Search
SÍA

1. ágúst 2012

A landslið karla - Hópurinn gegn Færeyingum tilkynntur

Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn er mætir Færeyingum í vináttulandsleik á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 15. ágúst kl. 19:45. Þetta er lokahnykkurinn í undirbúningi íslenska liðsins fyrir undankeppni HM 2014 þar sem Norðmenn verða fyrstu mótherjarnir þann 7. september á Laugardalsvelli.

Landslið

1. ágúst 2012

A kvenna - Harpa kölluð inn í hópinn

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið Hörpu Þorsteinsdóttur úr Stjörnunni í A landsliðshópinn er mætir Skotum í vináttulandsleik ytra þann 4. ágúst næstkomandi. Harpa kemur í stað Katrínar Jónsdóttur sem getur ekki tekið þátt í þessu verkefni vegna meiðsla.

Landslið

30. júlí 2012

Kristinn dæmir í Brussel

Kristinn Jakobsson verður við stjórnvölinn á miðvikudaginn þegar hann dæmir leik Anderlecht frá Belgíu og Ekranas frá Litháen. Leikurinn er fyrri leikur liðanna í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar UEFA og fer fram á Constant Vanden Stock vellinum í Brussel.

Dómaramál

27. júlí 2012

Frá Áfrýjunardómstóli KSÍ - Fyrri úrskurður staðfestur

Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur staðfest úrskurð Aga-og úrskurðanefndar varðandi leikbann þjálfara 4. flokks karla hjá KA. KA skaut málinu til Áfrýjunardómstóls KSÍ en hinn áfrýjaði úrskurður aganefndar var kveðinn upp 3. júlí 2012 þar sem Sævar Pétursson, þjálfari 4 flokks karla hjá KA, var úrskurðaður í eins mánaðar leikbann og knattspyrnudeild KA gert að greiða kr. 20.000 í fjársekt.

Agamál

25. júlí 2012

Úrskurður í máli Fjölnis gegn Þrótti

Aga- og úrskurðarnefnd hefur tekið fyrir kæru Fjölnis gegn Þrótti Reykjavík vegna leiks félaganna í 3. flokki karla, Íslandsmóti B riðli, sem fram fór 10. júlí síðastliðinn. Í úrskurðarorðum kemur fram að úrslitin í leiknum skulu standa óbreytt.

Agamál

25. júlí 2012

Margt framundan í fótboltanum

Mótin hafa í stórum dráttum gengið afar vel sem af er tímabili og fyrir utan þá leiki sem skipulagðir eru af KSÍ hafa verið haldin fjölmörg mót yngri iðkenda sem alltaf vekja mikla athygli og eru mikilvægur þáttur í grasrótarstarfi knattspyrnuhreyfingarinnar.

Pistlar

25. júlí 2012

U17 karla - Hópurinn fyrir Norðurlandamótið í Færeyjum

Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hópinn sem leikur á Opna Norðurlandamótinu í Færeyjum, dagana 5. - 12. ágúst. Ísland er þar í riðli með Svíþjóð, Danmörku og U19 liði heimamanna. Fyrsti leikurinn verður gegn Svíum, mánudaginn 6. ágúst.

Landslið

25. júlí 2012

KFR óskar eftir þjálfara fyrir yngri flokka

Knattspyrnufélag Rangæinga (KFR) óskar eftir að ráða þjálfara í 100 % starf fyrir yngri flokka félagsins frá og með nk. hausti. Menntun eða reynsla á sviði knattpyrnuþjálfunar skilyrði.

Fræðsla

24. júlí 2012

Miðasala hafin á vináttulandsleik Íslands og Færeyja 15. ágúst

Íslendingar taka á móti frændum sínum Færeyingum í vináttulandsleik á Laugardalsvelli. Leikurinn fer fram miðvikudaginn 15. ágúst, hefst kl. 19:45 og er miðasala á leikinn hafin. Þetta er lokahnykkurinn í undirbúningi íslenska liðsins fyrir undankeppni HM 2014 þar sem Norðmenn verða fyrstu mótherjarnir þann 7. september á Laugardalsvelli.

