17. júlí 2012
Strákarnir í U19 verða í eldlínunni í dag þegar þeir mæta Rúmenum á Svíþjóðarmótinu en þetta er fyrsti leikur liðsins á mótinu. Leikurinn hefst kl. 14:30 að íslenskum tíma og hefur Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari, tilkynnt byrjunarliðið sem hefur leik í dag.
14. júlí 2012
Stelpurnar í U16 unnu góðan sigur á stöllum sínum frá Danmörku í morgun en leikið var um 7. sæti á Opna Norðurlandamótinu sem fram fór í Noregi. Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir Ísland og komu bæði mörkin í fyrri hálfleiknum. Ísland hafnaði því í 7. sæti á mótinu.
13. júlí 2012
Enski dómarinn Andy Davies mun á næstu dögum starfa á þremur leikjum í íslensku deildarkeppninni. Hann mun dæma leiki Víkings Ólafsvíkur og KA sem og Fjölnis og Hauka sem fer fram 17. júlí.  Einnig verður hann aðstoðardómari á leik ÍBV og Fram í Pepsi-deild karla 15. júlí.  Þessi verkefni eru liður í samstarfsverkefni á milli Knattspyrnusambanda Íslands og Englands.
12. júlí 2012
Stelpurnar í U16 töpuðu lokaleik sínum í riðlakeppni Opna Norðurlandamótsins sem fram fer í Noregi. Frakkar voru mótherjarnir og fór þeir með sigur af hólmi, 4 - 0, eftir að staðan hafði verið 2 - 0 í leikhléi.  Ísland leikur gegn Dönum á laugardaginn um 7. sætið.
12. júlí 2012
Stelpurnar í U16 leika síðasta leik sinn í riðlakeppni Opna Norðurlandamótsins í dag þegar þær mæta Frökkum og hefst leikurinn kl. 13:00 að íslenskum tíma. Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið
10. júlí 2012
Íslenskir dómarar fara mikinn þessa dagana á erlendri grundu en margir eru við störf þessa dagana.  Alls eru 11 íslenskir dómarar að dæma erlendis þessa dagana og líklega bætist við þann hóp á næstu dögum.
10. júlí 2012
Stelpurnar í U16 töpuðu í dag gegn sænskum stöllum sínum en þetta var annar leikur liðsins á Opna Norðurlandamótinu sem fram fer í Noregi. Lokatölur urðu 0 - 1 fyrir Svía eftir að markalaust hafði verið í leikhléi.  Lokaleikur Íslands verður svo gegn Frökkum, fimmtudaginn 12. júlí.
10. júlí 2012
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Svíum í dag á Opna Norðurlandamótinu sem fram fer í Noregi. Ísland tapaði gegn Finnum í fyrsta leiknum, 0 - 1, en Svíar unnu Frakka í sínum fyrsta leik með sömu markatölu.
9. júlí 2012
Stelpurnar í U16 léku sinn fyrsta leik í dag á Opna Norðurlandamótinu sem fram fer í Noregi. Mótherjarnir voru frá Finnlandi og höfðu þær finnsku betur, 0 - 1, og kom markið í fyrri hálfleik.  Næsti leikur liðsins á mótinu er strax á morgun, þriðjudag, en þá verður leikið við Svía.
9. júlí 2012
Stelpurnar í U16 hefja í dag leik á Opna Norðurlandamótinu sem fram fer í Noregi. Fyrsti leikurinn verður gegn Finnum og hefst hann kl. 12:45 að íslenskum tíma. Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið.
9. júlí 2012
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hópinn sem fer til Svíþjóðar og leikur þar á Svíþjóðarmótinu. Mótið fer fram dagana 17. - 21. júlí og verða mótherjarnir, auk heimamanna, frá Rúmeníu og Noregi.
8. júlí 2012
Stelpurnar í U16 landsliðinu eru ekki einu fulltrúar Íslands á Opna Norðurlandamótinu sem fram fer í Noregi. Tveir íslenskir dómarar eru þar einnig en þetta eru þær Birna Bergstað Þórmundsdóttir og Bríet Bragadóttir.
5. júlí 2012
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari, hefur gert breytingu á hópnum hjá U16 kvenna en liðið leikur á Opna Norðurlandamótinu í Noregi sem hefst 9. júlí. Úlfar hefur valið Esther Rós Arnarsdóttur úr Breiðabliki í hópinn í stað Hrefnu Þ. Leifsdóttur.
5. júlí 2012
Þrír leikmenn sem valdir hafa verið í U16 ára landslið kvenna sem tekur þátt í Opna Norðurlandamótinu í Noregi nú í júlí hófu knattspyrnuferil sinn með yngri flokkum KFR, en þetta eru þær Bergrún Linda Björgvinsdóttir, Hrafnhildur Hauksdóttir og Katrín Rúnarsdóttir. Bergrún og Hrafnhildur leika núna með ÍBV en Katrín með Selfossi.
4. júlí 2012
Knattspyrnuhreyfingin minnist við andlát Karls Guðmundssonar félaga sem tengdist leiknum ævilangt, fyrst innan vallar en síðan með áratuga starfi einkum við þjálfun og fræðslustörf. Þáttur Karls í uppbyggingu íslenskrar knattspyrnu er stór og knattspyrnuhreyfingin á honum margt að þakka.
4. júlí 2012
A landslið karla er í 129. sæti á nýútgefnum styrkleikalista FIFA og hækkar um tvö sæti frá því í síðasta mánuði. Evrópuþjóðir eru áberandi í efstu sætum listans og eru 8 af 10 efstu þjóðunum aðilar að UEFA, hinar tvær þjóðirnar eru Suður-amerískar.
2. júlí 2012
Um það bil 580 knattspyrnufélög í öllum aðildarlöndum UEFA munu fá skerf af þeim fjármunum sem UEFA hefur aflað með úrslitakeppni EM sem lauk nýlega.  Þetta þýðir að þau félög sem áttu leikmenn í landsliðshópum Íslands í leikjum í undankeppninni fá greiðslur.
2. júlí 2012
Fjölmargir leikir eru framundan í Evrópudeild og Meistaradeild UEFA og verða íslenskir dómaraeftirlitsmenn og eftrlitsmenn virkir þátttakendur. Þrír Íslendingar verða við störf á þessum leikjum.