskeið í Borgarnesi þriðjudaginn 19. febrúar

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Skallagrím og hefst kl. 18:00. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.  Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Dómaramál

13. febrúar 2013

Skiladagur fjárhagsgagna er miðvikudagurinn 20. febrúar

Miðvikudaginn 20. febrúar næstkomandi er skiladagur fjárhagsgagna í leyfisferlinu fyir keppnistímabilið 2013. Þá skila leyfisumsækjendur ársreikningum sínum og ýmsum öðrum fjárhagslegum staðfestingum, s.s. staðfestingum á engum vanskilum við önnur félög vegna félagaskipta eða við leikmenn og þjálfara vegna launa- og/eða verktakagreiðslna á árinu 2012.

Leyfiskerfi

11. febrúar 2013

U17 karla - Úrtaksæfingar um komandi helgi

Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hóp til úrtaksæfinga um komandi helgi. Þorlákur velur 24 leikmenn fyrir þessar æfingar en þær fara fram í Kórnum og í Egilshöllinni.

Landslið

11. febrúar 2013

U19 karla - Hópurinn sem mætir Dönum í tveimur leikjum

Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hóp sem mætir Dönum í tveimur vináttulandsleikjum. Leikið verður í Farum 19. og 21. febrúar. Kristinn velur 19 leikmenn og eru 7 af þeim á mála hjá erlendum félagsliðum.

Landslið

11. febrúar 2013

Hannes Þ. Sigurðsson sérstaklega heiðraður

Á ársþingi KSÍ síðastliðinn laugardag var Hannes Þ. Sigurðsson sérstaklega heiðraður fyrir sín störf innan knattspyrnuhreyfingarinnar. Hannes hefur komið víða við í hreyfingunni sem hefur fengið að njóta krafta hans á mörgum sviðum.

Ársþing

9. febrúar 2013

Fimm félög fengu viðurkenningu vegna uppbyggingu dómaramála

Fimm félög voru heiðruð á ársþingi KSÍ í dag fyrir góða frammistöðu í uppbyggingu dómaramála. Þetta voru: FH, Fylkir, ÍA, Leiknir Fáskrúðsfirði og Sindri. Fengu þessi félög afhenta bolta sem og gjafabréf fyrir dómarabúnaði frá Henson.

Ársþing

9. febrúar 2013

67. ársþing KSÍ hafið - Fylgst með afgreiðslu tillagna

Ársþing KSÍ, það 67. í röðinni, var sett kl. 11:00 í morgun. Fyrir þinginu liggja fyrir tvær tillögur. Þessar tillögur má sjá hér að neðan og verður fylgst með hér hvernig þær verða afgreiddar.

Ársþing

9. febrúar 2013

Sigmundur Ó. Steinarsson fékk viðurkenningu

Fjölmiðlaviðurkenningu KSÍ fyrir árið 2012 hlýtur Sigmundur Ó. Steinarsson. Sigmundur er knattspyrnuáhugafólki vel kunnur, enda hefur hann fjallað um knattspyrnu í áratugi, lengst af sem blaðamaður á Morgunblaðinu og yfirmaður íþróttadeildar þar.

Ársþing

9. febrúar 2013

ÍBV fékk háttvísiverðlaun í Pepsi-deild kvenna

Háttvísisverðlaun í Pepsi-deild kvenna voru veitt á 67. ársþingi KSÍ og var það ÍBV sem hlaut verðlaunin að þessu sinni.

Ársþing

9. febrúar 2013

ÍA og Haukar fengu Dragostytturnar

ÍA og Haukar fengu Dragostytturnar á 67. ársþingi KSÍ sem haldið er á Hilton Nordica Hótel. Þá fengu HK og Árborg viðurkenningar fyrir prúðmannlegan leik í 2. og 3. deild karla. Það var formaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, sem afhenti fulltrúum félaganna viðurkenninguna.

Ársþing

9. febrúar 2013

67. ársþingi KSÍ lokið

Rétt í þessu var 67. ársþingi KSÍ að ljúka á Hilton Reykjavík Nordica. Þinginu lauk um kl. 15:30. Fréttir af afgreiðslu tillagna má sjá hér og aðrar fréttir af þinginu er hægt að finna hér.  Geir Þorsteinsson var endurkjörinn formaður KSÍ til tveggja ára en hann var einn í framboði.

Ársþing

9. febrúar 2013

Setningarræða formanns á 67. ársþingi KSÍ

Nú stendur yfir 67. ársþing KSÍ og fer það fram á Hótel Hilton Nordica. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, setti þingið kl. 11:00 í morgun og hér að neðan má sjá setningarræðu Geirs

Ársþing

9. febrúar 2013

UMFÍ fékk viðurkenningu fyrir Grasrótarviðburð ársins

Ungmennafélag Íslands fékk Grasrótarverðlaun KSÍ og UEFA fyrir Grasrótarviðburð ársins. Viðurkenningin er fyrir knattspyrnumót á Unglingalandsmóti UMFÍ.

Ársþing

9. febrúar 2013

FB fékk Jafnréttisviðurkenningu KSÍ

Jafnréttisviðurkenning KSÍ var afhent á 67. ársþingi KSÍ sem nú stendur yfir. Í þetta skiptið var Fjölbrautarskólinn í Breiðholti heiðraður fyrir verkefnið "Unified football" sem byggir á liðsskipan fatlaðra og ófatlaðra.

Ársþing

6. febrúar 2013

Ársþing 2013 - Þingið sett kl. 11:00

Ársþing KSÍ, það 67. í röðinni, verður haldið á Hilton Nordica Hótel laugardaginn 9. febrúar. Þingið verður sett kl. 11:00 en afhending þinggagna hefst kl. 10:00.  Öllum þingfulltrúum er boðið til sameiginlegs kvöldverðar og skemmtunar sem hefst kl. 19:30 á Reykjavík Hótel Natura

Ársþing

6. febrúar 2013

Öflugt knattspyrnustarf á liðnu starfsári

A landslið kvenna heldur áfram að gera það gott og tryggði sér rétt til þátttöku í úrslitakeppni EM 2013 sem fram fer í Svíþjóð í júlí. Ísland leikur þar í riðli með Noregi, Þýskalandi og Hollandi, en alls taka 12 landslið þátt í úrslitakeppninni. Það verður fróðlegt að fylgjast með framgangi íslenska liðsins í sumar, en liðið er skipað leikmönnum sem hafa mikla reynslu og margar þeirra tóku þátt í úrslitakeppni EM 2009.

Pistlar

6. febrúar 2013

Tveir landsleikir Íslands í dag

Tvö landslið Íslands verða í eldlínunni í dag, miðvikudaginn 6. febrúar, en A landslið karla og U21 karla leika þá bæði vináttulandsleiki ytra. Strákarnir í U21 mæta Wales í Llanelli og hefst sá leikur kl. 15:00 að íslenskum tíma. A landsliðið mætir hinsvegar Rússum í Marbella á Spáni og hefst sá leikur kl. 19:30. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Landslið