Landslið

23. júlí 2012

U19 karla - Oliver valinn bestur á Svíþjóðarmótinu

Strákarnir í U19 fóru, sem kunnugt er, með sigur af hólmi á Svíþjóðarmótinu sem lauk um helgina. Auk Íslands og heimamanna léku þar Rúmenar og Norðmenn. Að loknum móti völdu mótshaldarar Oliver Sigurjónsson sem besta leikmann mótsins en hann var fyrirliði liðsins sem vann 2 leiki og gerði að lokum jafntefli við Norðmenn.

Landslið

21. júlí 2012

U19 karla - Efsta sætið á Svíþjóðarmótinu tryggt

Strákarnir í U19 gerðu í dag jafntefli í lokaleik sínum á Svíþjóðarmótinu og voru Norðmenn mótherjarnir. Lokatölur urðu 1 - 1 eftir að Norðmenn höfðu leitt í leikhléi. Jafnteflið dugði íslenska liðinu til að tryggja sér efsta sætið á þessu fjögurra þjóða æfingamóti en auk ofangreindra þjóða, eru Svíar og Rúmenar þátttakendur.

Landslið

19. júlí 2012

U19 karla - Góður sigur á Svíum

Strákarnir í U19 halda áfram góðu gengi sínu á Svíþjóðarmótinu en heimamenn voru mótherjarnir í dag. Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir Íslendinga eftir að staðan hafði verið markalaus í leikhléi.

Landslið

19. júlí 2012

Hópurinn kynntur hjá A og U23 landsliði kvenna

Á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í dag kynnti Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hópa hjá A og U23 landsliðum kvenna. Framundan eru tveir vináttulandsleikir gegn Skotum í Glasgow, 4. og 5. ágúst.

Landslið

19. júlí 2012

U19 karla - Byrjunarliðið er mætir Svíum í dag

Strákarnir í U19 leika í dag sinn annan leik á Svíþjóðarmótinu og eru heimamenn mótherjar dagsins í leik sem hefst kl. 17:00.  Ísland lagði Rúmena í fyrsta leik sínum á þriðjudaginn en þá gerðu Svíar og Norðmenn jafntefli, 1 - 1. 

Landslið

18. júlí 2012

Hvenær tekur leikbann gildi?

Skrifstofu KSÍ berast alloft fyrirspurnir um það hvenær leikbönn taka gildi.  Oftast er verið að leita upplýsinga um það hvenær leikbönn vegna áminninga taka gildi.  Aðildarfélög eru hvött til að kynna sér reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál en almennt gildir að:

Agamál

18. júlí 2012

Hamar óskar eftir þjálfurum

Knattspyrnudeild Hamars í Hveragerði auglýsir eftir knattspyrnuþjálfurum fyrir yngri flokka deildarinnar.

Fræðsla

17. júlí 2012

U19 karla - Frábær byrjun á Svíþjóðarmótinu

Strákarnir í U19 karla hófu í dag leik á Svíþjóðarmótinu þegar þeir mættu Rúmenum. Íslenska liðið vann öruggan sigur, 4 - 1 eftir að staðan hafði verið 2 - 1 í leikhléi.  Öruggur og sannfærandi sigur hjá íslenska liðinu sem leikur aftur á fimmtudaginn þegar heimamenn í Svíþjóð verða mótherjarnir.

Landslið

17. júlí 2012

Kristinn dæmir í Króatíu

Kristinn Jakobsson verður við stjórnvölinn á leik NK Osijek frá Króatíu og Kalmar FF frá Svíþjóð sem fram fer í Osijek, fimmtudaginn 19. júlí. Þetta er fyrri leikur liðanna í annarri umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA. Kristni til aðstoðar verða þeir Birkir Sigurðarson og Gylfi Már Sigurðsson og fjórði dómari verður Gunnar Jarl Jónsson.

Dómaramál