28. mars 2012
Í ár ætlar Knattspyrnusamband Íslands að bjóða upp á Markmannsskóla KSÍ. Markmannsskólinn verður fyrir stúlkur og drengi í 4. aldurflokki og verður með svipuðu sniði og Knattspyrnuskóli KSÍ.
27. mars 2012
Albert Hafsteinsson, Daníel Þór Heimisson og Tryggvi Hrafn Haraldsson, nemendur 10. bekkjar Grundaskóla á Akranesi komu í starfskynningu hjá okkur, þriðjudaginn 27. mars. Þeir kynntu sér starfssemi knattspyrnusambandsins frá öllum hliðum.
27. mars 2012
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur gert eina breytingu á hópnum sem leikur í milliriðli EM í Hollandi. Sóley Guðmundsdóttir, úr ÍBV, kemur inn í hópinn í stað Aldísar Köru Lúðvíksdóttir sem gefur ekki kost á sér.
27. mars 2012
Tveir íslenskir dómarar eru á leiðinni til Sviss þar sem þeir sækja námskeið fyrir unga og efnilega dómara. Námskeiðið er á vegum UEFA og kallast “CORE”.  Er hér um að ræða áætlun um þjálfun og menntun dómara á aldrinum 25 - 30 ára. Íslendingarnir sem fara til Sviss eru dómarinn Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og aðstoðardómarinn Andri Vigfússon
26. mars 2012
Næsti súpufundur KSÍ verður haldinn föstudaginn 30. marsklukkan 12:15 á 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ við Laugardalsvöll. Að þessu sinni mun Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fræðslustjóri KSÍ, fjalla um fæðingardagsáhrif í knattspyrnu.
26. mars 2012
Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari A kvenna tilkynnti í dag, á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ, hópinn er mætir Belgum í undankeppni EM 2013. Leikurinn fer fram á KFC Dessel Sport vellinum í Dessel, miðvikudaginn 4. apríl kl. 18:00 að íslenskum tíma.
25. mars 2012
U17 landslið karla vann í dag 4-0 stórsigur á Litháen í milliriðil fyrir EM, og á sama tíma vann Danmörk 3-2 sigur á Skotum. Þessi úrslit þýða að Ísland er komið í úrslitakeppnina, sem fram fer í Slóveníu í maí. Frábær árangur sem sýnir enn og aftur hið öfluga starf í uppeldi ungra knattspyrnumanna hér á landi.
24. mars 2012
U17 landslið karla á möguleika á að komast í úrslitakeppni EM, en liðið leikur lokaleik sinn í milliriðli sem fram fer í Skotlandi á sunnudag. Mótherjarnir eru Litháar og hefur Gunnar Guðmundsson tilkynnt byrjunarlið sitt, sem er óbreytt frá síðasta leik.
23. mars 2012
Í samræmi við greinar 9.1 og 11. 2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Ingvar Már Gíslason lék ólöglegur með Magna gegn KF í Lengjubikar karla, þann 18. mars síðastliðinn. Keikmaðurinn var skráður í KA.
23. mars 2012
Þau voru eldhress og áhugasöm, börnin af leikskólanum Garðaborg í Fossvoginum í Reykjavík, sem heimsóttu KSÍ í dag. Þeim fannst mest spennandi að sjá alla þessa landsliðsbúninga sem veggirnir eru skreyttir með. Auðvitað voru svo allir leystir út með gjöfum.
23. mars 2012
U19 landslið kvenna leikur í milliriðli fyrir EM í Hollandi um mánaðamótin. Ásamt heimamönnum og Íslendingum eru Frakkar og Rúmenar í riðlinum. Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari íslenska liðsins, hefur valið hóp Íslands.
22. mars 2012
Á fundi Aga-og úrskurðarnefndar KSÍ, 20. mars 2012, var leikmaður í Leikni R. úrskurðaður í 6 leikja bann og leikmaður KR úrskurðaður í 3 leikja bann vegna atvika sem áttu sér stað í leik KR og Leiknis R. í Reykjavíkurmóti 3. flokks karla B-lið 11. febrúar 2012.
22. mars 2012
Gunnar Jarl Jónsson dómari og Birkir Sigurðarson aðstoðardómari verða við störf næstu daga í Lúxemborg þar sem fram fer einn af milliriðlum EM hjá U17 karla. Þjóðirnar sem leika í þessum riðli eru auk heimamanna, Tékkland, Pólland og Hvíta Rússland.
22. mars 2012
Strákarnir í U17 unnu frækinn sigur á Skotum í kvöld í milliriðli EM en riðillinn er leikinn í Skotlandi. Lokatölur urðu 1 - 0 fyrir Ísland og gerði Kristján Flóki Finnbogson eina mark leiksins í byrjun síðari hálfleiks.
22. mars 2012
Leyfisráð fundaði öðru sinni í yfirstandandi leyfisferli miðvikudaginn 21. mars og tók þá ákvarðanir um leyfisveitingu til þeirra félaga sem voru með útistandandi atriði á fyrri fundi ráðsins 13. mars. Þar með hafa leyfisumsóknir allra þeirra 24 félaga sem leika í efstu tveimur deildum karla verið samþykktar.
22. mars 2012
Strákarnir í U17 karla leika í kvöld annan leik sinn í milliriðli EM en leikið er í Skotlandi. Mótherjarnir í kvöld eru einmitt heimamenn en leikurinn hefst kl. 19:30 að íslenskum tíma. Gunnar Guðmundsson landsliðsþjálfari U17 karla hefur tilkynnt byrjunarlið sitt og er það skipað sömu leikmönnum og hófu leikinn gegn Dönum.
22. mars 2012
Í gær fór fram í höfuðstöðvum KSÍ, fyrirlestur er bar yfirskriftina "Sjúkrakostnaður íþróttafélaga: Leiðbeiningar um endurgreiðslu sjúkrakostnaðar hjá ÍSÍ og SÍ" og var það Svavar Jósefsson sem var fyrirlesari. Það voru 30 manns sem sóttu fundinn frá 22 félögum
21. mars 2012
Fyrirhuguðu unglingadómaranámskeiði í Verkmenntaskóla Austurlands, sem halda átti fimmtudaginn 22. mars, hefur verið frestað vegna ónógrar þátttöku. Athugað verður síðar með að halda námskeiðið ef þátttaka verður næg.