Search
SÍA

10. ágúst 2012

Frítt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega á Ísland - Færeyjar

KSÍ hefur ákveðið að bjóða öryrkjum og ellilífeyrisþegum ókeypis aðgang að vináttulandsleik Íslands og Færeyja sem fram fer á Laugardalsvelli miðvikudaginn 15. ágúst næstkomandi kl. 19:45.  Aðgöngumiðar verða afhentir á skrifstofu KSÍ á mánudag og þriðjudag.

Landslið

10. ágúst 2012

U17 karla leikur um 7. - 8. sætið á Opna NM

U17 landslið karla tapaði á fimmtudag lokaleik sínum í riðlakeppni Opna NM, sem fram fer í Færeyjum. Mótherjarnir voru Danir, sem unnu 2-0 sigur með mörkum á 8. og 39. mínútu, leiddu.  Ísland leikur við Færeyjar um 7.-8. sætið í mótinu.

Landslið

9. ágúst 2012

Þjálfari ÍA áminntur vegna ummæla

Á fundi aga- og úrskurðarnefndar KSÍ 7. ágúst 2012 var samþykkt að áminna Þórð Þórðarson þjálfara ÍA vegna ummæla hans í fjölmiðlum eftir leik ÍA og KR í Pepsi-deild karla sem fram fór 30. júlí og sekta jafnframt Knattspyrnudeild ÍA um kr. 25.000 vegna ummælanna.

Agamál

9. ágúst 2012

Yngri flokkum og forráðamönnum boðið á Ísland-Færeyjar

KSÍ hefur ákveðið bjóða yngri flokkum og forráðamönnum flokka (3. flokkur og yngri) allra aðildarfélaga miða á vináttulandsleik Íslands og Færeyja sem fram fer á Laugardalsvelli miðvikudaginn 15. ágúst og hefst kl. 19:45.

Landslið

8. ágúst 2012

Ísland í 130. sæti á FIFA-listanum

Ísland er í 130. sæti á mánaðarlegum styrkleikalista FIFA fyrir A landslið karla og fellur um eitt sæti frá því listinn var síðast gefinn út. Annars er almennt lítið um breytingar á listanum milli mánaða og þá sérstaklega við topp listans.

Landslið

8. ágúst 2012

Tap U17 gegn U19 liði Færeyja

U17 landslið karla tapaði á þriðjudag gegn U19 liði Færeyinga á Opna Norðurlandamótinu, sem fram fer í Færeyjum. Lokatölur leiksins urðu 3-1 fyrir heimamenn, sem leiddu með einu marki í hálfleik. Mark Íslands kom undir lok leiksins.

Landslið

8. ágúst 2012

Ný Facebook-síða Tólfunnar

Flestir þeir sem lagt hafa leið sína á Laugardalsvöllinn til að styðja við landsliðin okkar kannast við stuðningsmannahópinn Tólfuna. Nú þegar landsleikjahrina haustsins nálgast er Tólfan að vakna aftur til lífsins og hefur ný Facebook-síða Tólfunnar verið sett upp.

Landslið

8. ágúst 2012

Árleg gæðaúttekt UEFA á leyfiskerfi KSÍ fer fram á föstudag

Næstkomandi föstudag fer fram árleg gæðaúttekt UEFA á leyfiskerfi KSÍ. Allt skipulag KSÍ í tengslum við leyfiskerfið er skoðað, vinnulag.  Úttektin er sem fyrr framkvæmd af alþjóðlegu vottunarfyrirtæki, SGS, sem hefur höfuðstöðvar í Sviss.

Leyfiskerfi

8. ágúst 2012

Eiður Smári, Grétar Rafn og Hallgrímur í landsliðshópinn

Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á landsliðshópnum fyrir vináttulandsleikinn við Færeyinga á miðvikudag. Eiður Smári Guðjohnsen, Grétar Rafn Steinsson og Hallgrímur Jónasson bætast við áður tilkynntan leikmannahóp, en Björn Bergmann Sigurðarson á við meiðsli að stríða og verður því ekki með.

Landslið

8. ágúst 2012

Tveir íslenskir dómarar á Opna NM

Á Opna Norðurlandamóti U17 landsliða karla, sem fram fer í Færeyjum þessa dagana, eru tveir íslenskir dómarar að störfum. Þetta eru þeir Þórður Már Gylfason og Adolf Þorberg Andersen.

Dómaramál

7. ágúst 2012

Sjö breytingar á byrjunarliði U17 karla á NM

U17 landslið karla leikur annan leik sinn á Opna NM í dag og eru mótherjarnir U19 landslið Færeyinga, heimamanna.  Sjö breytingar eru gerðar á á byrjunarliði Íslands frá tapleiknum gegn Svíum í gær, sem þýðir að allir þeir leikmenn sem ekki byrjuðu gegn Svíum byrja í dag.

Landslið

7. ágúst 2012

2-2 jafntefli gegn Skotum

Skotland og Ísland mættust í U23 landsliðum kvenna á sunnudag og er þetta í fyrsta sinn sem Ísland teflir fram U23 liði. Lokatölur leiksins urðu 2-2 og kom jöfnunarmark Skota seint í leiknum.

Landslið

6. ágúst 2012

Sænskur sigur í fyrsta leik U17 karla á Opna NM

Fyrsta umferð Opna NM U17 karla fór fram í dag, mánudag, og voru mótherjar Íslands Svíar, sem þykja hafa á sterku liði að skipa. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og hálfleiksstaðan 1-1 endurspeglaði þá stöðu.  Eina mark síðari hálfleiks kom svo á 46. mínútu, sigurmark Svía.

Landslið

4. ágúst 2012

A kvenna - Byrjunarliðið gegn Skotum kl. 14:00

Íslenska kvennalandsliðið leikur í dag vináttulandsleik gegn Skotum en leikurinn fer fram í Glasgow. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið og er einn nýliði sem hefur leikinn, Glódís Perla Viggósdóttir.

Landslið

2. ágúst 2012

Hagnaður af EM 2012 til félagsliða

Knattspyrnusamband Evrópu hefur ákveðið að þau félög sem áttu leikmenn í landsliðum sem tóku þátt í Evrópukeppni landsliða 2012 fái hlutdeild í hagnaði keppninnar, alls 100 milljónir evra. Í fyrsta sinn fá félög sem áttu leikmenn í undankeppninni framlag

Landslið

1. ágúst 2012

Úrtökumót stúlkna 2012 á Laugarvatni 10. - 12. ágúst

Framundan er úrtökumót stúlkna (fæddar 1997) sem fer fram helgina 10. - 12. ágúst næstkomandi á Laugarvatni. Hér að neðan má sjá dagskrá, nafnalista og ýmsar hagnýtar upplýsingar.

Landslið

1. ágúst 2012

Bikarúrslitaráðstefnur KÞÍ og KSÍ 2012

Í ágúst fara fram úrslitaleikir í Borgunarbikarkeppni karla og kvenna. Af því tilefni munu KÞÍ og KSÍ standa fyrir ráðstefnum í húsakynnum KSÍ sama dag og leikirnir fara fram. Nánari lýsing á innihaldi fyrirlestra og þátttökugjald verður auglýst eftir Verslunarmannahelgi. Viðvera á ráðstefnunum gefa endurmenntunarstig fyrir þjálfararéttindi KSÍ. Innifalið í þátttökugjaldinu eru léttar veitingar.

Fræðsla

1. ágúst 2012

U23 kvenna - Guðmunda Brynja kölluð í hópinn

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur gert breytingu á U23 hópnum sem mætir Skotum í vináttulandsleik í Glasgow, sunnudaginn 5. ágúst. Guðmunda Brynja Óladóttir úr Selfossi kemur inn í hópinn í stað Sigrúnar Ellu Einarsdóttur sem er meidd.

Landslið